Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 38

Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Árið 1947 var fyrsti vinningur í happdrætti SÍBS fjögurra manna flugbátur af gerðinni Republic Sea-Bee, sem gat lent á landi og vatni. Ung systkini úr Reykjavík áttu vinningsmiðann og gerðust eigendur flugvélar, tveggja mánaða og fjögurra ára gömul. Upphaf þessa máls má rekja til þess er Samband íslenskra berklasjúklinga (SÍBS) efndi til mikils happdrættis til að standa undir kostnaði við byggingu Vinnuheimilisins að Reykjalundi í lok árs 1945. Í fyrstu verðlaun var áðurnefnd flugvél ásamt flugnámi, en einnig var hægt að vinna skemmtibát, jeppa, málverk eftir Kjarval, ferðalög, golfáhöld o.fl. Í Morgunblaðinu 15. janúar 1946 birtist grein þar sem blaðamaður lýsir hinum „fljúgandi fiskibáti“ og studdist við umsagnir í bandarískum flugvélatímaritum, enda var flugvélin ekki komin til landsins: „Vjelin lætur betur að stjórn en flestar eða allar sem nú eru fáanlegar. Skrokkurinn gerður með það fyrir augum að fara sem best í sjó. Getur því að fullu gagni gegnt hlutverki skemmtihraðbáts á vötnum og kyrrum sjó. Lyfta má þaki af stefninu fyrir framan klefann, þá vjelin er sest á veiðivatnið, þar er rúm fyrir veiðimenn. – Þeir munu þá varpa drekanum fyrir borð og taka til við stangarveiði með áhuga miklum og gleðskap, en frúin framreiðir inni í prúðbúnum klefanum. – Þetta líka indæla nesti. (Ó, hvílík sæla að lifa á 20. öldinni miðri og eiga flugbát S.Í.B.S.)“ Kom á óseldan miða Útdrátturinn átti upphaflega að fara fram 1. febrúar 1946, en frestaðist til 15. þess mánaðar. Níu ára gömul stúlka, Guðný Sigurjónsdóttir, dró númerin hjá borgarfógeta með bundið fyrir augun. Flugvélin kom upp á númer 121.477, en í lok mánaðarins kom í ljós að það númer var óselt. Stjórn SÍBS sendi frá sér tilkynningu þess efnis að leitað yrði heimildar um að mega tölusetja merki sín á næsta Berklavarnardegi og nota þau sem happdrættismiða svo hægt væri að draga um flugvélina að nýju, enda var hún „aðalkeppikeflið“. 6. október 1946 hófst sala merkjanna og var sölunni haldið áfram alveg að útdrættinum. Í auglýsingu í Þjóð- viljanum 6. október segir: „S.Í.B.S.-flugvélin er fjögra manna láðs- og lagðarvél. Fullkomnasta einkaflugvél , sem smíðuð er í Ameríku. Fyrir milligöngu Thors Thors sendiherra hefur loks tekizt að fá vélina afgreidda og mun hún fara í skip í N.Y. um miðjan nóv [...]. Á Þorláksmessu næstkomandi verður dregið um vélina og eingöngu dregið úr seldum merkjum. Sam- tímis verður hún til sýnis á velli og í lofti.“ Erfitt að fá til landsins Heimildir benda til þess að brösuglega hafi gengið að fá flugvélina til landsins. Í Þjóðviljanum 29. desember 1946 segir að: „Vegna misskilnings og lítt skiljanlegra mistaka, varð flugvél SÍBS eftir í New York er leiguskip Eimskipafélagsins fór þaðan, áleiðis til Reykjavíkur, í byrjun þessa mánaðar [...]. Ákveðið hafði verið að draga um vélina á Þorláksmessu, en nú verður S.Í.B.S., til að fullnægja lögum, að fresta drættinum, þar til vélin er hingað komin [...]. Vonandi eru nú allir erfiðleikar S.Í.B.S. vegna þessarar flugvélar úr sögunni og að þessi ágæti gripur eigi eftir að ryðja brautina til flugferða almennings í eigin vélum, hér á landi.“ Hún kom svo loksins til landsins í byrjun árs 1947. Í Þjóðviljanum 29. janúar 1947 segir: „Flugvél þessi, sem aðeins er nýkomin hingað til lands, er hin vandaðasta og fallegasta. Fór íslenzkur flugmaður út til að kynna sér byggingu slíkra flugvéla sem þessarar og hefur hann séð um samansetningu hennar hér. Flugvél þessa fékk sambandið fyrir milligöngu h.f. Flugvirkinn, en það félag hefur umboð fyrir þessar flugvélar. Gekk mjög illa að fá hana, vegna þess að fjöldaframleiðsla á þessari tegund véla er ekki hafin vestra, en fyrir ötula framgöngu forstjóra h.f. Flugvirkinn, Björns Jónssonar, og góða aðstoð sendiráðsins í Washington, gekk það samt vonum fremur. - Framhald á næstu opnu LÍF&STARF Rúlluplastið sem bændur treysta Sláturfélag Suðurlands Fosshálsi 1, Reykjavík - 575 6070 buvorur@ss.is - www.buvorur.is Rúlluplast 2023 Saga vélar: Ung börn eignuðust flugvél – Happdrættisvinningur sem átti stuttan en viðburðaríkan feril Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Björn Björgvinsson, fjögurra ára eigandi flugvélar, árið 1947. Vélin var seld til Flugfélagsins Vængja þar sem hún var notuð í leiguflug og áætlunarflug á Akranes og fleiri minni kauptún. Hún sökk í Þingvallavatni og var bjargað, en lenti síðar í bruna og endaði sem vinnuskúr. Mynd / Úr einkasafni Björn og Guðbjörg systir hans unnu flugvélina í happdrætti SÍBS. Mynd / Úr einkasafni Lítill flugmaður klár í flugferð yfir Reykjavík í febrúar 1947. Mynd / Úr einkasafni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.