Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 51
VILNIUS,
HÖFUÐBORG LITHÁENS
JUOZAS VASKEVICIUS
ARKITEKT,
FORM. ARKITEKTAFÉLAGS LITHÁENS.
Juozas Vaskevicius er fæddur í bænum Griskabudis í Vilnius árið 1924. Hann lauk námi í arkitektúr í byggingarlistardeild
„Kaunas Polytechnical Institute“ árið 1924 og hóf þá störf í Vilnius. Þar sá hann m.a. um varðveislu bygginga og var yfirarkitekt
þessa svæðis frá 1952 - 1961. Hann vann í skipulagsdeild borgarinnar sem arkitekt og skipulagsfræðingur og yfirarkitekt
hönnunarmála frá 1961-1990. Hann hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Arkitektafélag Litháens og var formaður þess
1966 - 1970 og aftur frá 1990. Hann hefur hannað fjölmargar byggingar bæði í Vilnius og víðar og skipulagt margar borgir í
Litháen í samstarfi við aðra, m.a. Vilnius, Klaipeda og Palanga. Hann hefur einnig ritað fjölmargar greinar í fagrit og tímarit
og setið í byggingarlistarráði Vilnius og Litháens.
Arkitektafélag Litháens er óháð fagfélag skapandi fagmanna og hefur nú 987 félagsmenn. Þetta félag heldur uppi því starfi sem
hafið var með Félagi verkfræðinga og arkitekta í Litháen, sem stofnað var 1925, en lagt niður 1940. Arkitektafélagið var
endurreist árið 1990.
yilnius, höfuðborg Lit-
háens og stærsta borg
lýðveldisins liggur í suð-
austurhluta Litháens.
Borgin þekur um 280 km2.1 henni
búa um 600.000 manns eða um
16% af íbúafjölda landsins.
Talið er að stórfurstinn Gediminas
hafi stofnað Vilnius. Hann byggði
kastala á þessum stað og gerði
Vilnius að höfuðborg hertoga-
dæmisins Litháens. Talið er að
borgin hafi verið stofnuð árið 1323,
þótt fomleifarannsóknir sýni að fólk
bjó þar fyrir meira en tvö þúsund
árum í þorpi sem var víggirt með
timburgirðingu.
Vilnius liggur við mót tveggja fljóta,
Neris og Vilnia. A þessum stað var
Efri kastalinn byggður á hæð einni,
en fætur þessarar hæðar sem einnig
voru víggirtar fengu síðar nafnið
Lægri kastali. Bærinn óx til suðurs
frá kastalanum og á árunum 1503-
22 var bærinn víggirtur með 2,4 km
löngum borgarmúr með 10 hliðum
og varðturnum. Borgin stækkaði
ört og náði fljótlega þeim mörkum
sem nú eru nefnd Gamli borgar-
hlutinn. V ilnius var þá með stærstu
borgum í Austur-Evrópu og er þessi
borgarhluti ómetanlegur minnis-
varði um þá tíma.
í byggingarlist V ilnius má finna allar
sögulegar stíltegundir, allt frá got-
neskumstíl ogendurreisnarstíl til
sígildrar og staðbundinnar bygg-
ingarlistar auk afbrigða af gotn-
eskum stíl.
í langri sögu Vilniusborgar hefur
borgin átt bæði vaxtar- og vel-
megunarskeið, en einnig hefur hún
mátt þola miklar skelfingar, bæði
stríð, eyðileggingu, eldsvoða,
hungur og plágur. Með Lublin-
Líkan af íbúðarhverfinu Suderve í Vilnius, 1991. Arkitekt, A. Gucas.
49