Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 62
Langsnið í skólabygingu.
Heimar nemenda og gesta mætast.
GRUNNPLÖN
Nemendalínunni er skipt í tvennt
af hótelbyggingunni. Það er
heimavist og félagsaðstaða annars
vegarogskólinnhinsvegar. Sunnan
hótelsins liggur heimavistin í fimm
hæða byggingu, sem teygir sig frá
hótelinu í átt að ánni.
Heimavistin sameinast í mötuneyti
og félagsaðstöðu næst hótelinu.
Þetta tengist skólanum með brú sem
liggur undirhótelið íplani annarrar
hæðar og gefur um leið aðgang að
starfsmannainngangi hótelsins.
Skólinn er tveggja hæða bygging
með allar kennslustofur á jarðhæð,
á efri hæð er bókasafn og lesaðstaða
næst brúnni en fjær tilraunastofur
og aðstaða kennara. Skólinn opnar
sig á móti ánni en snýr baki í aðkomu
hótelsins.
Fjórar aðalhæðir hótelsins svífa yfir
brú nemendalínunnar og er það
einungis anddyri þess og
veitingastaðursælkerans sem liggja
á jarðhæð. Þessir tveir staðir tengj-
ast aðkomu hótelsins. Veitinga-
staðurinn liggur næst ánni og snýr
að bænum. Báðir tengjast þeir
hótelinu með lyftu og tröppu-
kjörnum, sem ganga frá kjallara til
efstu hæðar. Fyrsta hæð hótelsins
inniheldur bari, ráðstefnu- og
samkomusali auk veitingastaðar
sem eingöngu þjónar hótelgestum.
A næstu tveimur hæðum eru öll
gistirými hótelsins og á efstu
hæðinni er heilsurækt með sal,
veggjatennis, sundlaug, barogheitir
pottar með tilheyrandi veitinga-
aðstöðu. Heilsuræktin hefur létt
yfirbragð og tengist verönd á þaki
hússins. I kjallara eru öll lager- og
þjónusturými auk tækniherbergja.
UPPBYGGING OG EFNIS-
VAL
Hótelið er staðsteypt súlnabygging
með steyptum gólfplötum. Efsta
hæðin og þak hússins eru úr stáli.
Allar úthliðar eru úr gleri með
utanáliggjandi stálgluggatjöldum til
að stjórna áhrifum sólar. Neðri
hæð skólans er staðsteypt, efri hæð
úr stáli og gleri með stálglugga-
tjöldum, þak úr stáli. Hús heima-
vistar er með staðsteypta veggi en
öll gólf og þak úr forsteyptum ein-
ingum.
LEIÐBEINENDUR
Francoise -Helene Jourda
Gilles Perraudin
Finn Kolstad
Neven Fuchs Mikac. ■
60