Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 36
leiðir að vinna, efhi og álagning
þess sem byggir kostar margfalt
meira en ef um fleiri eins hús væri
um að ræða.
En væri hægt að lækka byggingar-
kostnað á annan hátt en hér á
undan getur?
Ef hönnuður fær borgað fyrir að
hanna 50 eins hús getur hann eytt
allmiklu meiri tíma í hönnunina
sjálfa en ef um væri að ræða eitt
einstakt hús (ekki þarf að minna
fagfólk á lága taxta á hönnun sem
ráða ríkjum þessa dagana). Betri
hönnun gefur betra hús, og betra
verð.
Þá er það spurningin um útfærslu
á hinum ýmsu byggingarhlutum,
einsogt.d þakskeggi, áferð áveggj-
um, hita- og vatnslögnum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Erlendis leggja menn gjarnan lagnir
utan á veggi og er að mínu mati alls
ekki til óprýði ef lagnireru lagðar á
skipulegan og snyrtilegan hátt.
Veggi er ekki endilega nauðynlegt
að pússa sé steypt með góðum mót-
umog áveggisem þarfað einangra
má einangra (og klæða) utan frá sé
það talinn hagstæður kostur.
En vilja Islendingar búa í eins húsi
ognágranninn? Eg geri fastlega ráð
fyrir því, náist verð niður að ein-
hverju ráði.
Væriunntað lækkaverð raðhúsa
niður í það að vera svipað eða að-
eins hærra en verð á stórum íbúðum
á höfuðborgarsvæðinu væru
ábyggilega margir sem vildu frekar
búaíraðhúsi þráttfyrirað útfærsla
á ýmsu í húsinu væri ekki eins „fín”
og í íbúðinni.
Hér á undan hef ég stuttlega reynt
að benda á fáein atriði sem gætu
orðið til þess að lækka byggingar-
kostnað og gert fólki sem á því
hefði áhuga kleift að flytja inn í
eign með sérinngangi og garði.
Flestir eru mér sammála í því að
með fyrmefndumhugmyndumværi
hægt að ná fermetraverði í rað-
húsum/einbýlishúsum mikið niður,
en hvort slík lækkun myndi skila
sér til kaupenda er óreynt.
Hinn íslenski kaupandi kaupir
fermetra en ekki eignina í heild
sinniog þarf þvíallmiklahugarfars-
breytingu til þess að hann og ekki
síður þeirsembyggjaogseljafariað
hugsa um gæði og verð sem eitt
samhangandihugtak. Þaðdyttiekki
nokkrum manni í hug að kaupa bíl
eftir því hversu margir rúmmetrar
hann væri en samt kaupa menn
eignir sem eru tíu til fimmtán
sinnum verðmeiri en bíll með þessu
hugarfari. ■
ARKITEKTiUR
OG SKIPULAG
TÍMARITIÐ ARKITEKTÚR OG SKIPULAG KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA OG FJALLAR Á
FAGLEGAN HÁTT UM BYGGINGARLIST, SKIPULAG OG UMHVERFISMÁL. ÞETTA TÍMARIT ER
SAMEIGINLEGUR VETTVANGUR ALLRA ÞEIRRA SEM FÁST VIÐ SKIPULAG, HÖNNUN,
MANNVIRKJAGERÐ OG ALMENNA UMHVERFISMÓTUN, BÆÐI SÉRFRÆÐINGA,
SVEITARSTJÓRNARMANNAOGFÓLKSSEM HEFURALMENNANÁHUGAÁÞESSUM MÁLUM.
ÁSKRIFT 1992
Ég óska að greiða áskriftargjald að Arkitektúr og skipulag árlega með greiðslukorti þar til fyrirmœli
berast um annað:
Nafn Kennitala
Heimili Staður Póstn
Euro Visa Kortnúmer.... Gildirtil
Áskriftargjald hérlendis er KR. 2500 og USD. 75.00 erlendis. Sendið til SAV, Garðastrœti 17,101, Reykjavík,
ísland.
Eða hringið (91) 616577, Fax: 616571. Sé greitt með gíró eða í sparisjóðum: Banki: 1135, reikn: 7737,
kennitala: 490388- 1419.