Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Síða 26

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Síða 26
AÐ BYGGJA OG BYGGJA OG BYGGJA HELGI HAFLIÐASON ARKITEKT. Alltaf er verið að byggja. Síðan hinn almenni borgari þessa lands sá fram á það að geta komið sér upp húsnæði hefur hann verið svo virkur þátttakandi í þeim verknaði að segja má með nokkrum sanni að það sé orðin ein af þjóðaríþróttum Islendinga að byggja. Jafnframt er það nánast höfuðskylda hvers manns, sem byggir hús, að hann byggi ódýrt, enda er augljóst að það hlýtur að vera betra að byggja ódýrt fremur en dýrt, nóg er við peningana að gera. Samt er í lagi að kosta nokkru til, svona aukalega, þegar sjá má fram á að dæmið ætlar nokkurn veginn að ganga upp. Það gæti t.d. verið með því að hafa útskornar fjalir á þakbrúnum, palisander í eldhúsinu eða gyllta klósettsetu. Umfram allt verður slíkur munaður að vera vel sýnilegur svo að allir geti séð hve smekklega hefur til tekist. Menngætasínsamtáþvíað ganga ekki of langt í að uppfylla eigin þarfir, heldur gera sem mest „eins og hinir”, því að auðvitað verður að hugsa um endursölu eignarinnar. Mig minnir að ég hafi heyrt hús- byggjanda guma af því hve hann hafi verið snjall að byggja sérlega ódýrt og vel heppnað hús handa sér og fjölskyldu sinni. Hann talaði við einn eftirsóttasta húsateiknara landsins og strax daginn eftir var teikningin tilbúin, „eins og sniðin OG BYGGJA fyrir þig!” hafði hann sagt. Samt kom í ljós að nokkra ágalla mátti finna á húsinu, t.d. hefðu barna- herbergin mátt vera stærri, of mikið rými fór í ganga og illa gekk að koma húsgögnum fyrir í skála og stofu. Því miður var enginn tími til að velta þessu fyrir sér áður en fr amkvæmdir hófust því verðbólgan æddi áfram og ef maður byggði ekki í dag yrði það langtum dýrara á morgun. Þegar hann byggði næst ætlaði hann að fara öðruvísi að, hann vissi nákvæmlega hvað hann ætti að gera, væri nánast með patentlausnir á hentugum bygging- araðferðum og í sérlega góðri að- stöðu til að byggja fyrir aðeins brot afþvíverðisemaðrirgerðu. Hann væri líka reynslunni ríkari en eins og allir vita er reynslan besti kennar- inn, a.m.k. sá kennarinn sem best er launaður. Þegar ég spurði hvað hann ætlaði að gera við mistökin, þ.e. gamla húsið, svaraði hann að það væri ekkert mál, hann gæti örugglega selt það, meira að segja með tölu- verðum hagnaði, því að eftirspurn væri mikil, húsið vel í sveit sett með frábæru útsýni og „ekta” gervi- bitar í stofuloftinu. Auk þess hefði hann verið svo heppinn að hafa boga yfir öllum gluggum, „og það er einmitt hátískan í dag”! Þeir sem byggja fyrir aðra eru líka snjallir að byggja ódýrt en þeir byggja stórar blokkir fremur en einbýlishús eða raðhús. Þá er um að gera að blokkin verði sem lengst eða sem hæst til þess að mögule ikar byggingakranans nýtist sem best. Það er bara verst hvað skipulagsmenn geta stundum þvælst fyrir, það er eins og þeir komi ekki auga á hvað hægt er að búa til stórkostlegar blokkir með tækninni! Meira að segja opinberir aðilar geta líka verið snjallir að byggja ódýrt. Það getur samt verið viðkvæmt mál ef hið opinbera ætlar að byggja frá grunni yfir einhverja starfsemi sína. Þegar farið er að undirbúa verkið koma fram margir snillingar sem vilja hafa vit fyrir hinu opinbera og segja að í fyrsta lagi sé byggingin ljót, í öðru lagi sé hún á kolvitlausum stað og í þriðja lagi væri nær að “Þegar ég spurði hvað hann ætlaði að gera við mistökin, þ.e. gamla húsið, svaraði hann að það væri ekkert mál, hann gæti örugg- lega selt það, meira að segja með tölu- verðum hagnaði,.” 24
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.