AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 93

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Page 93
mynd 3 anddyri Þegar endunýjuð eru efnin á gólfum íbúðarinnar hlýtur það að gerast undir áhrifum af aðkomunni. Gólf íbúða áður fyrr voru undantekningarlítið með brúnum linoleumdúk. í millitíðinni voru næstum öll slík gólf endurnýjuð með teppum. Nú varð spurningin því hvað skyldi koma í staðinn fyrir teppin, þau voru slitin og full af ryki. í anddyri koma menn á útiskónum.fara á sokkana eða í inniskóna. Þarna er erfitt að verjast bleytu og óhreinindum. Hörð efni sem skila bleytu og óhreinindum beint í sokka eða inniskó eru því óheppileg. Fyrir valinu varð flísamotta út í horn sem fullnægir öllum kröfum sem gera þarf til efnis í anddyri. Hún er laus á gólfinu og má setja í þvott eða hreinsun þegar þörf krefur. Kostur er að geta víxlað flísum þegar þær slitna mishratt. mynd 4 borðstofa í borðstofu krefjumst við oft hreinlætis og hlýleika. Nokkur efni koma til greina, s.s. gólfdúkur, korkur, jafnvel leirflísar eða parket. Þarketið varð fyrir valinu. Þar með var ákveðið hvað kæmi á eldhúsgólfið og svefnherbergin. Siður er að leggja parket þannig að endinn snúi að glugga. Þá ber minna á ójöfnum milli borða. Ef hornrétt samhengi eru farin að virka mjög ströng í íbúðum eða gangar langir og þrúgandi er hægt að hafa upplífgandi áhrif á það með því að leggja parket á ská. mynd 5 stofa Stofan tengist borðstofunni. Það er ekki sjálfgefið að hafa sama efni þar. Stofu viljum við gjarnan lyfta upp úr hversdagsleikanum, það gólf þarf ekki að vera strangpraktískt. í þessu tilfelli verður nærtækt að grípa til marmara þar sem tónninn var gefinn í stig- anum. Á marmara verðum við að leggja eitthvað af mottum, hann er kalt efni. mynd 6 baðherbergi Baðherbergið er á þeim stað í húsinu sem það var upphaflega, það var innangengt í það úr litlu svefn- herbergi. Þá var gólfið lagt svörtum og hvítum flísum og á veggjunum voru þær upp í axlarhæð með skrautbekk efst. í millitíðinni var þetta húsnæði starf- rækt um langan tíma sem skrifstofa og þegar ég tók við því til að starfrækja þar vinnustofu, henti mig sú svívirða að Ijúka við að hreinsa út baðherbergið með öllu sem því tilheyrði. Nú er þetta bað komið í nýjan búning. Flísarnar fundust ekki aftur en marmarinn fer því vel. Marmarinn er þó fótkaldur og mottan því ómissandi. Sú á myndinni er af tíbetskum uppruna. 91 ÉÉt.1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.