AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 89

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 89
MIDTERMOLEN. - götumynd. Af þessum þremur stöðum er Midtermolen kominn lengst, en gert er ráð fyrir að öllum framkvæmdum þar Ijúki seinna á þessu ári. Arkitektinn að þessum byggingum, Palle Leif Hansen, valdi þá leið að byggja þarna allt frá grunni og nota ekki þær byggingar sem voru fyrir. Þetta gerir það að verkum að hægt hefur verið að byggja mjög heildstætt og tæknilega fullkomið umhverfi sem að öllum líkindum mun henta fyrirhugaðri starfsemi mjög vel. Fyrir þessum framkvæmdum stendur verktaka- fyrirtækið C.G.Jensen A/S. Þetta fyrirtæki hóf starf- semi árið 1931 en það er núna hluti af „Skanskakon- cernen“ en það fyrirtæki er eitt stærsta verktaka- fyrirtæki í Evrópu með verkefni í fleiri en 30 löndum. (Þetta fyrirtæki hefur meðal annars tekið þátt í gerð jarðganganna við Breiðadal/Botnsheiði í samvinnu við ístak og norska fyrirtækið „Selmer Anlegg"). Öllum framkvæmdum við svæðið verður lokið á 2 1/2 ári. Aðferðina sem notuð er við skipulag fram- kvæmdanna kalla þeir 3T (Total Tids Tænkning) og hefur hún gefist vel við skipulag álíka framkvæmda. Við þessar framkvæmdir vinna stöðugt um 250 manns. í heild verður reist á þessu svæði blönduð byggð með skrifstofuhúsnæði, íbúðum og veitingahúsum, samtals um 51,000 m2 að stærð. Hluti af þessu eru 8 íbúðarblokkir, samtals 14,300 m2 að flatarmáli. Á jarðhæð eru 170 bifreiðastæði fyrir gesti og 370 stæði í kjallara fyrir íbúa og starfsfólk. Mjög miklar kröfur um gæði eru gerðar í öllum þessum byggingum. Hvarvetna eru notuð bestu fáanleg efni og mikil áhersla er lögð á allt handverk. Þarna er umfram allt reynt að mynda gott og þægilegt vinnuumhverfi fyrir fólk. Á þrjá vegu við þessa byggð geta menn svo lagt snekkjum sínum eða skroppið í siglingu til þess að lyfta andanum. MIDTERMOLEN liggur í hjarta Kaupmannahafnar og í góðum tengslum við aðliggjandi samgöngukerfi og þéttbýli. Hægt er að kaupa þarna skrifstofuhúsnæði eða leigja, en ársleiga á m2 er um 16,000 ísl.kr. Þótt mikið sé til af skrifstofuhúsnæði í Kaupmannahöfn eru byggjendur langt frá því að vera svartsýnir og telja að mikið vanti ennþá af mjög góðu skrifstofu- og íbúðarhúsnæði sem stenst alþjóðlegar gæðakröfur og getur auðveldlega tekið þeimbreytingum sem ný tækni mun hafa í för með sér á næstu árum og ára- tugum. Við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn svipar aðstæðum að 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.