AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 52

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 52
orsök mikilla fjárútgjalda á þessum tíma vegna skemmda í steypu. Við þessu þurfti að bregðast með rannsóknum og upplýsingastarfsemi, en skortur var á fjármunum til að kosta störfin. Samtvargefið út fjölrit snemma árs sem nefndist Loftblendi í stein- steypu. Loftblendi var nýyrði, en ritið byggðist mikið á upplýsingum sem fengust í Ameríkuferðinni 1952. Áður hafði þó verið haldið erindi í VFÍ um varnir gegn steypuskemmdum og efnið fyrst verið prófað 1950. Loftblendi var fyrst notað hér við virkjunarfram- kvæmdir við byggingu írafossstöðvarinnar. Notkun loftblendis var afar þýðingarmikil nýjung fyrir ísl. byggingariðnað, eirik'um vegna þess hversu harða frostveðrun við þúum við. Það var líka kostur hversu snemma var almennt farið að nota það í þær steypur sem þurftu að standast veðrun. Fjölritið frá 1952 er nú orðið úrelt, en önnur rit hafa komið í stað- inn. Loftblendinotkun varð strax algeng í byggingariðn- aðinum. Það gerðist þó ekki bara fyrir það að loft- blendið dró svo mikið úr steypuhreiðrum og frost- skemmdum. Nei, 4% aukaloft í steypunni sparaði 4% af steypu. Á þessum tíma var vani að steypa „veggjasteypur" með aðeins 200 kg/m3 af sementi. Fjögur prósent loftblendi í slíkri steypu jók raunveru- lega festu hennar, auk þess sem steypan varð svo miklu meðfærilegri. Ofangreindum áhrifum má vel lýsa með tveim línuritum, mynd I og II sem tekin eru upp úr fjölritinu. Loftþlendi ver eingöngu pastann fyrir frystiþenslum. Frostþol steypu er hins vegar einnig háð þoli fylli- efnanna og samsetningu steypunnar. Vitneskjan um fyrirhugaða framleiðslu á innlendu sementi, sem verða myndi mjög alkalíríkt, og um fyrirhugaðar stórframkvæmdir í virkjanamálum hvatti til rannsókna á possolanvirkni ýmissa jarðefna. Nokkur búnaður var keyptur og umtalsverðar rann- sóknir gerðar á árunum 1956-61, en þá starfaði Hörður Jónsson efnaverkfr. aðallega að þeim rann- sóknum. í Ijós kom að virkni hinna prófuðu sýna var mjög misjöfn. Vitað var um virkni vikurglers en gler- kennt basalt og móberg reyndust einnig virk. E.t.v. varð þetta til þess að farið var að framleiða hér pos- solansement (Faxasement) með íþlöndun móbergs, sem kom upp með skeljasandinum. Virkni þess reyndist þó lítil. Þótt rannsóknir þessar hafi komið að litlu beinu gagni urðu þær mjög mikilvægar vegna óþeinna áhrifa. Þau tæki sem voru notuð komu að gagni við ákvarð- anir á áhættum vegna alkalíþenslna í hinum ýmsu steypum, sem áformaðar voru fyrir margvíslegar stór- framkvæmdir. Þetta hafði áhrif við hönnun á stóru virkjununum okkar enda mun steypa í þeim vera í góðu lagi. Það var einnig á grundvelli slíkra þenslu- mælinga að varað var við notkun sjávarefnis, sem sýnt hafði slíkar þenslur. Þessari aðvörun var mót- mælt með skírskotun til þess að áhrif alkalíþenslna í íbúðarhúsum væru hvergi þekkt og bannið myndi verða til þess að steypuverð hækkaði. Víst er að forvarnaraðgerðir gegn alkalívá myndu hækka eitthvað grunnkostnað, en hver er sparnað- urinn á móti? Þegar Þjórsárvirkjun við Búrfell var í undirbúningi var hægt að fá reyndan sérfræðing, frá Bureau of Reclamation, sem er sérstök rannsókna- stofnun fyrir undirbúning vatnsaflsvirkjana í Banda- ríkjunum, til þess að leiðbeina um notkun á rann- sóknaniðurstöðum. Þetta gat hins vegar Borgarverk- fræðingur ekki gert, því alkalívirkni í húsbyggingum var þá ekki þekkt. Á þessum tíma þurftum við líka að sæta erlendu eftir- liti við virkjanaframkvæmdir okkar, til þess að tryggja lánafyrirgreiðslur. Nú er flestum Ijóst að hér á landi eru sérfræðingar sem eru fullfærir um að meta gæði steypu og steyptra mannvirkja, og þeir þekkja hér betur allar aðstæður en erlendir menn. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins var stofnsett árið 1965. Það var stór áfangi í þróunarsögu rann- sókna í þágu byggingarstarfseminnar. Að stofnuninni réðust líka brátt hæfir sérfræðingar til rannsókna og fræðslustarfsemi. Segja má líka að síðan hafi ekkert meiriháttar mannvirki verið byggt í landinu án forrannsókna á stofnuninni. Það kom í hlut dr. Guðmundar Guðmundssonar að fylgja eftir mælingum á alkalívirkni í fylliefnum og steypum. Óttinn við alkalívá og þversagnakennd um- ræða um þessa hættu leiddu til þess að leitað var til fremstu ráðgjafa á verksviðinu, og í framhaldi af því kom dr. Gunnar M. Idorn hingað. Að ráði hans var sett á laggirnar nefnd, „til að kanna efnabreytingar og þar af leiðandi grotnun í steinsteypu". í nefndina voru valdir fulltrúar framleiðenda og notenda stein- steypu ásamt fulltrúum stofnunarinnar og iðnaðar- ráðuneytisins. Þessi „regnhlífasamtök" steinsteypu- iðnaðarins höfðu í upphafi það markmið að verjast áhrifum alkalívirkni, en víkkuðu sjálfviljug viðfangsefni sín þannig að þau spanna nú heildarsviðið. Nefndin, 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.