AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Síða 51

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Síða 51
veldisárunum (1920-21), og orkustöðin fullnægði með stækkunum orkunotkun höfuðstaðarins í 16 ár. Ljósafossvirkjun kom í gagnið 1937 og Laxárvirkjun 11939. Síðan hefir undirbúningur og framvinda í virkj- unarmálum verið nokkurn veginn órofin. Virkjana- framkvæmdir eru jafnan byggðar á traustum vísinda- legum grundvelli. Undirbúningur og öll vinna við steypu mannvirkjanna hafa því verið sérlega vönduð. Þessu hafa fylgt miklar rannsóknir á steypu og af þeim leitt efnisþróun, t.d. í sambandi við varnir gegn alkalívirkni. Sumarið 1937 var steyptur fyrsti vegarkaflinn hér á landi á Suðurlandsbraut. Vegurinn var 6 m breiður og spottinn alls 350 m langur, steyptur í 12,5 sm þykkum flekum, 3x12 m stórum með „vibróbjálka- aðferð“. Það voru miklar vonir tengdar þessu framtaki sem Gústaf E. Pálsson lýsti í TVFÍ - grein. Þegar til upp- gjörs kom var Ijóst að byggingarmátinn var of dýr, og það sem verra var vegurinn slitnaði fljótt undan umferðinni, þóttekki væri hún mikil. Steypuskemmdir voru reyndar líka áberandi í öðrum mannvirkjum. Aðrar vegsteyputilraunir voru ekki gerðar fyrr en 20 árum síðar. Það voru því eðlilega mikil undur fyrir greinarhöfund að ferðast yfir hálf Bandaríkin í jan. 1942 og vera ávallt á steinsteyptum vegum sem voru eins og nýlagðir. Það jók einnig á aðdáun hans á þess tíma tækni að komast í náin kynni við rannsóknastofnun sementsframleiðendanna þar í landi (Portland Cement Association). Það var bjart framundan, þrátt fyrir stríð 1944. Lýðveldi var stofnsett. Verkfræðing- um var Ijóst að innan tíðar yrðu þeir að fást við úrlausn margvíslegra stórra verkefna á sviði virkjana og tæknivæðingar. Um haustið rita tveir þeirra greinar í TVFÍ um þörfina fyrir rannsóknastofnun. Annar, Jón Gunnarsson, verkfr. frá MIT, þekkti gróskuna í byggingarstarfsemi í Bandaríkjunum sem byggðist á öflugri framvindu í byggingar- rannsóknum þar. Hann fjallaði um rann- sóknir á byggingarefnum og verklegar framkvæmdir. Hinn, Gústaf E. Pálsson, verkfr. frá T.H. Dresden, skrifaði um ástand vega og gatna. Báðir röktu þörfina fyrir byggingarrannsóknir hér. Formlega voru byggingarrannsóknir teknar upp 1946 við Atvinnudeild Háskólans. í hlut greinarhöfundar kom að stýra þeirri starfsemi frá 1948-1985, aðvísufyrstíhlutastarfi. Aðbúnaðurvar frumbýlingslegur í upphafi og fjárráð aðeins til launa- greiðslna, en við það voru fjárveitingar til starf- seminnar jafnan miðaðar. Rannsóknirnar voru aðal- lega efnisprófanir og meira á sviði vegagerðar en steinsteypu. Samt urðu þær til þess að draga fram í dagsljósið að efni úr grjótnámi í Ártúnshöfða hentaði hvorki í steypu né til vegagerðar. Steypuskemmdir, einkum frostskemmdir, voru mjög tíðar, og eins var um malbiksskemmdir. Til þess að leita orsakanna var nauðsynlegt að hefja markvissar rannsóknir enda framundan stórátak við virkjun Neðri-Fossa í Sogi, og því var það kostur að hafa rannsóknastofu þótt aum væri og illa búin. Þessi miklu framkvæmdaáform voru um leið hvatning til áhrifaaðila að búa betur að rannsóknavísindum. Því var þá komið til leiðar að Marshall-aðstoð fékkst til þess annars vegar að kaupa vandaðan búnað fyrir stofuna, 601 Universal pressu og 150 t þrýstiþolspressu, hins vegar til að greiða fyrir för sérfræðings til heimsókna á fjölmargar rannsóknastöðvar í Bandaríkjunum. Hvortveggja aðstoðin hafði grundvallarþýðingu fyrir byggingar- rannsóknir hér á landi. Árangur ferðarinnar, sem farin var af greinarhöfundi, var margvíslegur, persónuleg tengsl við rannsóknaaðila og stofnanir, kynni við prófanir á alkalívirkni, nýjar aðferðir við prófanir og hönnun á malbiki o.fl. o.fl. Skortur á efnisþekkingu og framleiðsluvöndun var Mynd II. Veðrunarþol steypu eykst við notkun loftblendis. Myndin sýnir, að 4-5% af loftblendi er nóg til þess að verja steypuna Molna 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.