Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 75
í garðinum eru tvö fuglahús úr timbri, sprekum og grjóti sem skógarþrestir hafa verpt í. Annað húsið sést hægra megin á my ndinni
ofan við höfuð tréhestsins. Garðhúsið átti í upphafi aðeins að vera skjól. Síðan bættist einn og einn veggur við, og á fjórum árum
varð skýlið að húsi.
forvitnum augum. Það vefst þó ekki
fyrir neinum sem framhjá fer að
þarna er fallegur garður, því steypt
ljósker beina sjónum vegfarenda inn
í hann og að þeim verkum sem
hlasa við frá götunni.
Einkenni þessa garðs eru þéttur
trjágróður með steinlögðum gang-
stígum á milli ogfjöldi skemmtilegra
listaverka úr steini, tré og öðrum
náttúruefnum á víð og dreif.
Garðurinn hlaut viðurkenningu
bæjarins fyrir nokkrum árum og
það er sýnilegt að þau hjónin hafa
ekkert slegið af síðan, því enn er
garðurinn hin stórkostlegasta para-
dís.
Brynhildur á mestan heiðurinn af
því hversu sérstakur garðurinn er
því hún hefur gert öll þau sérkenni-
legu og líflegu listaverk sem prýða
hann. Brynhildur er listakona af
Guðs náð og ást hennar á náttúrunni
kemur berlega í lj ós í verkum hennar
sem prýða garðinn. V ið heimsóttum
Brynhildi dag einn snemma hausts
og þrátt fyrir að fyrsta grimma
haustlægðinværi búin að taka sinn
toll af viðkvæmasta gróðrinum bjó
garðurinn enn að fegurð sumarsins.
Við spurðum Brynhildi um tilurð
þessara listaverka.
HÚSASKJÓL HANDA
FUGLUNUM
„Við fluttum hingað á Reykja-
veginn árið ’78 og þá var ekkert hér
í garðinum frekar en annars staðar í
nágrenninu. Eg hafði gert fuglahús
sem ég setti í garðinn þar sem ég bjó
áður. Mér fannst fuglana vanta
samastað og ég vildi hafa þá nálægt
mér. Eg vildi auðvitað hafa fuglahús
hér líka og bjó til hús í lóðina hér
fyrst af öllu. Ég gaf fuglunum í þau á
veturna og þá komu þeir og settust
þar að.
Flj ótlega eftir að við fluttum hingað
byrjaði ég svo fyrir alvöru að vinna
fleiri steinmuni. Eg fór að prófa mig
áfram með að steypa ljósker til að
skreyta garðinn með. Eg hafði þau
lokuð fyrst í stað, en komst svo að
því að ég yrði að breyta þeim og
opna þau meira. Þessi ker við
gangstéttina eru fimm ára gömul og
eru eins og ég vil hafa þau í dag.
Ljóskerin eru ýmist hönnuð fyrir
rafmagnsljós eða kerti og þessi nýju
eru steypt í þrennu lagi og raðað á
steina til að hækka þau frá jörðu.
Mér finnst mjög gaman að skoða
steina og vinna með þá og ég fór
fljótlega að safna steinum í garðinn.
Það eru ófáar ferðirnar sem búið er
að keyra suður með sjó og í ýmsar
aðrar fjörur og safna grjóti til að
flytjaheim. Það væri gamanaðvita
hversu mörg tonn þetta eru orðin.
Eg fór að leika mér að búa til styttur
úr steinunum og núna er garðurinn
orðinn fullur af steinfólki af ýmsum
stærðum og gerðum. Auk þess eru
hér varðhundur úr grjóti, fullt af
litlum mýslum úr skeljum og
73