Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 54
UTBOÐ OG HONNUN
RIMASKÓLA
f júní sl. óskaði Reykjavíkurborg eftir því við fjórar arkitektastofur og fjórar verkfræðistofur að þær gerðu
heildartilboð í hönnun Rimaskóla, samkv. útboðslýsingu. Stjórn Arkitektafélags íslands og stjórn Félags
ráðgjafarverkfræðinga komust að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að þetta útboð væri óaðgengilegt og óæskilegt fyrir
þessar stéttir. Engu að síður skiluðu allir ofangreindir aðilar tilboði í verkið, auk einnar arkitektastofu/ verkfræðistofu
til viðbótar sem reyndist vera lægstbjóðandi og hlaut verkið.
Þetta útboð hefur vakið talsverða athygli og umræður og því var leitað til nokkurra aðila úr hópi arkitekta,
verkfræðinga og starfsmanna Reykjavíkurborgar og þeir beðnir að tjá sig um þetta nýmæli. Umsögn þessara aðila
fer hér á eftir. ( ritstj.)
HJÖRLEIFUR B. KVARAN
FRAMKVÆMDARSTJ. LÖGFRÆÐI- OG STJÓRNSÝSLU-
DEILDAR REYKJAVÍKURBORGAR.
Nokkur umræða hefur
átt sér stað á undan-
förnum misserum um
kostnað Reykja-
vegna hönnunarvinnu
og á það jafnt við þóknun arkitekta
sem verkfræðinga og annarra
ráðgjafa. Hefur mörgum þótt þessi
kostnaðarliður nokkuð hár þegar
litið er til einstakra framkvæmda
en aðrir hafa bent á að hönnunar-
kostnaður sé fremur lágur þegar litið
er til heildarkostnaðar verksins.
Við val á arkitektum hjá Reykja-
víkurborg hafa ýmsar leiðir verið
farnar og skulu þessar nefndar. I
fyrsta lagi hefur arkitekt verið
ráðinn af þeim aðilum sem ábyrgð
bera á tiltekinni framkvæmd. I öðru
lagi hefur arkitekt verið valinn að
undangenginni opinni samkeppni.
I þriðja lagi hefur arkitekt verið
ráðinn á grundvelli lokaðrar
samkeppni. I öllum ofangreindum
tilvikum hefur þóknun ákvarðast af
gjaldskrá fagfélagsins. I fjórða lagi
hefur arkitekt verið ráðinn á
grundvelli alútboðs og hefur þá
verktaki annast greiðslur til
arkitektsins og hefur þóknun hans
því verið hluti af heildar-
tilboðsfjárhæð í verkið.
Fjölmargir arkitekar hafa gagnrýnt
þær aðferðir sem einkum hafa verið
viðhafðar þegar ákveðið hefur verið
hver skuli teikna tiltekið mann-
virki. M. a. af þeirri ástæðu og til
þess að leita eftir ódýrari hönnun
ákvað borgarstj óri að efna til útboðs
á allri hönnun Rimaskóla sem
væntanlega verður byrj að að byggj a
á næsta ári.
Lögfræði- og stjórnsýsludeild
Reykjavíkurborgar vann ásamt
skólaskrifstofu útboðsgögn, sem
voru send fjórum arkitektastofum
og fjórum verkfræðistofum en allir
þessir aðilar hafa unnið mikið fyrir
Reykjavíkurborg með ágætum
árangri. Ollum var fyrirfram gerð
grein fyrir tilhögun útboðsins og
æsktu allir eftir að fá að taka þátt í
því. Samkvæmt útboðsgögnum átti
að skila tilboði í heildarhönnun
Rimaskóla í samræmi við húsrýmis-
áætlun og önnur útsend gögn. Var
því um að ræða arkitektateikn-
ingar, allar verkfræðiteikningar,
lóðarhönnun, gerð útboðsgagna o.fl.
Fljótlega eftir útsendingu útboðs-
gagnanna kom í ljós, að samstarf
myndaðist meðal þeirra verkfræði-
og arkitektastofa sem útboðsgögnin
fengu, þannig að gera mátti ráð fyrir
fjórum tilboðum, en það var ekki
skilyrði, að arkitektastofurnar veldu
með sér til samstarfs einhverja af
þeim verkfræðistofum, sem gögnin
fengu send, eða öfugt.
Félag ráðgjafaverkfræðinga en
einkum þó stjórn Arkitektafélags
Islands settu sig á móti þessari
útboðsleið og voru gerðar
athugasemdir við útboðsgögnin.
Bárust borgarstjóra og borgarráði
bréf frá Félagi ráðgj afaverkfræðinga
og Arkitektafélagi íslands, sem
jafnframt fór fram á við félagsmenn
Al, að þeir tækju ekki þátt í
hönnunarútboðinu. Engar
athugasemdir bárust frá þátt-
takendum um gerð útboðsgagn-
anna eða um tilhögun útboðsins.
Þrír af þátttakendum tilkynntu hins
vegar bréflega í byrjun júlí, með
vísun til áskorunar stjórnar AÍ, að
þeir tækju af félagslegum ástæðum
ekki þátt í útboðinu, Varþá ákveðið
að bjóða einni verkfræðistofu til
viðbótar að taka þátt í útboðinu.
Verðtilboð í hönnun Rimaskóla
bárust frá öllum þeim aðilum, sem
fengu útboðsgögnin send og voru
“Fjölmargír arkitekar hafa gagnrýnt þær
aðferðir sem einkum hafa verið viðhafðar
þegar ákveðið hefur verið hver skuli teikna
tiltekið mannvirki.”
52