Bændablaðið - 04.04.2023, Page 4
4 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
FRÉTTIR
Búnaðarþing 2023:
Uppfærsla á stefnumörkun
Bændasamtaka Íslands
Á nýloknu Búnaðarþingi 2023 lagði stjórn Bændasamtaka Íslands (BÍ)
það fyrir þingið að yfirfara og uppfæra stefnumörkun samtakanna sem
samþykkt var á Búnaðarþingi 2022 og hefur yfirskriftina „Framsýnn
landbúnaður“. Skipaðar voru fimm starfsnefndir sem unnu að þessum
markmiðum og er afraksturinn ný heildarstefnumörkun samtakanna.
Ályktanir og tillögur frá Búnaðarþingi
birtast því í uppfærðri stefnumörkun
eftir málaflokkum. Meðal helstu
ályktana um stefnumörkun fyrir
félagskerfi landbúnaðarins má nefna
að samþykkt var að fela stjórn BÍ að
taka þátt í stofnun heildarsamtaka
í landbúnaði með Samtökum
fyrirtækja í landbúnaði.
Velferð bænda og dýra
Í starfsnefnd Búnaðarþingsfulltrúa
um stefnumörkun í félagsmálum
var fjallað bæði um velferð bænda
og dýra. Ályktað var að BÍ leggi
áherslu á að áfram verði unnið að
verkefninu Bændageð, sem byggir
á vitundarvakningu, forvörnum og
jafningjafræðslu til bænda, og að
þeir sem og aðstandendur hafi og
þekki greiðar leiðir til sjálfsbjargar.
Í því ljósi að ekkert afleysingakerfi
fyrir bændur sé í landinu verði
unnið í samráði við stjórnvöld að
því að koma upp slíkri þjónustu.
Skortur á afleysingaþjónustu sé
streituvaldandi og geti leitt til þess
að bændur gangi of nærri sér, bæði
andlega og líkamlega.
Þá var ályktað um að
Bændasamtökin muni áfram
vinna að verkefninu „Búum vel“ í
samvinnu við búnaðarsamböndin,
sem felst í að bæta öryggis- og
vinnuverndarmenningu í sveitum.
Trúverðugt búfjáreftirlit
Í ályktun um dýravelferð segir að
mikilvægasta forsenda þess að
sátt ríki í samfélaginu um að nýta
dýraafurðir til matvælaframleiðslu
sé að velferð dýranna sé tryggð
af þeim sem um þau annast og að
eftirlit með því sé trúverðugt, virkt
og gegnsætt.
Þar kemur einnig fram að
gera þurfi eftirlit með dýrahaldi
skilvirkara. Leita þurfi leiða til að
hægt verði að greina aðsteðjandi
vanda sem fyrst þannig að hægt sé
að grípa fyrr til aðgerða en núverandi
kerfi leyfir og greina þurfi vandlega
hvort þörf sé á breytingum á lögum
eða reglugerðum.
Skoða þurfi hvort setja eigi reglur
um að umráðamenn dýra þurfi
að uppfylla eðlilegar kröfur um
þekkingu á eðli og þörfum dýranna
sem og gildandi reglum um velferð
þeirra.
Lagt er til að skipað verði
viðbragðsteymi sem starfi þegar
upp koma erfið dýravelferðarmál.
Endurnýting á lífrænum úrgangi
Í starfsnefnd um loftslags- og um-
hverfismál var ályktað um lífrænan
úrgang og áburðarframleiðslu.
Þar segir að brýnt sé að
stjórnvöld stuðli þegar í stað að
samstarfsvettvangi um fjárfestingu,
rannsóknir og þróun til endurnýtingar
alls lífræns úrgangs sem til fellur
á Íslandi sem verði nýttur til
framleiðslu innlends tilbúins áburðar
til landbúnaðarnota. Ísland hafi allt
til að bera til að vera leiðandi á þessu
sviði auk þess sem slík endurnýting
leiði til sjálfbærni Íslands varðandi
áburðarþörf. Mikilvægt sé að slíkur
samstarfsvettvangur verði stofnaður
á allra næstu vikum.
Varðandi loftslagsáhrif land-
búnaðarins er lagt til að samtökin
skuldbindi sig til að vinna að því að
draga úr losun á framleiðslueiningu
í landbúnaði og auka samhliða
kolefnisbindingu. Mikilvægt sé að
einblína á verkefni sem skili árangri
fyrir atvinnugreinina.
Krafist verði viðurkenningar á
bindingu eldri skóga á lögbýlum sem
mótvægi við losun frá landbúnaði og
áfram verði stutt við framleiðslu og
sölu á vottuðum kolefniseiningum
á lögbýlum.
Stefna mörkuð um landnotkun
Talið er mikilvægt að stuðla að
hagkvæmri nýtingu lands og
landgæða með sjálfbæra þróun
að leiðarljósi. Brýnt sé að
sveitarfélög marki sér stefnu um
landnotkun þannig að skipulag
landnotkunar stuðli að möguleikum
á fjölbreyttri og hagkvæmri
nýtingu landbúnaðarlands í sátt við
umhverfið.
Ályktað var um að búfjárbeit ætti
að samræma annarri landnýtingu
svæðisbundið. Ólíkar aðstæður
og hagsmunir séu milli svæða og
talið mikilvægt að samþykktir séu
yfirfarnar, þar sem ágreiningur
er uppi.
Nýliðun nauðsynleg
Í starfsnefnd um innri starfskilyrði
landbúnaðar var ályktað um
mikilvægi nýliðunar. Þar kom fram
að nýliðun sé nauðsynleg til að
tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar og
byggðafestu. Auka þurfi framlög
í nýliðunarstuðning, endurskoða
fyrirkomulagið, sem og að leita nýrra
leiða til að styðja við kynslóðaskipti.
Leggja þurfi grunn að því að nýir
aðilar komi inn í greinina óháð
aldri. Atvinnugreinin þurfi aðgang
að þolinmóðu fjármagni á lágum
vöxtum til að nýliðar sjái sér hag í
að velja landbúnað umfram annan
rekstur. Til að svo megi verða
þurfi landbúnaðarstefnan að vera
til lengri tíma og má ekki sveiflast
vegna geðþóttaákvarðana einstakra
valdhafa hverju sinni. Framleiðendur
verði að geta búið við fyrirsjáanleika
og stöðugleika.
Lagt er til að styðja sérstaklega
við þá frumkvöðla sem hefja
ræktun á nýjum tegundum, enda
þurfi að auka fjölbreytni í íslenskri
frumframleiðslu matvæla. Í þessari
starfsnefnd var einnig ályktað um
tryggingamál bænda. Lagt er til
að Bjargráðasjóður verði hluti af
Náttúruhamfaratryggingu Íslands
og veiti tryggingavernd vegna
áfalla í landbúnaði sem ekki er
hægt að tryggja hjá íslenskum
tryggingafélögum.Trygginga-
sjóðurinn starfi með bakábyrgð
ríkissjóðs þannig að ávallt sé ljóst
að tjón séu bætt að fullu í samræmi
við skilmála hverju sinni.
Einföldun á reglu-
og eftirlitskerfi
Í starfsnefndinni um innri starfs-
skilyrði landbúnaðarins var
ályktað um að einfalda þurfi reglu
verk í landbúnaði og framleiðslu
annars vegar og í eftirlitskerfinu
hins vegar.
Nýta þurfi fjórðu iðnbyltinguna
til að draga úr kostnaði og auka
skilvirkni eftirlitskerfisins og tryggja
að það styðji við nýjar leiðir til
verðmætasköpunar án þess að slá
af kröfum um matvælaöryggi.
Framleiðsla og markaðssetning
Í ályktun starfsnefndarinnar er
þess krafist að innlendir fram-
leiðendur sitji við sama borð og
samkeppnisaðilar þeirra erlendis.
Óheimilt ætti að vera að framleiða,
selja og markaðssetja vörur úr
erlendum hráefnum sem ekki
uppfylla þær kröfur sem gerðar eru
til innlendra frumframleiðenda.
Mælst er til þess að BÍ beiti sér
fyrir því að neytendur á Íslandi hafi
möguleika á upplýstu vali þegar
kemur að upprunamerkingum
matvæla. Því sé hægt að ná með
því að staðla merkingar um
uppruna og framleiðsluland allra
landbúnaðarvara og að merkingar
uppfylli kröfur merkingareglu-
gerðarinnar og fánalaganna og
viðurlögum beitt sé það ekki gert.
Eins með því að hvetja fram
leiðendur til að upprunamerkja
tilbúna rétti og unnar kjötvörur þó
þeim sé það ekki skylt samkvæmt
reglugerð. Hvatt er til þess að
innlendir framleiðendur sameinist
um eitt upprunamerki sem fari á sem
flest matvæli.
Meiri fjármunir til
búvörusamninga
Í starfsnefnd um ytri skilyrði
landbúnaðar er mælst til þess að
fjármögnunarþak búvörusamninga
verði afnumið. Óhjákvæmilegt sé
að með aukinni framleiðslu, sem
stefnt sé að í landbúnaðarstefnunni,
muni auknir fjármunir úr ríkissjóði
renna inn í búvörusamningana.
Sama eigi við um fjárfestingar- og
nýliðunarstuðning en eðli slíkra
styrkja sé þannig að tilgangi þeirra
sé ekki náð þegar mjög takmarkaðir
fjármunir eru til skiptanna.
Í umfjöllun um afkomu bænda
ályktar nefndin að BÍ beiti sér fyrir
því að komið verði á sameiginlegum
hagtölugrunni um öll þau atriði er
áhrif hafa á íslenskan landbúnað,
að slíkur grunnur sé forsenda
þess að hægt sé að eiga samtöl
á sameiginlegum grundvelli
um breytingar á starfsumhverfi
landbúnaðarins.
Tollverndin hluti af
starfsskilyrðum bænda
Nefndin telur tollverndina vera
órjúfanlegan hluta af starfsskilyrðum
í landbúnaði og þurfi að þjóna
tilgangi sínum með skilvirkum hætti.
Mikilvægt sé að fá viðurkenningu
á sérstökum framleiðsluaðstæðum
á Íslandi vegna hnattrænnar legu
landsins. Ályktað er að innflutningur
landbúnaðarvara hafi aukist síðustu
ár og þær forsendur sem lágu til
grundvallar tollasamningi við ESB
árið 2015 séu brostnar. Talið er að
segja þurfi upp tollasamningnum við
ESB og að magntollar á búvörur verði
uppreiknaðir til verðlags dagsins
í dag. Samningurinn vinni gegn
fyrirætlunum stjórnvalda um eflingu
innlendrar matvælaframleiðslu.
Lækkun eða niðurfelling tolla
kippi með öllu stoðum undan
íslenskum landbúnaði og séu ótækar
án jafngildra mótvægisaðgerða.
Markmiðum með tollvernd verði
ekki náð án eftirlits með innflutningi
og því þurfi stjórnvöld að tryggja
virkt eftirlit samhliða tollvernd en
á því hafi verið alvarlegir brestir.
Fæðu- og matvælaöryggi
Loks fjallaði starfsnefndin um ytri
skilyrði landbúnaðar, um fæðu- og
matvælaöryggi á Íslandi. Þar segir
að mikilvægt sé að marka stefnu um
hvernig tryggja megi fæðuöryggi
þjóðarinnar. Í því felst að stjórnvöld
setji markmið um getu innlendrar
matvælaframleiðslu til að takast á
við skyndilegar breytingar á aðgengi
að innfluttri matvöru og aðföngum
þannig að fæðuöryggi þjóðarinnar
sé tryggt.
Íslenskur landbúnaður verði
sjálfbær grunnur að fæðuöryggi
Íslands til að styrkja stoðir áfallaþols
samfélagsins.
Til að tryggja fæðuöryggi
verði áherslan meðal annars að
vera á orkuskipti og þá möguleika
sem eru til staðar fyrir innlenda
orkugjafa til að mæta orkuþörfum
í landbúnaði. Stjórnvöld þurfi að
setja fram viðbragðsáætlanir sem
tryggja fæðu- og matvælaöryggi,
sjálfbærni í matvælaframleiðslu og
birgðageymslu matvæla.
Sambærilegt regluverk
Til að tryggja fæðu- og matvælaöryggi
sé nauðsynlegt að innlendar
afurðastöðvar lúti sambærilegu
regluverki og afurðastöðvar í helstu
samkeppnislöndum.
Uppbygging öflugs og trausts
flutningskerfis raforku og fjarskipta
sem tryggir jafnt aðgengi að
dreifikerfum er forsenda öflugrar
byggðar. Landbúnaður sé háður
tryggum dreifikerfum sem séu
undirstaða fæðu- og matvælaöryggis.
Nánari upplýsingar um heildar-
stefnumörkun Bændasamtaka
Íslands verður að finna á vef
samtakanna, bondi.is. /smh
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, tók til máls við setningu Búnaðarþings. Mynd /Helga Dögg