AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 36
eytt mengunarefnum og öðrum efnum í húsaskólpi
mjög hratt. Mælingar á næringarefnum í Faxaflóa
sýna ótvírætt að þegar út í flóann er komið verði ekki
vart við mælanlega aukningu næringarefna sem má
rekja til fráveitna á þessu svæði. Niðurstöður rann-
sókna sýna að í frárennslinu er lítið af efnasam-
böndum sem náttúran sjálf ræður ekki við að brjóta
niður svo framarlega sem henni eru búin skilyrði til
þess.
Flvað gerist svo ef fráveitukerfið stenst ekki þær
væntingar sem til þess eru gerðar eða uppfyllir ekki
ákvæði mengunarvarnareglugerðar? Fleilbrigðis-
nefndir, undiryfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, eru
eftirlitsaðilar með fráveitum og skólphreinsistöðvum
og munu fylgjast með og meta árangur. Það verða
fyrst og síðast niðurstöður rannsókna á því hvernig
viðtaki bregst við fráveituvatni sem skera úr um hvort
þörf sé á frekari hreinsun eða ekki.
Seyra er fastur úrgangur sem fellur til við annars
þreps hreinsun skólps. í vissu samhengi hefur seyra
verðmæta eiginleika til ræktunar. Þess vegna getur
verið rétt að hvetja til notkunar hennar þar sem hún
fellur til, að því tilskildu að hún sé notuð á réttan hátt.
En ekki má heldur gleyma því að það fylgja því viss
vandkvæði og ákveðinn kostnaður að losna við
seyru. Með EES-samningnum gengu í gildi reglur
um notkun seyru í landbúnaði, þ. á m. um hreinsun
seyru og styrk þungmálma í seyru sem bera má á
ræktað land. Heimilt verður að nota óhreinsaða
seyru, en ekki er búið að móta þau skilyrði sem sett
verða um notkun á óhreinsaðri seyru hér á landi.
Væntanlega munu skilyrðin fyrst og fremst miðast
við vatnsvernd og heilsuvernd vegna smithættu af
völdum gerlamengunar. í Noregi eru til drög að regl-
um um notkun seyru í landbúnaði. Þar er m.a. að
finna ákvæði um að óheimilt sé að dreifa seyru á
land yfir vetrarmánuðina og einnig hafa Norðmenn
miklar áhyggjur af mengun vatnsbóla.
Umhverfisráðuneytið hefur lagt áherslu á að vinna
að fráveitumálum og nýverið skilaði nefnd skýrslu til
umhverfisráðherra um úttekt á fráveitumálum og
stefnu í þessum málaflokki. í nefndinni áttu sæti
fulltrúar umhverfisráðuneytis, Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Samtaka tæknimanna sveitarfélaga,
Hollustuverndar ríkisins og Siglingamálastofnunar.
Jafnframt hafa fráveitumálin verið kynnt í öllum kjör-
dæmum landsins. Á vegum fráveitunefndarinnar var
haft samband við öll sveitarfélög á landinu og búið
er að heimsækja flesta þéttbýlisstaði og ræða þar
við tæknimenn sveitarfélaganna. í Ijós kom að þó
að ástand þessara mála sé víða í ólestri þá er töluverð
hreyfing í þá átt að bæta þar úr. Um allt land þurfa
sveitarfélögin á næstu árum að fara út í miklar fram-
kvæmdir á sviði fráveitumála. Kostnaður við úrbætur
sem þarf að gera getur verið töluverður og því er
mikilvægt að skipulega sé staðið að framkvæmdum
svo að það fjármagn sem veitt er til þessara mála
nýtist á sem bestan hátt. ■
F VERÐIÐ SKIPTIR M Á L I !
SyQuest
REMOVABLE
TECHNOLOGY
SKIPTIDRIF
SONV
GEISLADRIF
Quantum
HARÐIR
DISKAR
LITASKJÁIR
HÁGÆÐA-
PRENTARAR
HRÖÐUNAR-
KORT
SV/HV SKJÁIR OG
HRÖÐUNARKORT
LITASKJÁIR
daystar
MOBIUS
<SUPERMAC
^00^ TECHNOLOGY
SKJÁIR
Forrit & jaðarbúnaður fyrir Macintosh tölvur
PóstMac hf. - Sími 91 -666 086