Bændablaðið - 04.04.2023, Page 8

Bændablaðið - 04.04.2023, Page 8
8 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 FRÉTTIR Öryggis Bakkmyndavél 7" Skjár - Myndavél - Hleðslubanki sem festist með segli Stutt lýsing á innihaldi pakkans: - Stafrænn skjár (16:9 & 4:3) - Notkunarhitastig: -25°~ +70 - Spenna: DC12V ~ 32V - Virk fjarlægð: ~ 150M - Vatnsheld IP69K - Hleðslubanki fyrir rafhlöður (hægt að kaupa INR18650 rafhlöður sem eru endurhlaðanlegar) www.sbogason.is / pantanir@sbogason.is S: 854-8819 / Stóriteigur 10 - 270 Mosfellsbær S.bogason Öryggis bakkmyndavél 7″Skjár – myndavél – hleðslubanki sem festist með segli Stutt lýsing á innihladi pakkans: - stafrænn skjár (16:9 & 4:3 ) - Notkunarhitastig: -25°~+70° - Spenna: DC12V ~ 32V - Virk fjarlægð: ~150M - Vatnsheld IP69K - Hleðslubanki fyrir rafhlöðu . (hægt að kaupa INR18650 rafhlöður sem eru endurhlaðanlegar ) www.sbogason.is / pantanir@sbogason.is S: 854-8819 / Stóriteigur 10 - 270 Mosfellsbær S.bogason Öryggis bakkmy davél 7″Skjár – myndavél – hleðslubanki sem festist með segli Stutt lýsing á innihladi pakkans: - stafrænn skjár (16:9 & 4:3 ) - Notkunarhitastig: -25°~+70° - Spenna: DC12V ~ 32V - Virk fjarlægð: ~150M - Vatnsheld IP69K - Hleðslubanki fyrir rafhlöður. (hægt að kaupa INR18650 rafhlöður sem eru endurhlaðanlegar ) www.sbogason.is / pantanir@sbogason.is S: 854-8819 / Stóriteigur 10 - 270 Mosfellsbær Efling kornræktar: Reisa haframyllu á Suðurlandi Enginn tækjabúnaður er á Íslandi til að verka hafra til manneldis. Undanfarin ár hafa hafrar verið ræktaðir í talsverðu magni til þroska á Sandhóli í Meðallandinu. Senda hefur þurft uppskeruna með skipi til Jótlands í Danmörku til að láta verka þá og síðan til baka á Íslandsmarkað. Á dögunum fóru Sandhólsbændur í leiðangur til Finnlands til að skoða vænlegar haframyllur og hafa nú látið hanna fyrir sig eina slíka, sem getur afkastað 1,5 til 3 tonnum á klukkustund. „Við fórum til Finnlands í síðasta mánuði til að kanna möguleikana á því að kaupa myllu til verkunar á höfrunum okkar. Við höfum verið að rækta þá til þroska og manneldis í mörg ár og vildum athuga hvort það væri markaður fyrir þá hér á Íslandi, sem hefur svo heldur betur reynst vera, segir Örn Karlsson, framkvæmdastjóri Sandhóls. „Þar sem enginn tækjabúnaður hefur verið hér á landi til að verka þá, höfum við þurft að senda þá með skipi til Árósa og til baka þegar búið er að vinna þá fyrir okkur – sem er auðvitað ekki góð staða.“ Miklir vaxtarmöguleikar í ræktun hafra „Viðtökurnar hafa bara verið þannig að við höfum verið að selja þetta í gámavís og svo má segja að vaxtarmöguleikarnir í ræktun hafra hér á landi séu einnig mjög miklir í því ljósi hversu mikið er flutt hingað inn. Við höfum verið að þreifa fyrir okkur með myllur en ekki fundið hingað til neina myllu sem hentaði okkar aðstæðum – fyrr en nú. Þá vildi það þannig til að ég komst í kynni við finnska konu að nafni Remi Meres, sem er nú starfsmaður finnsku bændasamtakanna, en var hér á Íslandi í tvö ár í vinnu og talar góða íslensku. Hún vissi um einmitt þessa gerð af myllu sem okkur vantaði hér og með hennar hjálp þá fundum við réttu tegundina af myllum,“ segir Örn. Í Finnlandsferðinni komust þeir að því að það eru í það minnsta tveir framleiðendur sem framleiða þessa tegund og eftir viðræður við þá voru báðir aðilar beðnir um að hanna og teikna þannig myllu, sem Sandhólsbændur vonast eftir að geta reist á Suðurlandi, en slík mylla getur afkastað 150 til 300 tonnum á klukkustund. Eini alvöru ræktandinn Örn er spenntur fyrir áformum um eflingu kornræktar á Íslandi og væntir þess að góður stuðningur komi frá stjórnvöldum í kjölfar þeirrar vinnu. „Ég sé fyrir mér að það verði sett upp svona mylla hérna á Suðurlandi, ekki langt frá Þjóðvegi 1. Það gæti mögulega verið á Hvolsvelli, Hellu eða einfaldlega hér á Sandhóli – það fer í raun eftir því hverjir kæmu að verkefninu. Eins og er þá skoðum við þetta á okkar forsendum en auðvitað væri betra að það væru frekar fleiri en færri í þessu með okkur,“ segir Örn og telur að Sandhóll sé í raun eini alvöru ræktandi hafra til þroska í dag. Bændur þurfa hvata Í skýrslunni „Bleikir akrar – aðgerðaráætlun um aukna kornrækt“, sem skilað var til matvælaráðherra fyrir skemmstu, kemur fram að ræktun hafra á Íslandi sé fremur einföld og örugg. Markaður fyrir hafra til manneldis og fóðurs er þar metinn 417 tonn á ári – og er þar vísað til heimilda frá Hagstofunni um innflutning á sekkjuðum höfrum. Þar fyrir utan eru hafravörur sem fluttar eru inn í pakkningum eingöngu til manneldis; tröllhafrar, haframjöl og haframjólkurvörur. „Ég þekki til bænda sem eru áhugasamir, en það þarf ákveðna hvata fyrir þá. Bændur vilja auðvitað bara hafa virkan markað og með tilkomu svona myllu til landsins – og svo betri stuðningi stjórnvalda – þá opnast tækifæri fyrir fleiri. Svo held ég að besta stuðningfyrirkomulagið við þessa grein til uppbyggingar, sé að koma á fjárfestingastyrkjum. Ekki að bæta við jarðræktarstyrkina, eða að styrkja land, heldur til uppbyggingar að megninu til. Miðað við innflutning í dag þá eru heilmiklir möguleikar – held það sé ekkert óvarlegt að áætla að sala á höfrum í verslunum á Íslandi hlaupi á tonnum í hverri viku – og það er meira og minna allt innflutt nema okkar. Við framleiðum yfir tvö hundruð tonn af höfrum á ári, sem fer að mestu til framleiðslu á tröllhöfrum og haframjöli – en það er bara lítill hluti af markaðshlutdeildinni.“ Dýr og sérhæfður tækjabúnaður Tækjabúnaðurinn er að sögn Arnar mjög dýr og sérhæfður, en sú mylla sem Sandhóll hefur augastað á er fær um að skila af sér þremur vörutegundum. „Ferlið frá því að hafrarnir eru skornir og þar til þeir eru komnir í neytendaumbúðir eru í einföldu máli þannig að eftir að búið er að þreskja þá eru þeir þurrkaðir niður í svona 13 prósent rakainnihald, svo þeir mygli ekki í geymslu. Fyrir vinnslu eru þeir hreinsaðir fyrst, síðan afhýddir og veltur það á vörutegundinni hvað gert er næst. Ef þú ætlar að gera haframjöl þá klippir þú hafrana í tvennt. Fyrir tröllhafra þarf að hita þá upp með gufu og mýkja, áður en þeir eru valsaðir. Það er gert í tromlu þar sem þeir eru flattir út. Enn önnur vinnsluaðferð er að dufta þá, þá eru þeir settir beint í gegnum hamarmyllu. Hafrar sem búið er að vinna í duft, eru til dæmis notaðir til að baka úr.“ /smh Örn Karlsson, framkvæmdastjóri Sandhóls. Íslenskt haframjöl frá Sandhóli. Hafraþresking. Úthlutun styrkja hjá Landgræðslunni Gengið hefur verið frá úthlutun styrkja úr samstarfsverkefnunum Bændur græða landið og Landbóta- sjóði fyrir árið 2023. Niðurstaðan verður send til styrkþega með tölvupósti að því er fram kemur í tilkynningu frá Landgræðslunni. „Ef samstarfsaðilar hafa ekki fengið niðurstöðu í hendur eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við viðkomandi verkefnisstjóra eða næsta héraðsfulltrúa Landgræðslunnar,“ segir í tilkynningunni. /ghp Skipulagsmál: Hreppsnefnd lagði Skógræktina Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu Skógræktarinnar um að felldar yrðu úr gildi ákvarðanir hrepps- nefndar Skorradalshrepps um að hafna umsóknum um fram- kvæmdarleyfi vegna skógræktar á jörðunum Stóru Drageyri og Bakkakoti. Skógræktin kærði hreppsnefnd Skorradalshrepps fyrir að hafna framkvæmdarleyfisumsókn þeirra til nýskógræktar. Sveitarstjórn Skorradalshrepps hafnaði umsókn- inni vegna þess að þær samræmdust ekki aðalskipulagi hreppsins. Jarðirnar Stóra Drageyri og Bakkakot í Skorradalshreppi eru í eigu ríkissjóðs en Skógræktin fer með umráð og nýtingu þeirra. Sumarið 2022 hóf Skógræktin undirbúningsframkvæmdir á jörðunum fyrir gróðursetningu en þær voru stöðvaðar af lögreglu. Framkvæmdirnar voru leyfisskyldar og ekki hafði verið aflað framkvæmdarleyfis. Skógræktin sótti þá um framkvæmdarleyfi. Rækta átti fjölnytjaskóg með blönduðum trjátegundum á 188,7 ha lands á jörð Stóru Drageyri. Á Bakkakoti átti að gróðursetja 50.000 birkiplöntur í gróðureyjar á 36 ha svæði. Samkvæmt aðalskipulagi hreppsins eru þau svæði sem skóg- ræktin átti að fara fram flokkuð til landbúnaðarnota. Sérstakur kafli með reglur um skógrækt innan landbúnaðarsvæða tiltekur að skógrækt umfram 20 ha sé háð framkvæmdaleyfi. Þá segir í útskurðinum að þau svæði sem sótt var um framkvæmdaleyfi fyrir séu utan afmörkunar um fyrirhuguð skógræktarsvæði á landbúnaðarsvæðum samkvæmt aðalskipulagi. Úrskurðarnefndin taldi því rétt að hreppsnefndin hafnaði umsókn um framkvæmdarleyfi með vísan til þess að fyrirhuguð skógrækt samræmdist ekki aðalskipulagi. Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 7. mars sl. /ghp Úr Skorradal. Tré í landi Brekkukots. Mynd / HGS

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.