Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 11
G E S T U R
ÓLAFSSON
AÐ BYGGJA ODYRT
Um áratuga skeiö hafa íslendingar hreykt
sér af því aö hér á landi byggju lang
flestir í eigin húsnœði. Ekkert tiltökumál
vceri fyrir ungt og duglegt fólk að eignast
íbúð og seinna ef til vill einbýlishús. Aö vísu þyrftu
menn að leggja hart aö sér um nokkurra ára skeið,
en allir hefðu jú bara gott af því.
í dag, á tímum verðtryggðra lána, er það samt
orðið verulega erfitt fyrir margt ungt fólk á íslandi
að koma sér upp þaki yfir höfuðið og það á oft í
erfiðleikum mikinn hluta œfinnar við að greiða
niður þau lán sem það verður að taka. Oft er allt
spennt til hins ýtrasta og lítið má koma fyrir til þess
að spilaborgin hrynji og menn lendi allslausir út á
götu, t.d. ef menn missa atvinnuna eða verða
veikir.
Ef dýpra er skyggnst snýst þetta mál ekki bara um
steinsteypu og gler, heldur um fólk á íslandi á öllum
aldri og möguleika þess til að lifa mannsœmandi
lífi og vera heilbrigt og hamingjusamt.
Húsnœðismál, hversu mikilvœg sem þau annars
eru, eiga ekki að þurfa að taka mikinn hluta af
afrakstri heillar starfsœvi. Menn eiga að geta átt
þess kost að búa einfalt og ódýrt ef þeir óska og
nota lífið til einhvers annars en að borga hús-
nœðislán.
Með tilkomu verslananna Hagkaup og Bónus
fengu íslenskir neytendur alltí einu matvöru á verði
sem þeir héldu áður að vœri óhugsandi hér á
landi. Þetta var hœgt með betra skipulagi,
hagkvcemari innkaupum og meiri tœknivœðingu
en áður þekktist og neytendur nutu góðs af. Þessar
framfarir í betra skipulagi, innkaupum og tœkni í
byggingariðnaði virðast ekki hafa skilað sér í lœgri
byggingarkostnaði til neytenda.
Fáir arkitektar hafa fengið umfjöllun á síðum
glcesitímarita fyrir að hanna ódýr og einföld hús
fyrir þá sem ekki hafa efni á öðru. Það skiptir samt
höfuðmáli að hcefustu hönnuðir takist á við þetta
verk því það er við hönnunina sem mikilvœgustu
ákvarðanirnar eru teknar. í dag er nú einu sinni
þannig komið fyrir mannkyninu að það þarf á
ódýrum og einföldum húsum að halda. Það sama
gildir auðvitað um íslendinga líka, því ódýr og
hagkvœm hús gerðu okkur annað hvort kleift að
lifa fyllra og skemmtilegra lífi eða leggja meira
framtilnauðsynlegs hjálparstarfsíöðrumlöndum.
9