AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 47

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Side 47
um bókTrausta Valssonar LAND SEM AUÐLIND ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON VERKFRÆÐINGUR Ahaustmánuöum kom út eftir Trausta Valsson, arkitekt og skipulagsfræöing, ritverkiö Land sem auðlind. Eiginlega er rit þetta ráðstefnurit frá fundi á Þing- völlum, sem haldinn var hinn 11. september á síðasta ári, og fjallaði um skipulags- og byggðamál Suðvest- urlands. Á ráðstefnunni voru haldin fjölmörg erindi um byggðamál þessa landshluta, enda stóðu fjögur landshlutasamtök sveitarfélaga á svæðinu að ráð- stefnunni. Erindi Trausta og rit hans voru þó í brenni- depli og hafði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, eins konar formála á fundinum, eins og reyndar í ritinu sjálfu. Hér á eftir verður reynt lítillega að skýra frá efni ritsins þó allmikið vandaverk sé. HVERS KONAR BÓK? Ef setja ætti einhvern stimpil á ritið Landsem auðlind, þ.e. hvers konar bók þetta er, þá vefst manni tunga um tönn. Ekki er hægt að kalla þetta sagnfræðirit, ekki er þetta skipulagsgreinargerð og ekki er þetta beinlínis vísindaleg úttekt á skipulagsmálum þessa landsvæðis. Þetta er einna næst því að vera rit til að vekja umræður, eins konar „debatt-rit“. Slíkar bækur eru sjaldséðar hér á landi, a.m.k. á íslensku um íslensk málefni. Nokkrir hafa samt ritað þannig bækur, en því miður hefur verið nokkur skortur á að umræður hafi vaknað í kjölfarið og varla þekkist nú á tímum að menn taki upp á því að rita annað rit á móti og efna þannig til skemmtilegra umræðna eða jafnvel deilna um einhver mál. Það virðist eins og enginn nenni að skrifa um grundvallarmál þannig að taka megi afstöðu að lestri loknum og síðan efnatil skoð- anaskipta á opinberum vettvangi. Mál eins og t.d. einkavæðing opinberra fyrirtækja virðast hafa lent í því, að þeir sem láta í sér heyra láta sér nægja að fjalla um málefnin eins og smáatriðin séu aðalatriði og án allrar yfirsýnar. EFNI BÓKARINNAR Land sem auðlind skiptist í 12 nokkurn veginn jafn- stóra kafla. Fyrstu fimm kaflarnir taka fyrir sögulega þróun byggðar á íslandi allt frá landnámi til okkar daga. Þar er þó að finna ýmislegt sem vísar til sam- tímans og einnig er gerð tilraun til að skýra eðli stjórn- skipunar fyrr á öldum og myndunar hennar með geo- metrískum hliðstæðum, kristallamynstri. Þessi aðferð við að skoða og greina landsvæði hér á landi er ný, en fyrst var henni beitt í Suður Þýskalandi fyrir u.þ.b. 60 árum. Hér má líta á að fyrstu skrefin í beitingu aðferðarinnar séu stigin en langt frá því, að nokkur endanleg úttekt eða niðurstaða sé fengin. Næstu fjórir kaflarnir taka fyrir núverandi ástand og „Akraborg i.Suöurbyggö Þrjú meginrými á SV-landi mynda byggðaþríhyrning, og í miðjunni er höfuðborgarsvæðið. Eftir helstu vegabætur er aðeins um 55 km vega- lengd til fjarlægari staða í þessari nýju dreifbýlisborg. Byggðaþríhyrningur SV-lands fellur vel að kristallamynstrinu. 45
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.