AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1994, Blaðsíða 94
Til að fullnægja gömlum draumi um rýmið í bað-
herbergi var haldið opnu á milli þess og herbergis
framan við, þannig eru fata- og baðherbergi í einu
rými.
mynd 7 þvottaherbergi
Þvottaherbergið opnast út á litlar norðursvalir. Áður
var þetta bakstigi fyrir aðdrætti og hjú. Gólfið í þessu
herbergi er, samkvæmt formúlunni, vatnshelt með
niðurfalli, þ.e. þéttað, kíttað, spartlað og stíflakkað.
Ofan á því er svo motta sem hindrar ekki vatn að
komast í niðurfallið. Motta á þessum stað getur orkað
tvímælis en svalahurðin stendur oft með rifu lang-
tímum saman og þá er málað gólf kalt að stíga á
það.
mynd 8 Dæmi frá Potrúgal; inngangur, þrep og
tröppur.
Láréttir fletir, lóðréttir og gólflisti hvert með sínum
sérkennum en þó úr sama efni. Samspil veggja og
gólfs liggur í kontrasti með tvennum hætti, annars-
vegar í litunum þar sem terrakottan á veggjunum og
kóbalt á gólfinu styrkja hvort annað og hins vegar í
því að veggirnir eftirláta gólfinu alla ornamentíkina,
þ.e. leikinn með mynstur og minni.
Við getum margt lært af gömlum menningarþjóðum
um meðferð og viðhorf til gólfa. Við komumst samt
ekki hjá því að leysa þau mál að okkar hætti fyrir
okkar aðstæður. Mestu skiptir að virða gólfið sem
listrænt viðfangsefni, hafa í huga að gólfið gefur okkur
jarðsamband, þar er punkturinn sem við stöndum á
og það leiðir í sálina. ■
92