Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Síða 59
MÓDERNISMINN
stutt sagnfrœðileg greining
TRAUSTI VALSSON
arkitekt
Frá fornu fari er
sagnfræðinni skipt
niður í undirgreinar.
Af þessum greinum
má nefna stílsögu, sögu verkhátta
og tækni og hugmyndasögu. Þegar
menningarsagan er athuguð í
heild þarf að gæta að samspili
þessara greina og ef hægt er, að
sýna fram á orsakasamhengi
þeirra. Þetta þurfa sagnfræðingar
að gera af fordómaleysi, og er það
reyndar alkunna úr reynslu
sögunnar, að stíll, form, tæki og
hugmyndir skiptast á að vera
orsakavaldar.
I upphafi þessarar aldar kom fram
feikiöflug setning í hönnunar-
fræðum: „Form follows function”
Með þessari setningu var nú
fengin frumregla fyrir hönnuði,
regla sem braut rækilega gegn
eldri höfuðreglum um stíl, segir í
raun, að formið eigi að koma fyrst
og síðan fúnksjónin.
Sé málið athugað af sanngirni,
sést að bæði stíll og formhug'
myndir sem og lögmál sem
tengjast fúnksjónum eiga rétt á
sér, og ef vel tekst til ganga þau
upp í takt við hvort annað í
byggingarverkinu.
Einsýnar öfgastefnur, sem ýmist
leggja alla áherslu á formið eða
fúnksjónina, leiða aftur á móti
Frá samkeppni um fegrun umhverfis Tjarnarinnar á 6. áratugnum. Arkitekt
Sigurður Guðmundsson.
Unité d'halbitation eftir Le Corbusier. Hugmvndin um ofurstærð er röng og hús
sem þjónustueining virkar ekki. Rof tengsla fólks og umhverfis er slæm og rýmið
á milli klumpanna sem húsið stendur á er óvistlegt. Þakgarðshugmyndin eins og
Corbusier notaði hana, er röng.
57