Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Síða 32

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1992, Síða 32
með tilboðum eða þeim samningum sem hagstæðastir bjóðast hverju sinni. Sumir bæta við að afnema þurfi meistarakerfi og uppmælingar- taxta. Ekki tek ég undir þær fulb yrðingar, en tel þó að meiri ögun í kerfinu væri til bóta. Þessar þekktu aðferðir hafa engu bylt í þá átt að lækka byggingar- kostnað enda hefur þeim kannski ekki verið fylgt markvisst. Oft virðist líka skorta í raun áhuga á því að leita ódýrustu leiða við húsbygg- ingar. Gjarnan hafa byggendur eða kaupendur þær óskir um gerð húsa sinna að þau geta ekki orðið ódýr, því þrátt fyrir alla umræðu um háan byggingarkostnað er enn verið að byggja of stór og íburðarmikil hús. Þama komum við kannski að kj ama málsins. Við þurfum að skilgreina hvað við viljum. Ef meiningin er að byggja eins ódýr hús og aðferðir okkar leyfa verður að hanna þau samkvæmt því og sá sem byggir verður þá að sætta sig við einfalda og íburðarlausa byggingu. Mikilvægustu ákvarðanir um kostn- aðinn eru teknar á teikniborðinu. Það er þar, sem hönnuðurinn og byggjandinn ákvarða gerð og stærð hússins og þar með kostnaðinn við það. Því má segja að val hönnuða sé mjög mikilvægt fyrir byggjandann og kann þá t.d. að skipta meira máli fyrir hann að hönnuður sé hæfur og reiðubúinn að leita bestu lausna en hvort þurfi að greiða honum 100.000 kr meira eða minna fyrir verkið. I raun má segja að hér sé nánast ríkjandi einstefna um að byggingar séu úr steinsteypu, þótt hús úr öðru efni sjáist inni á milli. Menn segja í gantaskap að þegar við byggjum steinhús byggjum við þrjú hús: eitt timburhús utan við steypuna, annað innan við hana og steinhús þar á milli. Síðan rífum við bæði timbur- húsin og hendum þeim en hirðum steinhúsið. Þessi lýsing er auðvitað ósanngjörn og tekur ekki tillit til tækniþróunar sem orðið hefur í byggingariðnaði. Engu að síður vekur hún þá spurningu hvort við þurfum ekki stöðugt að endurskoða aðferðir og efnisval ef draga á úr kostnaði. Svo lengi sem elstu menn muna hefur umræða um byggingarkostnað aðeins snúist um það hve hár hann sé og um nauðsyn þess að lækka hann. Hins vegar fer minna fyrir raun- hæfum aðgerðum í þá átt að meta stöðu okkar með samanburði við aðra, skilgreina vandamálið innan- lands og leita hagkvæmra leiða við gerð vandaðra og ódýrari bygginga. Við getum slegið fram þeirri fullyrðingu að byggingarkostnaður sé allt of hár hérlendis. En getum við svarað nokkru um hvaða kostnaður sé viðunandi og hvers vegna hann sé alltof mikill? Við gerum miklar kröfur til gæða, við viljum vönduð og rúmgóð hús. Byggingarkostnaður er afstæður: það er dýrara að byggja hús sem eru vönduð og rúmgóð. Hér að framan hefur eingöngu verið fjallað um stofnkostnað við bygg- ingar. Ekki hefur verið fjallað um rekstrar- og viðhaldskostnað en þeir þættir eru að sjálfsögðu mikilvægir hérlendis þar sem áraun á byggingar vegna veðráttu er meiri en víðast annars staðar. Iraunerþvíumein' földun að ræða þegar eingöngu er fjallað um stofnkostnaðinn. Það sem skiptir máli er “ævikostnaður” bygg- ingarinnar, þ.e. summa stofn-, við- halds- og rekstrarkostnaðar. Skal þá vakin athygli á því að hækkun á stofnkostnaði kann oft á tíðum að draga úr rekstrar- og viðhaldskostn- aði. Þvt getur vandað hús sem er dýrt í byggingu í raun verið ódýr- asti kosturinn, ef hægt er þannig að ná fram verulegri lækkun rekstrar- og viðhaldskostnaðaðar. ■ 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.