AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Page 20
Arkitektar og byggingameistarar framtíöar?
samskiptum sem eiga sér stað hverju sinni. Þegar
barn leikur sér fer það úr raunveruleikanum inn í heim
ímyndanna. Það tjáir tilfinningar sínar í gegnum leik-
inn og fær útrás fyrir þær. í leiknum þjálfa börn skiln-
ing á aðstæðum og að geta sett sig í spor annarra.
Leiksvæði sem er einungis stórt opið rými býður
gjarnan upp á hlaup og hávaða og er því ekki hvetj-
andi fyrir þykjustuleik og náin tengsl. Þau minnstu
sitja oft hrædd úti í horni og horfa á. Yngri börn eru
mjög hrifin af litlu rými. Með þúfum, trjárunnum, hæð-
um og stórum steinum er hægt að útbúa mörg lítil
leiksvæði. Það gefur meiri möguleika á öryggi að
geta leikið sér án truflunar og ímyndunaraflið blómst-
rar.
Leikurinn krefst mikillar einbeitingar, atburðarásin er
ekki fyrirfram ákveðin. Að leika sér í umhverfi sem
er öruggt gefur börnunum tækifæri á að einbeita sér
lengur við sama leikinn. Þeim mun þróaðri sem
leikurinn er þeim mun meiri einbeiting og upplifun
verðurhjábarninu. Börn eru fær um að halda áfram
skapandi starfi dögum saman ef þau eru örugg og
án mikillar truflunar og þurfa ekki alltaf að byrja á
sama leiknum frá byrjun. í leik þjálfast getan að
gera sér í hugarlund. Sem dæmi um það er að mold
og vatn eru bara mold og vatn í huga barnsins. En
ef barnið fær að leika sér með mold og vatn, er ekki
ólíklegt að barnið fái hugmynd sem það getur útfært
á sinn máta, t.d. búið til drullukökur, bílavegi, bygg-
ingar og fleira. Þannig getur umhverfi verið stöðug
uppspretta sköpunar og leikja.
Verðmætamat okkar er allt annað en barnanna, einn
trékubbur getur skipt barnið mjög miklu máli og verið
allt í senn blll, bátur eða hús en komið okkur fyrir
sjónir sem gamalt drasl. Eitt af þvl sem einkennir
leikinn er að geta séð hlutina á mismunandi hátt.
Hægt er að segja að barnið gangi inn og út úr raun-
veruleikanum eftir hentugleika og upplifi aðstæður
á marga vegu. Börn sem fá að njóta sín á þennan
hátt verða skapandi og sveigjanleg I hugsun. Nauð-
synlegt er að börn fái tækifæri til að skapa sín leikföng
sjálf. Þau geta nýtt sér verðlaus efni s.s steina, skeljar,
trébúta o.fl.til að búa til kassabíl, flugvélar, báta,
dúkkuhús svo eitthvað sé nefnt. Með þessu er
sköpunargleði barnanna örvuð og þau bera meiri
virðingu fyrir leikfanginu.
Umhverfi barnsins á að vera tilbreytingaríkt og
spennandi. Það á að bjóða upp á sveigjanleika og
að barnið geti breytt út af venjum, t.d. gefa möguleika
18