Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
FRÉTTIR
Frostþurrkun í Þorlákshöfn:
Verðmætasköpun úr vannýttum afurðum
landbúnaðar, sjávarútvegs og landeldis
Í nóvember á síðasta ári hóf
nýsköpunarfyrirtækið Frost-
þurrkun formlega rekstur á
iðnaðarfrostþurrkstöð í Þorláks-
höfn, sem er sú eina sinnar
tegundar á landinu.
Starfsemin þar mun felast í
framleiðslu á matvælum, inni-
haldsefnum í matvæli og til
fæðubótar, en einnig er þar aðstaða til
vöruþróunar. Eigendur stöðvarinnar
eru þau Hrafnhildur Árnadóttir
og Sigurður Steinar Ásgeirsson
og tildrög þess að þau ákváðu að
fara þessa leið í fyrirtækjarekstri,
segir Hrafnhildur að megi rekja
til þeirra eigin tilraunastarfsemi
með matvælaframleiðslu. „Við
ætluðum að prófa okkur áfram í
eigin framleiðslu en komumst að
því að ekki var hægt að fá þjónustu
við frostþurrkun hér á Íslandi.
Eini þurrkarinn sem okkur bauðst
til afnota var hjá Matís, sem var mjög
lítill þurrkari og eiginlega útilokaði
þær hugmyndir sem við vorum með
í matvælaframleiðslu.
Þetta hefur því þróast með
þeim hætti að við höfum skapað
okkur starfsvettvang í frostþurrkun
en lagt til hliðar upprunalegu
hugmyndirnar sem við höfðum
um matvælaframleiðslu,“ segir
Hrafnhildur, en getur þess að
þau séu þó enn með ýmsar aðrar
framleiðsluhugmyndir í vinnslu.
Helsta aðferðin við
kryddframleiðslu
Hrafnhildur segir að frostþurrkun
sé helsta aðferðin í heiminum við
framleiðslu á þurrkuðu kryddi og
reyndar mörgum örðum tegundum
matvöru.
Upphaflega var hún þróuð til
að framleiða matvöru fyrir geim-
fara og er auk þess mjög þekkt
framleiðsluaðferð fyrir „instant
kaffi“. „Síðan hefur hún mikið
verið notuð til að framleiða matvörur
fyrir lengri fjallaferðir. Kosturinn
við hana – og það sem hún hefur
umfram aðrar þurrkaðferðir – er að
hún varðveitir svo vel næringarefni,
lífvirk efni, litarefni og bragðið
auðvitað. Hún er svo þægileg líka
við framleiðslu á dufti, flögum og
slíku sem margir leitast eftir við
framleiðslu á ýmsum vörum,“ segir
hún og bætir við að það sé eiginlega
hægt að frostþurrka allt. En það sem
er ríkt af fitu eða sykri sé kannski
ekki eins auðvelt að þurrka og annað.
Grænmeti, kjöt, fiskur og
sjávargróður henti þessari aðferð
sérstaklega vel og þá stækki heilsu-
og fæðubótarvörumarkaðurinn
hratt – og þetta sé einmitt ein
helsta framleiðsluaðferðin í þeim
vöruflokkum þar sem varðveisla á
tilteknum efnum í framleiðsluferlinu
skiptir öllu máli.
Áform um mikla stækkun
Rekstur stöðvarinnar hefur farið
frekar hljóðlega af stað, til dæmis
hefur ekki enn verið mikið fjallað
um starfsemina í fjölmiðlum. Segir
Hrafnhildur það skýrast eiginlega
af því að það hafi verið svo mikið
að gera. „Við vorum bara tvö saman
í þessu í upphafi og því gafst ekki
mikill tími né beinlínis þörf á því að
vekja athygli á okkur. Við þurftum í
raun ekki að fá meiri athygli þar sem
við vorum strax með það mikið að
gera og náðum vart að hafa undan.
En nú erum við komin með starfs-
fólk og stefnum á að margfalda
afkastagetu okkar á næstunni en
við erum einmitt þessa dagana að
undirbúa kynningu fyrir tilvonandi
fjárfesta.Við þurfum utanaðkomandi
fjárfestingu til að ná markmiðum
okkar og koma upp varanlegu
atvinnuhúsnæði, en það sem við
erum núna í er til bráðabirgða.
Áætlanir okkar ganga út á að reisa
stóra verksmiðju í Þorlákshöfn þar
sem við höfum í hyggju að framleiða
sjálf afurðir til útflutnings auk þess
að sinna miðlægri þjónustu við aðra
matvælaframleiðendur.“
Aðaláherslan á nýtingu
hliðarafurða
Þegar hún er spurð hvað þau sjálf
ætli sér að framleiða og fyrir hverja,
segir hún að þau horfi að mestu leyti
til nýtingar á hliðarafurðum. „Þá á ég
við frá landbúnaði, sjávarútvegi og
landeldi en áform eru uppi um stór
verkefni á því sviði hér í Þorlákshöfn.
Við höfum einmitt fengið nokkra
styrki til að þróa afurðir úr ýmiss
konar hliðarafurðum og erum komin
vel á veg með þá þróun.
Við munum til dæmis vinna hráefni
fyrir heilsuvöruframleiðendur,
svo sem úr vannýttum innmat frá
kjötafurðastöðvum, en við ætlum
okkur ekki endilega að þróa
endavörurnar sjálf.
Það verður í höndum kaupenda
afurðanna. Síðan er það afskurður,
beinagarður og slóg úr landeldinu
og frá sjávarútvegsfyrirtækjum,
sem getur nýst í ýmislegt. Svo er til
dæmis líka hægt að fá gott verð fyrir
vandað hráefni til fóðurgerðar fyrir
gæludýr – sá markaður er orðinn
nokkuð stór.
Á undanförnum misserum
höfum við lagt talsverða vinnu í að
kortleggja möguleikana á þessum
sviðum, hvar henti okkur best að
vera með tilliti til þess hráefnis sem
er í boði og markaðsaðstæðna. Þá
erum við bæði að tala um á Íslandi
og í útlöndum.“
Samtalið við fjárfesta
Tækjabúnaðurinn sem Frostþurrkun
ætlar að fjárfesta í er bæði dýr og svo
er hann einnig nokkuð orkufrekur.
Hrafnhildur segir að þau séu
komin af stað í þá vinnu að afla
fjárfesta en þau Sigurður voru einmitt
á leiðinni á fjárfestahátíð á Siglufirði
þegar blaðamaður ræddi við hana.
„Þar fá frumkvöðlar tækifæri til
að kynna verkefni sem snerta
orkuskipti, hringrásarhagkerfið
eða fullnýtingu auðlinda fyrir
væntanlegum fjárfestum. Þar verða
samankomnir allir stærstu fjárfestar
á landinu á þessu sviði.“
Samstarfsaðilar í garðyrkju
og bætiefnaframleiðslu
Hún segir að um virkilega spennandi
framtíðarverkefni sé að ræða
sem þau hafi trú á að geti leitt til
verulegrar verðmætasköpunar
og orðið verðmætur farvegur
fyrir hliðarafurðir úr flestum
eða öllum greinum íslenskrar
matvælaframleiðslu.
„Samstarf okkar með öðrum
fyrirtækjum, sem eru alls konar, bæði
stærri fyrirtæki og smærri, hefur
aðallega falist í að nýta hliðarafurðir
af einhverri tiltekinni framleiðslu
þeirra. Aðallega er þetta eitthvað sem
hægt er nota vegna næringargildis,
sem fæðubótarefni til dæmis sem
hægt er að hylkja. Sem dæmi um
samstarfsaðila má nefna fyrirtækin
Pure Natura og Saga Natura sem
bæði eru bætiefnaframleiðendur og
Jörth , sem nýverið setti á markað
sína fyrstu vöru sem unnin er úr
frostþurrkaðri broddmjólk.“ /smh
Sigurður Steinar Ásgeirsson og Hrafnhildur Árnadóttir eru eigendur
Frostþurrkunar í Þorlákshöfn. Myndir / smh
HLEÐSLUBOX
Frí hleðsla
Viltu bjóða viðskiptavinum
þínum fría hleðslu á
öruggum stað?
Hledslubox.is
VAXA Technologies:
Frostþurrkaðir
smáþörungar
Þegar blaðamaður var á ferð hjá
Frostþurrkun í Þorlákshöfn var
starfsmaður frá fyrirtækinu Vaxa
Technologies að taka á móti frost
þurrkuðum smáþörungum, sem
framleiddir eru við Hellisheiðar
virkjun. „Þetta eru spirulina þör
ungar, örsmáir blágrænir þörungar
sem við erum að láta þurrka fyrir
okkur,“ segir Ingimar Rafn Ágústs
son. „Mest af þessari framleiðslu
sem við erum að þurrka hér fer til
Banda ríkjanna. Þar erum við að
klára að græja vinnslulínu sem
snýst um að ná þessum tæra nát
túrulega bláa lit og þá erum við
komin með þetta eftirsótta nát
túrulega litarefni. Það gengur vel
og erum við á lokametr unum þar
áður en við sendum græjurnar hin
gað í Þorlákshöfn þar sem við æt
lum að setja upp vinnsluaðstöðu,“
bætir Ingimar við.
„Í dag erum við að framleiða
tvo vöruflokka úr áðurnefndum
smáþörungum. Omega3 töflur og
svo Immunity Boost munnsprey.
Omega3 töflurnar koma úr Nan
nochloropsis smáþörungunum. Við
ræktum smáþörunga og sækjum
Omega fitusýrur beint til frumfram
leiðandans og er þrisvar sinnum
meiri virkni á Omega3 fitusýrum
okkar en til dæmis fiskiolíu. Því
stóra málið er að fiskar framleiða
ekki Omegafitusýrur heldur ber
ast þær í fiska úr Nannochlorop
sis smáþörungum. Því til viðbótar
má nefna að við nýtum 99 prósent
minna landsvæði og vatn en þarf til
að framleiða aðrar Omega3 vörur,“
segir Ingimar enn fremur.
Ingimar Rafn Ágústsson frá VAXA
Technologies og Sigurður Steinar
lesa af mælum þurrkarans.
Blágrænir spirulina smáþörungar
nýkomnir út úr þurrkaranum.
Hrafnhildur og Sigurður eru komin með starfsfólk í vinnu við þurrkunina og
stefna á að margfalda afkastagetu þurrkunarinnar á næstunni.