Bændablaðið - 04.04.2023, Side 18
18 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Markaðir
148,3 kr
Evra
136,37 kr
USD
168,68 kr
Pund
320,0632kr
95 okt bensín
323,4506 kr
Díesel
18,06 USD
Mjólk (USD/100 pund)
6,92 USD
Korn (USD/sekkur)
30,5 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1318 AUD
Ull (AUD/100 kg)
1,945 USD
Ostur (USD/pund)
4725 EUR
Smjör (EUR/tonn)
Á síðasta ári var markaðshlutdeild erlends kjöts
rúm 16% og jókst hún um þrjú prósentustig
frá árinu á undan, sem er næstmesta aukning
markaðshlutdeildar untdanfarinn áratug.
Í umræðu um stöðu innlendrar framleiðslu og
samkeppni frá innflutningi hefur oft verið rætt um
erfiðleika íslenskra frumframleiðenda til að svara
síbreytilegri eftirspurn tengda auknum íbúafjölda og
ferðamanna. Er það talið vera ein af meginforsendum
síaukins innflutnings. Er það vissulega rétt að
kjötframleiðsla á sér yfirleitt langan aðdraganda og
erfitt er að auka framleiðslu á augabragði. Raunin er
hins vegar orðin sú að íslensk framleiðsla kjöts er
ekki aðeins að dala miðað við fólksfjölgun heldur
er hún farin að minnka í heild sinni. Árið 2022, árið
sem ferðamannafjöldinn kom til baka af fullu afli
eftir heimsfaraldur, lækkaði heildarframleiðslumagn
íslensks kjöts um rúm 620 tonn. Mestu munaði þar
um áframhaldandi samdrátt á lambakjöti.
Markaðsumhverfi íslenskra matvælaframleiðenda
skorðast ekki aðeins við hraða framleiðslunnar heldur
einnig við hátt kostnaðarverð sem ekki verður flúið
þegar hún fer fram á landi með jafn mikil lífsgæði og
raun er á Íslandi. Erfitt er fyrir íslensk fyrirtæki að
keppa við erlend stórfyrirtæki um framleiðslu sem oft
er talin einsleit af neytendum og ódýrasti kostur oftast
valinn. Nú virðist vera kominn ákveðinn vendipunktur
í kjötframleiðslu á landinu. Innflutningur er því ekki
aðeins að mæta íbúafjölgun og ferðamannastraumi
heldur er farinn að kroppa í íslenska framboðið. Á
því verði sem býðst á markaðnum núna hefur vægi
tollverndarinnar dvínað, samkeppnin harðnað og
spurning um hver næstu skref verða. /SFB
Samdráttur í
kjötframleiðslu á landinu