AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 38

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 38
FRAMKVÆMD ákvœða mengunarvarnarreglugerðar nr. 48/1994 um hreinsun skólps DR. GUNNAR STEINN JÓNSSON HOLLUSTUVERND RÍKISINS Inýrri mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994 eru nokkur ný ákvæði um fráveitur, m. a. um hreinsun skólps. Þetta er í samræmi við tilskipun EB um skólphreinsun /4/, sem er hluti af EES- samningnum. Stefna EB á umhverfissviðinu er að beitt skuli fyrirbyggjandi aðgerðum við upptök mengunar, að beitt sé bestu tækni sem völ er á (BAT), og að sá sem mengun veldur greiði kostnaðinn af varnaraðgerðum. Reglurnar tiltaka lágmarkskröfur vegna skólpleiðslna, safnræsa og hreinsivirkja. Setja skal ákvæði um frá- gang fráveituvatns frá iðnfyrirtækjum. Einnig eru kröfur um eftirlit og um meðferð seyru. í reglugerðinni er tiltekið hvenær framkvæmdum skuli lokið til að uppfylla þessar kröfur. KRÖFUR UM HREINSUN SKÓLPS FRÁ ÞÉTTBÝLI Hreinsikröfur eru miðaðar við hversu viðkvæmur viðtakinn er. Sérstök ákvæði gilda fyrir síður viðkvæm svæði og önnur fyrir viðkvæm svæði. Almennri flokkun í viðkvæm og síður viðkvæm svæði skal vera lokið fyrir 1. júlí 1994. Almenna krafan, sem gildir ef viðtaki fellur ekki undir skilgreiningar um síður viðkvæma eða viðkvæma viðtaka, er að allt skólp skuli hreinsað með tveggja þrepa hreinsun eða sambærilegri hreinsun. Tveggja þrepa hreinsun felur venjulega í sér forhreinsun, líf- fræðilega hreinsun og eftirfellingu. Forhreinsun með botnfellingu þar sem við tekur sandsía er skilgreind semtveggja þrepa. Frekari hreinsun skal beita þegar skólpi er veitt í viðkvæm svæði. Fer það eftir atvikum hvað hreinsa þurfi frekar úr skólpinu. Skylt er að beita a. m. k. eins þreps hreinsun þegar skólpi er veitt í síður viðkvæma viðtaka. Eins þreps hreinsun felur í sér aflfræðilegar og/eða efnafræði- legar aðferðir til að fjarlægja lífrænar agnir og svif- agnir úr skólpi, t. d. setþró og rotþró. KRÖFUR TIL ATVINNUREKSTRAR Sérstök ákvæði eiga við atvinnurekstur sem losar skólp í safnræsi. Ákvæði þessi skulu vernda heilsu starfsfólks sem vinnur við fráveitur, vernda búnað og starfsemi fráveitunnar og varna því að viðtaki spillist. Einnig er krafist sérstakra ákvæða um hreinsibúnað í starfsleyfi atvinnurekstrar (m. a. fiskvinnslu) sem losar meira en 4.000 p.e. af skólpi, sem ekki er leitt í fráveitu fyrir þéttbýli og flytur efni sem eyðist auð- veldlega í náttúrunni (lífrænan úrgang). ísland er aðili að EES - samningnum og Óslóar- og Parísarsáttmálanum, en þar eru samþykktir um að draga úr losun tiltekinna hættulegra efna. Á grund- velli EES - samningsins /5/ eru ákvæði í mengunar- varnareglugerð um að losun tiltekinna hættulegra efna sé bönnuð nema í samræmi við ákvæði reglu- gerðarinnar og starfsleyfa. Einnig er kveðið á um að draga skuli úr losun annarra tiltekinna efna. Þessum ákvæðum verður ekki framfylgt með kröfum til frá- veitukerfa sveitarfélaganna. Ákvæðunum verður fyrst og fremst unnt að framfylgja með hertum kröfum til starfsleyfisskylds atvinnurekstrar og leiðbeiningum til atvinnurekstrar sem ekki er starfsleyfisskyldur. Einnig með fræðslu til almennings. Vegna takmark- ana á innflutningi og dreifingu eiturefna er vísað til eiturefnalöggjafar. RANNSÓKNIR Gert er ráð fyrir að flest sveitarfélög við sjávarsíðuna geti nýtt sér ákvæðin fyrir síður viðkvæm svæði þannig að eins þreps hreinsun sé fullnægjandi. Eins þreps hreinsun yrði í flestum tilvikum síubúnaður, sbr. fyrirætlanir Reykjavíkurborgar eða botnfelliþró. Sjór eða hafsvæði getur talist síður viðkvæmt, ef losun skólps hefur ekki skaðleg áhrif á umhverfið vegna formfræðilegra, vatnafræðilegra eða annarra sér- stakra aðstæðna í vatninu. Sérstaklega er tekið fram að þetta eigi við um opna flóa, ármynni og annan 36
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.