Bændablaðið - 04.04.2023, Page 16
16 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Gulldepla er smávaxinn og
þunnvaxinn fiskur. Hún verður
allt að 7 til 8 sentímetrar að lengd.
Fiskurinn telst til ættar silfurfiska
sem heyra undir ættbálkinn ljósbera.
Ljósfæri prýða gulldeplu eins og
aðra ættingja hennar.
Líklega fékk gulldeplan nafn
sitt af glóandi blettum, en ekki er
allt gull sem glóir. Heimkynnin
eru í vestanverðu Miðjarðarhafi
og Atlantshafi. Hér við land
verður hennar einkum vart sunnan,
suðaustan og suðvestan við landið.
Gulldepla heldur sig mest á 100
til 200 metra dýpi á nóttunni en á
200 til 500 metra dýpi á daginn.
Hún er fæða þorsks, ufsa, síldar og
fleiri tegunda. Hér hefur verið stuðst
við lýsingu á gulldeplu í bókinni
Íslenskir fiskar.
Beinar veiðar í loðnubresti
Gulldepla hefur verið þekkt hér um
langan aldur en ekki nýtt þótt stöku
skip hafi reynt að fanga hana. Áhugi
á beinum veiðum kviknaði þó ekki
fyrir alvöru fyrr en í loðnubresti
árið 2009. Verkefni vantaði þá fyrir
uppsjávarflotann. Huginn VE reið á
vaðið í desember 2008. Aflinn var
tæp 50 tonn.
Nær allar útgerðir uppsjávarskipa
tóku þátt í veiðum á gulldeplu fyrri
hluta árs 2009. Átján skip stunduðu
veiðarnar þá og varð aflinn rúm
46 þúsund tonn. Huginn VE varð
aflahæstur með 7.052 tonn, Hoffell
SU kom næst með 6.600 tonn og
Birtingur NK var þriðji með 5.160
tonn. Árið 2010 veiddust 17.960
tonn og var Hoffell SU aflahæsta
skipið með 4.258 tonn. Fjórtán
skip stunduðu veiðarnar. Árið 2011
var aflinn 9.007 tonn og 9 skip að
veiðum.
Megnið veiddu tvö skip, Huginn
VE með 3.539 tonn og Hoffell SU
með 3.051 tonn.
Hoffell SU var eina skipið
á gulldepluveiðum 2012 en af-
raksturinn var lítill. Eftir það hafa
engar beinar veiðar verið stundaðar.
Hoffell fór í einhver ár á eftir í ferð
til að leita sérstaklega að gulldeplu
en lítið sem ekkert fannst.
Alls veiddust rúm 73 þúsund
tonn af gulldeplu í þessari atrennu.
Aflatölur í heild sem og afla einstakra
skipa má finna á vef Fiskistofu.
Vandkvæði við veiðar og vinnslu
Ýmis vandkvæði voru við veiðar og
vinnslu á gulldeplu. Lítið var vitað
um göngur fisksins og hvar bestu
veiðisvæðin gætu verið.
Gulldeplan er veidd í flottroll. Í
fyrstu var erfitt að fanga fiskinn því
hann smaug í gegnum veiðarfærin
miðað við algenga möskvastærð. Í
samstarfi við Hampiðjuna var unnið
að því að þróa veiðarfæri sem réði
við þetta verkefni.
Aflinn fór svo til allur í fiskmjöl
en lítils háttar var prófað að frysta
í blokk um borð í Hugin VE.
Gulldeplan þótti erfitt hráefni í
fiskmjölsvinnslu vegna þess hve
hún innihélt mikið salt. Þetta
vandamál var leyst með sérstökum
búnaði í verksmiðjum en einnig
þurfti að gæta sérstaklega að því
að gulldeplan yrði fyrir sem minnstu
hnjaski við veiðarnar. Við hnjask
dró hún í sig salt úr sjónum.
Smám saman tókst að koma salti
í mjöli niður í ásættanlegt magn, að
því er segir í skýrslu frá Matís frá
árinu 2010.
Möguleikar til vinnslu
til manneldis
Snemma komu fram hugmyndir um
aðra vinnslu en bræðslu til að auka
verðmætasköpun. Ef framhald yrði
á veiðum var rætt um að nýta mætti
gulldeplu í verðmætt prótínduft
sem væri gott til uppbyggingar
á vöðvum líkamsræktarfólks.
Einnig var bent á að sjóða mætti
gulldeplu niður í dósir, ekki
ósvipað niðursoðnum sardínum.
Þetta kemur fram í svari Sigurjóns
Arasonar, yfirverkfræðings Matís til
Alþingis árið 2017, við spurningu
um rannsóknir á veiðum og vinnslu
miðsjávarfiska.
Sigurjón leggur meðal annars
mat á hugsanlegt verðmæti á
gulldeplu sem veidd væri til
fiskmjölsframleiðslu. Þar kemur
fram að 50 þúsund tonna ársafli af
gulldeplu gæti skilað 1,5 milljörðum
króna í aflaverðmæti og 2,3
milljörðum í útflutningsverðmæti.
Hvað er gulldeplustofninn stór?
Frekar litlar rannsóknir hafa farið
fram á gulldeplu. Í janúar 2010
stóð Hafrannsóknastofnun fyrir
sérstökum leiðangri til að kortleggja
útbreiðslu og magn gulldeplu
á Íslandsmiðum. Niðurstöður
leiðangursins sýndu að gulldeplu
var að finna frá Vesturlandi og allt
austur að Austfjörðum.
Mestur var þéttleikinn á því svæði
sem veiðiskip voru á. Áætlað var að
magn gulldeplu í leiðangrinum hafi
verið um 250 þúsund tonn, þar af
um 140 þúsund tonn á því svæði
sem veiðar voru stundaðar.
Einnig var farið í leiðangur
2016 þegar þrjú skip tóku þátt í leit
og var hafsvæðið suðvestan við
Ísland kannað langt út fyrir lögsögu
landsins. Þekking hefur einnig
fengist meðal annars í leiðöngrum
á úthafskarfa.
Í ástandsskýrslu Hafrannsókna-
stofnunar 2013/2014 fyrir
nytjastofna sjávar er lagt til að
varlega verði farið í nýtingu
gulldeplustofnsins. Ráðlagt var að
ekki yrði veitt meira næstu árin en
það sem veiddist að meðaltali á
árunum 2009 til 2010, eða um 30
þúsund tonn.
Fjöldi tegunda í miðsjávarlaginu
Gulldepla finnst í miðsjávarlaginu
svonefnda. Það er á 200 til 1000
metra dýpi suður, suðvestur og
suðaustur af landinu og nær
nokkur hundruð sjómílur út. Í
miðsjávarlaginu er afar fjölbreytt
lífríki sem er tiltölulega lítið
rannsakað. Helst er horft til nýtingar
laxsíldar af þeim tegundum sem
finnast í miðsjávarlaginu. Laxsíld
er samheiti yfir margar tegundir.
Á Íslandsmiðum hafa fundist 13
tegundir af laxsíldaætt. Flestar 3 til
15 sentímetrar að lengd.
Í svari Hafrannsóknastofnunar
frá árinu 2019 vegna fyrirspurnar
á Alþingi kemur fram að í
miðsjávarlaginu fyrir sunnan
Ísland hafi meðal annars fundist
100 fisktegundir af um 50 ættum.
Aukin eftirspurn eftir fiskmjöli
Fiskeldi fer vaxandi í heiminum og
eftirspurn eftir fóðri fyrir eldisfiska
hefur þar af leiðandi aukist. Fiskmjöl
og lýsi er uppistaðan í fóðri fyrir
eldisfiska. Flestir nytjastofnar sem
eru hráefni fiskmjölsverksmiðja eru
fullnýttir. Sjónir manna beinast því
í æ ríkari mæli að fisktegundum í
miðsjávarlaginu, einkum að laxsíld
en gulldeplan þykir líka vera álitleg.
Laxsíldir eru líklega sú auðlind
sjávarfiska sem hvað mest er af í
heimshöfunum og er ekki nytjuð
í dag. Geysimikið magn lífvera
er að finna í miðsjávarlögum
í heimshöfunum. Talið er að
heildarlífmassi allra heimshafa
sé um 10 milljarðar tonna, að því
er fram kemur í áðurnefndu svari
Hafrannsóknastofnunar.
NYTJAR HAFSINS
Leitað var að nýjum nytjastofni í loðnubresti 2009:
Ekki er allt gull sem glóir
Gulldepla er þunnvaxinn fiskur, 7 til 8 sentímetrar að lengd. Mynd / Hafrannsóknastofnun.
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Gulldepla er fiskur sem kom nokkuð við sögu sjávarútvegs á Íslandi
fyrir rúmum áratug. Gerðar voru tilraunir til veiða á henni í tvö til þrjú
ár en ekki varð framhald á þeim. Hugsanlega getur gulldeplan og fleiri
miðsævisfiskar skilað miklum verðmætum í þjóðarbúið ef unnt verður
að ná tökum á veiðum og vinnslu.
Gulldeplan þótti erfitt hráefni í
fiskmjölsvinnslu vegna þess hve
hún innihélt mikið salt ...“
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.