Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 34
Markaðshlutdeild stálgrindarhúsa í Finnlandi.
verður áleitin hvers vegna sam-
svarandi þróun hafi ekki átt sér stað
hérálandiefhafter í huga að stein-
steypa er hér mun dýrari en í ná-
grannalöndunum. Erum við ein-
ungis eftir í þróuninni og er þetta
það sem koma skal ?
Hér á landi eru stálgrindarhús nær
eingöngu skemmur á einni hæð en
steinsteypan allsráðandi við alla
mannvirkjagerð. Skýringanna
hlýtur fyrst og fremst að vera að
leita í hefðinni og því er ekki að
neita að hönnuðir og byggingar-
fyrirtæki hafa náð góðum afköstum
og góðum tökum á steinsteypunni.
Einn af kostum stálvirkis er m.a. að
það hentar vel til verksmiðju-
framleiðslu sem síðan er eingöngu
sett saman á vinnustað þannig að
byggingartími verður oft mjög
skammur, þar er oft verið að tala um
vikur í stað mánaða. Þetta getur
síðan haft í för með sér verulegan
sparnað ífjármagnskostnaði. I þessu
sambandi kemur upp í hugann
flugskýli á Keflavíkurflugvelli, sem
flutt er hingað í pörtum.
Hér á landi munu menn standa
frammi fyrir vaxandi erlendri sam-
keppni tilbúinna verksmiðjuhúsa
úr stáli. Þessarar samkeppni hefur
mest gætt í stórum skemmum en á
undanförnum árum hafa einnig
orðið miklar framfarir í notkun stáls
í íbúðarhúsum víða erlendis og gæti
komið til vaxandi samkeppni á því
sviði. Hluti slíkra bygginga hefur
vaxið umtalsvert t.d. í Banda-
ríkjunum og Kanada en þess má
geta að um fjórði hluti einbýlishúsa
í Bandaríkjunum er búinn til í
verksmiðjum.
Vélsmiðjan Héðinn hefur reyndar
þegar byggt a.m.k. tvö einbýlishús
úr stáli og virðist þar vera um
verulega lækkun byggingar-
kostnaðar að ræða miðað við
hefðbundnar byggingaraðferðir.
Áætlað verð fyrir 135 nÁ hús, þ.e.
allt efni til að gera húsið fokhelt
ásamt einangrun og teikningum af
stálgrind, sökkli og útliti um 1,5
millj.kr.
Enn eitt atriðið sem áhrif getur haft
á þessu sviði er að staðlar varðandi
brunavarnir o.fl. er snertir bygg-
ingarreglugerðir munu verða sam-
ræmdir á næstunni. Ekki þykir
heldur ólíklegt að innan tiltekins
árafjölda verði þess krafist af
tilboðsaðilum að þeir hafi tilskilið
vottorð (ISO 9000) við smíði og
framleiðslu stálmannvirkja.
Félag málmiðnaðarfyrirtækja og
Sindra-Stál hf. efndu nýlega til
ráðstefnu sem sótt var af um 60
manns úr verktaka- og byggingar-
iðnaði þar sem skoðaðar voru
sérstaklega reglur varðandi
brunavarnir stálmannvirkja. Þar
kom fram að brunavarnir og
reglugerðir þar að lútandi hafa vafist
nokkuð fyrir mönnum hérlendis og
að kröfur hafa að öllum jafnaði verið
strangari en í öðrum Evrópulöndum
en þetta mun verða samræmt á
næstunni. Ljóst er að kostir stál-
grindarhúsa hafa verið stórum
vanmetnir hér á landi og þyrftu að
koma til álita sem kostur við hönnun
bygginga mun oftar en verið hefur.
Það mun sýna sig á næstu árum að
stál í byggingariðnaði er í sókn enda
getur það verið ódýr, traust og örugg
lausn. Það er jafnframt ljóst að
Islendingar verða að ná góðum
tökum á hönnun og framleiðslu
stálgrindarhúsa til að verða
samkeppnishæfir íframtíðinni. ■
32