Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 34
SNIÐ B-BB
SKIPULAG TORGSINS
Unnið er markvisst með
hæðarmuninn milli Borgar-
leikhúss og verslunarbygginganna
við torgið og skiptir hann
svæðinu í efra og neðra torg. Er
það kostur þar sem leikhúsið lýtur
að lögmáli sexhyrnings en
verslunarbyggingarnar að stefnum
tengdum ferhyrningi og því erfitt
að sameina þær stefnur. Efra
planið tekur upp stefnur Borgar-
leikhússins, og er framhald af því
mynstri sem þegar hefur verið
dregið upp á lóð leikhússins. Lágir
grashólar verða inni á fletinum og
ganga mynsturbönd lagnarinnar
yfir þá. Listaverkinu Vatnsaugun
eftir Kristin Hrafnsson, sem
upphaflega var ætlaður staður á
neðra torginu, verður komið fyrir
við aðalinngang
Borgarleikhússins.
Neðra svæðið tekur upp stefnur
verslunarbygginganna. Gólf
torgsins er lagt hellum, en
granitbönd teikna upp ferninga'
mynstur, sem spennir út rýmið og
gengur upp í stefnum og inngöng-
um aðliggjandi hygginga. Umferð
leigubíla er stýrt inn á snúnings-
hring með hjálp polla, sethnalla
og götutrjáa.
Neðra torgið er fyrst og fremst
umferðarsvæði gangandi fólks, en
auk sethnallanna sem saman
mynda hring utan um fjögur stök
tré. Ekkert hindrar að borð og
stólar verði sett utan við
veitingastaðina á góðviðris-
dögum.
Hallinn milli efra og neðra torgs
er tekinn upp í bogalaga stöllum,
sem snúa sér að hringlaga fleti
(eins konar amfileikhús ).
Hringformið er hlutlaust svæði
milli áðurnefndra stefna. Utan
um stallana snúast rampar, sem
greiða för þeirra sem ekki geta
nýtt sér tröppur. AhorfendapalL
arnir snúa að mestu undan sól og
er það kostur fyrir uppákomur,
svo sem götuleikhús og
rokktónleika. Hugmyndir hafa
verið viðraðar um tjaldmöguleika
yfir leiksviðið og áhorfendastall-
anna, en engar ákvarðanir verið
teknar um framkvæmd. Milli
stallanna og rampanna er veggur
sem gæti orðið undirstaða fyrir
slíkt tjald yfir útileiksviðið. Skálin
hefur verið mótuð og lögð grasi til
bráðabirgða. Sömuleiðis hefur
gras verið lagt á gólf leiksviðsins
til bráðabirgða. ■
32