Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 53
Líkan af hóteli í Vilnius, 1991. Arkitekt, C. Mazuras.
samræmi við opinbera stefnu og
efnahagsleg markmið þess tíma var
einungis gert ráð fyrir húsnæði í
eigu ríkisins og samvinnufélaga -
fimm, níu, tólf hæða - og jafnvel
hærri íbúðarblokkir voruhannaðar.
Lágreist íbúðarbyggð á vegum
einkaaðila var bönnuð og sömu sögu
var að segja um önnur Sovét-
lýðveldi. Nú, eftir að Litháen hefur
öðlast sjálfstæði, er hins vegar lögð
mest áhersla á lágreista íbúðarbyggð.
Þessa stundina er mikill skortur á
byggingarlóðum og þess vegna er
verið að vinna nýtt skipulag fyrir
Vilnius.
A eftirstríðsárunum var lítið tillit
tekið til einangrunargildis bygginga.
Nú þegar verð á gasi, olíu og öðrum
orkugj öfum nálgast heimsmarkaðs-
verð er nauðsynlegt að breyta þess-
um byggingum og gera þær „vetrar-
heldar“. Auk þess er mikið verkefni
framundan við að endurnýja gamla
borgarhlutann í Vilnius. Þau hús
sem voru eyðilögð í seinni heims-
styrjöld hafa enn ekki verið
endurnýjuð til fullnustu. Sú stefna
kommúnista sem fylgt var á eftir-
stríðsárunum og miðaði að því að
þurrka út andlega og menningar-
lega arfleifð þjóðarinnar hefur
skaðað gamla borgarhlutann í
Vilnius að miklu leyti. Þótt sár þessa
borgarhluta hafi ekki gróið og blæði
enn, er þessi borgarhluti samt
heillandi á öllum tímum árs. Barok-
stíllinn kom til Litháens á 17-18
öld. Hann festi það vel rætur t í
fjölmörgum mikilvægum bygg-
ingum að Vilnius er oft kölluð
Barokborgin. Engu að síður hefur
gotnesk uppbygging borgarinnar
haldið sér og þar eru fjölmargir
húsagarðar, krókótt miðaldastræti
með klukkuturnum, tröppum og
bogar og minjar gamalla húsa koma
víða í ljós inn á milli grænna trjáa.
Gamli bærinn í Vilnius hefur því
hlotið lof fyrir að vera mjög „mynd-
rænn“ borgarhluti.
Við jaðar gamla borgarhlutans er
gata sem hlotið hefur nafnið
„Islandsgata“. Henni var gefið þetta
nafn til þess að láta í ljós virðingu
og þakklæti til þess ríkis sem varð
fyrst til þess að viðurkenna sj álfstæði
okkar. V ilnius og íbúar hennar fagna
því að fá heimsóknir frá Islend-
ingum.
Verið velkomin til Vilnius! ■
(Þýð. G.O.) Ljósm: A. Grincelaitis.
51