Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Side 62

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Side 62
Langsnið í skólabygingu. Heimar nemenda og gesta mætast. GRUNNPLÖN Nemendalínunni er skipt í tvennt af hótelbyggingunni. Það er heimavist og félagsaðstaða annars vegarogskólinnhinsvegar. Sunnan hótelsins liggur heimavistin í fimm hæða byggingu, sem teygir sig frá hótelinu í átt að ánni. Heimavistin sameinast í mötuneyti og félagsaðstöðu næst hótelinu. Þetta tengist skólanum með brú sem liggur undirhótelið íplani annarrar hæðar og gefur um leið aðgang að starfsmannainngangi hótelsins. Skólinn er tveggja hæða bygging með allar kennslustofur á jarðhæð, á efri hæð er bókasafn og lesaðstaða næst brúnni en fjær tilraunastofur og aðstaða kennara. Skólinn opnar sig á móti ánni en snýr baki í aðkomu hótelsins. Fjórar aðalhæðir hótelsins svífa yfir brú nemendalínunnar og er það einungis anddyri þess og veitingastaðursælkerans sem liggja á jarðhæð. Þessir tveir staðir tengj- ast aðkomu hótelsins. Veitinga- staðurinn liggur næst ánni og snýr að bænum. Báðir tengjast þeir hótelinu með lyftu og tröppu- kjörnum, sem ganga frá kjallara til efstu hæðar. Fyrsta hæð hótelsins inniheldur bari, ráðstefnu- og samkomusali auk veitingastaðar sem eingöngu þjónar hótelgestum. A næstu tveimur hæðum eru öll gistirými hótelsins og á efstu hæðinni er heilsurækt með sal, veggjatennis, sundlaug, barogheitir pottar með tilheyrandi veitinga- aðstöðu. Heilsuræktin hefur létt yfirbragð og tengist verönd á þaki hússins. I kjallara eru öll lager- og þjónusturými auk tækniherbergja. UPPBYGGING OG EFNIS- VAL Hótelið er staðsteypt súlnabygging með steyptum gólfplötum. Efsta hæðin og þak hússins eru úr stáli. Allar úthliðar eru úr gleri með utanáliggjandi stálgluggatjöldum til að stjórna áhrifum sólar. Neðri hæð skólans er staðsteypt, efri hæð úr stáli og gleri með stálglugga- tjöldum, þak úr stáli. Hús heima- vistar er með staðsteypta veggi en öll gólf og þak úr forsteyptum ein- ingum. LEIÐBEINENDUR Francoise -Helene Jourda Gilles Perraudin Finn Kolstad Neven Fuchs Mikac. ■ 60

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.