AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 92
Mynd 1.
Mynd 2.
GÓLF
flötur snertingarinnar
GEIRHARÐUR ÞORSTEINSSON
ARKITEKT
Ef arkitektúr er list allra skilningarvita þá
er gólfið flötur snertingarinnar. Saga gólf
sins er jafngömul sögu hellisbúans.
Hellisgólfið hefur verið af mold eða steini
en brátt hafa skinn þakið þau gólf og síðar hefur
vefnaður komið til sögunnar. Gólfið hefur þá sérstöðu
innan arkitektúrsins að tengjast umhverfinu órjúfan-
lega, það er framhald af yfirborði jarðar,framhald af
klöppinni, mölinni, veginum, stéttinni.
Þegar gólfefni eru valin þarf að taka mið af mörgu,
endingu, þægindum, útliti, viðhaldi og hreingerningu.
Á íslandi þarf að hafa sérstaklega í huga að langan
tíma árs ríkja umhleypingar í veðrinu sem valda því
að sporaslóð verður allsstaðar í húsum þar sem úti-
skór koma nærri. Ennfremur eru verð og verklegar
forsendur mikilvægar.
mynd 1 gata/hús
Sem dæmi er tekin íbúð í sambýlishúsi í Reykjavík
frá 1923, sem undirritaður valdi gólfefnin í nýlega.
Þetta hús tengist sínu umhverfi Þingholtunum með
gangstéttinni. Það er einkenni á gamla bænum að
gangstéttar ná upp að húsveggjum. Gangstéttin er
tengill byggðarinnar.
mynd 2 inngangur
Inngangurinn í húsið er beint af götunni. Því verða
tengslin við húsið hið innra mjög náin. Myndin sýnir
hvernig þrepin ganga fram í stéttina. Stéttin sem er
hluti hússins verður einnig hluti götunnar. Þetta er
dæmi um hvernig tenging svæða á sér stað. Eitt
grípur inn í annað, eitt svæði heldur sjálfstæði sínu
en skilar eða tekur við manneskjunni yfir línu sem er
ekki skiptilína. Þrepin eru úr íslensku grágrýti og
gangstéttarhellurnar eru orðnar nægilega veðraðar
til að falla að því. Það má sjá hvernig gólfefni stiga-
gangsins kíkir útundan þröskuldinum, gefur fyrirheit
um það sem bíður fyrir innan. Stiginn er perlan í
þessu húsi. Allt stigahúsið, þrep og pallar eru lögð
hvítum marmara. Var þetta munaður eða hygg-
indi?...VÍst er hinsvegar að þetta atriði hefur öðru
fremur sett höfðinglegt mark á þetta hús.
90