Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 68
'í¥<VK*LÓ4tÍ
UMSJÓN: JÓHANNA HARÐARDÓTTIR
Kommóður, skenkir og
skrifpúlt eru húsgögn
sem eiga sífellt vin-
sældum að fagna.
Undir öllum venjulegum kringum-
stæðum myndi hvert þessara hús-
gagna standa eitt og sér, oft hvert í
sínu herbergi og vera sjálfu sér naégt
sem slíkt.
Stundum er þó reynt að flétta saman
ólíkum þáttum í einu húsgagni, sum-
part vegna plássleysis, sumpart
vegna nýjungagirni, en það vill oft-
lega koma niður á gæðum hlutarins
og fegurð. Það er þó ekki algilt og
húsgagnið á myndinni er ef til vill
ein af undantekningunum sem
sanna regluna. Það heitir Harmoni
ogvarhannaðárið 1983 afHollend-
ingnum Arnold Mercks.
Þetta sérkennilega húsgagn getur
verið allt í senn, kommóða, skenkur
og skrifpúlt, en auk þess er það hið
hreinasta augnayndi.
I Harmoni eru neðan frá talið 5
misdjúpar skúffur, en ofan við þær
er skápur með tveim hurðum. Þar
fyrir ofan eru tvær þunnar skúffur
til viðbótar - sú efri læst og þá
„skrifpúltið”sem passar fremur
hávöxnum manni til að skrifa við.
Efst eru tvær litlar skúffur. Fyrir
skúffunni sem púltið er í er hurð
sem draga má niður og loka.
Hönnuðurinn hefur svo vitað sé
ekki gefið upp hvern tilgang hann
hafði í huga þegar hann teiknaði
Fátt annað en hugmyndaflug eigandans setur notkun Harmoni takmörk. Hér er hægt
að hugsa sér margs konar notagildi og útlitið gefur möguleika á að setja þetta húsgagn
á mismunandi staði.
gripinn. Kannski hefur hann verið
hugsaður sem hirsla undir kven-
fatnað, eða sem eina hirslan undir
föt yngsta fjölskyldumeðlimsins og
í báðum þeim tilfellum hafa rúnn-
aða hirslan og skúffurnar þar fyrir
ofan verið notaðar undir einhvers
konar snyrtidót. Ef til vill hefur
Harmoni átt að fara í stofuna undir
fína dúka, servíettur, kerti og annað
borðskraut. Máske hefur hönnuð-
urinn hugsað sér að rúnnaða hirslan
og skúffurnar þar fyrir ofan yrðu
notuð undir bréfsefnið og þess
háttar, en hinar undir myndir, kort,
minnisbækur, vegabéf og fleira sem
talist geta einkaeigur og tilfinninga-
tengdir munir. Allt þetta væri
hugsanlegt með góðu móti.
Harmoni er vandað og vel smfðað
húsgagn úr pressuðum viði og sómir
sér því vel jafnt í þröngum, gamal-
dags húsakynnum og víðfeðmum,
Ijósum stórstofum. Sjaldgæfur
hlutur og sönn stofuprýði sem heldur
verðgildi sínu um langa framtíð.
Fátt annað en hugmyndaflug eig-
andans setur notkun Harmoni tak-
mörk. Hér er hægt að hugsa sér
margs konar notagildi og útlitið
gefur möguleika á að setja þetta
húsgagn á mismunandi staði. ■
66