Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 96

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 96
SAMSÝNING F H I Félag húsgagna- og innanhússarkitekta hélt sýningu á verkum félaga sinna fyrir skömmu í Perlunni. Sýnendur voru 32 og sýndir voru fjölmargir munir og teikningar. Það gaf sýningunni aukið gildi að sýna, auk nýþróunar, bæði eldri húsgögn, sem hlotið hafa viðurkenningu, auk húsgagna sem þegar eru í framleiðslu. Fjölmargir eru nú við nám í húsgagna- og innréttingahönnun, eða nýkomnir úr námi og sjást hér í fyrsta sinn verk nokkurra ungra listamanna, auk þeirra eldri. Það vekur athygli að sumir munanna eru hannaðir sem listmunir, sem e.t.v. eru ekki ætlaðir til fjöldaframleiðslu. Má þar nefna frumlegt dagstofusett úr bobbingum, sem vöktu a.m.k. nokkurra athygli fjölmiðla, og sófaborð með grind gerðri úr stimplum úr bílvél. Oneitanlega saknar maður þegar á heildina er litið, nokkuð hágæða handverks í húsgagna- smíði. Ekki er ósennilegt að hönnunin á því, sem ekki hefur verið sett í framleiðslu, beri þess nokkur merki, að kostnaðarsamt er að gera frumeintak til sýningar. Nú eru liðin 24 ár síðan F H I hélt síðast húsgagnasýningu. Var hún haldin við frekar bágar aðstæður í ófullgerðu húsnæði Iðnskólans í Reykjavík. Þar máttu félagsmenn hafa sig alla við að forða mununum frá skemmdum af völdum leka og blásturs. Það má því segja að mikil breyting hafi Stóll með bogum sem vekur upp minningu frá tímabilum straumlínunnar. Leó Jóhannsson. I PERLUNNI 94 SSEfflW1

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.