Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Blaðsíða 22
HÚSNÆÐISEIGN ÍSLENDINGA 1940 - 1990
Eignarhald
% í eigin húsnœði
Einstaklingar reyna auk þess að
kosta sem minnstu til hönnunar-
innar. Gólfflötur húsa sem reist hafa
verið síðustu þrjá áratugi nýtist illa.
Menn lögðu meira upp úr því að
húsin væru stór en að þau nýttust
vel. Með því að skipuleggja vel það
rými, sem er til ráðstöfunar, má
spara byggingarkostnað. Skipulag
byggingarframkvæmda má einnig
bæta.
Fyrirtækj um hentar að fá tiltölulega
stór samfelld byggingarlönd. Þegar
mikið er byggt á sama svæði, nýtast
aðföng betur og byggingarkostnaður
lækkar. Sveitarfélög miða ekki
lóðaúthlutanir við þarfir byggingar-
fyrirtækja og úthlutun á lóðum er
tilviljanakennd. Talsverð offjár-
festing er í byggingariðnaði. Mun
fleiri tæki, vélar, fasteignir og annað
hefur verið keypt en þörf er fyrir og
byggingariðnaðurinn getur bætt við
sig miklum verkefnum án þess að
auka við sig tækjum. Erlendis er
mikið byggt úr stöðluðum einingum.
I byggingariðnaði okkar er stöðlun
skammt á veg komin. Með notkun
staðla má lækka framkvæmda-
kostnað. Erlendis eru þúsundir
staðlaðra eininga fáanlegar til
húsbygginga. Líklegt er að á næstu
árum megi kaupa ýmsa staðlaða
byggingarhluta erlendis frá. Hér á
landi heyrir til undantekninga að
hönnuðir og byggingarfyrirtæki noti
staðlaðar einingar. Staðlar, sem þó
eru til, eru lítið notaðir. Til dæmis
eru stærðir útihúsa í sveitum
reiknaðar af 6 aðilum, sem allir
nota eigin reglur þó í gildi sé staðall
um stærðarreikninga bygginga.
Opinberir aðilar geta ekki síst stuð-
lað að lækkun byggingarkostnaðar.
Stöðugt strangari kröfur reglugerða
valda hækkun byggingarkostnaðar.
Þessar kröfur má endurmeta með
það fyrir augum að lækka byggingar-
kostnað.
Til dæmis má leyfa aukna notkun
byggingarefna sem enn eru lítið
notuð hér á landi. Steinsteypa er að
því er virðist aðallega notuð af vana
í flestar gerðir húsa.
Erlendis eru byggð ódýr hús úr
byggingarefnum á borð við stál,
múrstein og timbur. Menn hafa flutt
inn múrstein og erlendir iðnaðar-
menn hlaðið úr honum ódýr hús.
Innfluttar stórar stálbyggingar eru
ódýrari en innlend hús úr stein-
steypu eða límtré.
T il þess að lækka byggingarkostnað
20