AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Page 42
PÉTUR JONSSON LANDSLAGSARKITEKT
LEIKSKÓLALÓÐ VIÐ EGGERTSGÖTU
Byggjendur eru Reykjavíkurborg og
Félagsstofnun stúdenta. Lóðinni var
lokið sumarið 1993.
Leikskólinn er á neðstu hæð í 3ja hæða
fjölbýlishúsi nýrra stúdentagarða, Ásgarði. Lóðin er
frekar lítil og liggur nær öll í ræmu meðfram húsinu
sem síðan opnast í átt að friðuðu klapparholti. Lóðin
liggur öll á móti suðri en húsið gefur skjól fyrir norðan-
átt.
Meðfram húsinu öllu er stór dvalarstétt, fyrir borð og
bekki og þar er rými til rólegra athafna. Inngangur
leikskólans er öðrum megin á dvalarstéttinni en
litaðar hellur í dvalarstéttinni mynda eins konar
merkta leið eftir henni endilangri. Næst inngöngum
og meðfram dvalarstéttinni eru höfð leiktæki ætluð
Brúin liggur yfir sandkassa að jafnvægistækjunum
imnnnir
1 I ■ py nii 11J
P«M
Séð frá hjólastíg að leikkofum.
yngri börnum, s.s. lest, hestar og sandkassi. Brú er
yfir sandkassann sem tengir dvalarstéttina við 2
leikkofa handan við brúna. í tengslum við leikkofana
og sandkassann eru jafnvægistæki.
Fjær dvalarstéttinni eru svo leiktæki ætluð fyrir meiri
hreyfiþörf, s.s. rólur, vegasalt og sambyggt leiktæki
með rennibraut. Þar við er malbikuð hringleið sem
liggur umhverfis grashól sem nýtist einnig á vetrum
sem sleðabrekka.
Girðing umhverfis lóðina var höfð eins ,,létt” í útliti
og hægt er og gróður notaður til þess að milda girð-
inguna, skapa hlýleika og skjól. Þó nokkuð var gróður-
sett innan lóðar og var lögð áhersla á fljótsprottnar
tegundir, s.s. ylli og einnig víðitegundir, m.a. vegna
slitþols og endurnýjunarhæfileika.
Ókostur við þessa lóð er eins og með allt of margar
leikskólalóðir. Þær eru of litlar. Of litlar lóðir leiða til of
mikils álags á lítil svæði og valda sliti t.d. á grasi,
gróðri og leiktækjum. Leiksvæðin verða of stöðluð
og of mikið eins. Börnin eru þétt saman í leik og hafa
minni möguleika á leiki færri saman, fjær öðrum eða
til þess að fá að vera í friði þegar þörf er á. í skipulagi
verður að ætla leikskólum mun meira rými en nú er
gert.
Leikskólalóðin er hönnuð af Teiknistofu Péturs
Jónssonar, Stórhöfða 17, Reykjavík, af landslags-
arkitektunum Pétri Jónssyni og Áslaugu Traustadóttur
í samráði við arkitektinn Egil Guðmundsson TT3. ■