Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
LÍF&STARF
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
Mekka pottaplönturæktunar er í Hveragerði. Einungis tveir
framleiðendur rækta pottaplöntur allan ársins hring og eru
þeir báðir starfræktir í blómabænum. Annar þeirra er Birgir
Steinn Birgisson hjá garðyrkjustöðinni Ficus.
Páskarnir eru háannatími hjá Birgi, sem færir tilteknum
stórverslunum 25.000 hátíðarliljur ´Tete a tete´ til sölu og dreifingar
ásamt fleiri fallegum gullituðum blómum. Birgir ræktar pottaplöntur
og sumarblóm og dreifir þeim í umboðssölu í helstu stórmarkaði.
Hátíðarliljurnar ́ Tete a tete´eru þeim gæðum gæddar að eftir að þær
hafa prýtt híbýli landans er hægt að planta þeim út í garð. Að tveimur
árum liðnum koma þær svo upp aftur og blómstra þegar jörð þiðnar.
Birgir ræktar um 250.000 inniplöntur og 150.000 sumarblóm yfir
árið. Hann hefur ekki tölu á tegundum og segir að handtökin séu
þónokkur. Hann fagnar pottaplöntuáhuga landans, sem sannarlega
glæðir heimilin huggulegheitum og tryggir rekstrargrundvöll
framleiðenda á borð við hann.
„Á tíu ára tímabili átti fólk ekki að hafa blóm heima hjá sér. Allar
auglýsingar í Bo Bedre og Hús&híbýli sýndu steríl heimili.“ Það
reyndust erfið ár fyrir framleiðendur.
„Svo kemur hrunið. Þá fer fólk meira að spá í hlutina heildrænt.
Ungt fólk fór að versla plöntur og gera umhverfi sitt huggulegra en
líka til að auðga súrefni á heimilinu. Síðan í hruninu hefur bæði áhugi
og sala á pottaplöntum vaxið.“
Birgir segir þessa tískubylgju í kjölfar hruns ekki tilviljun.
„Eldri garðyrkjubændur sögðu alltaf að þegar þjóðfélagið horfist
í augu við vandamál þá aukist sala á plöntum. Ég varð var við það
í heimsfaraldrinum. Fyrsta mánuðinn seldi ég ofboðslega lítið því
enginn fór út úr húsi. En svo jókst salan og ég hef aldrei selt jafn
mikið og á því tímabili, enda vildi fólk hafa fallegt heima hjá sér því
það þurfti að hanga þar svo mikið.“
Birgir á sér uppáhaldsplöntu. „Hortensía er drottning blómanna.
Hún er erfið, þarf að drekka mikið og lætur ekki gleyma sér. Þú getur
fengið hana aftur í blóma með því að hafa hana inni í óupphituðu
gróðurhúsi yfir vetur. Hún myndar ný blóm við kulda. Með því að
klippa hana svo vel niður í marsmánuði þá tekur hún við sér og
blómstrar aftur í júlí eða ágúst.“ /ghp
Gular plöntur í algleymi
– Ræktar 25.000 hátíðarliljur fyrir páska
Mikið úrval fagurra blóma má finna hjá garðyrkjustöðinni Ficus. Ástareldur, gulir páskalyklar og hátíðarliljurnar ´Tete a tete´ blasa við, en á síðustu myndinni sjást þær síðastnefndu í kæli.
Birgir og starfsmenn hans voru í óðaönn að pakka hátíðarliljunum ´Tete a tete´ til dreifingar í stórverslunum um land allt.
Þær eru þeim gæðum gæddar að eftir að þær hafa prýtt híbýli landans er hægt að planta þeim út í garð.
Hortensíur eru í uppáhaldi hjá Birgi. Hann ræktar þær í öllum regnbogans litum.