Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 43

Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Kynntu þér einn vinsælasta trjákurlara Evrópu. Hreinir Garðar er umboðsaðili Först á Íslandi. hreinirgardar.is 571-2000 MEIRI KRAFTUR MEIRI AFKÖST Skannaðu mig! alveg nýr gagnabanki fyrir honum,“ segir Kristín og Bjarni bætir við: „Ég skrifaði doktorsritgerð þar sem við þróuðum tölfræðiaðferð til að meta líkur á langtíma endingu munngerva. Þessi aðferð líkist BLUP útreikningum. Við notumst mikið við tölfræði á bak við okkar ræktun og höfum sett okkur ákveðin skilyrði sem við reynum að halda í vali á stóðhestum og ræktunarhryssum,“ segir Bjarni en hugmyndafræðin hjá þeim er mjög einföld; rækta undan hryssum sem eru með ákveðna útgeislun og fyrstu verðlaun fyrir byggingu og hæfileika, mæður þeirraa og ömmur þurfa líka að standast sömu kröfur. „Þetta er mjög feminísk ræktunarstefna en þetta er ekki flókið, ef þú horfir á tölfræði þá skiptir hryssan bara svo gríðarlega miklu máli. Stóðhesturinn getur ekki bjargað öllu, ég hef reiknað út alls konar í tengslum við hrossaræktina og við vöndum valið vel. Það er kannski engin tilfinning í þessu – en það er mikil tölfræði,” segir Bjarni og brosir. Kristín er nú kannski ekki alveg sammála þessu en oft fara hestar sem hrífa þau í brautinni á listann yfir líklega hesta til undaneldis. Blaðamaður bendir þeim á að margir af bestu hestunum hafi nú orðið til undan lágt skrifuðum hrossum og er Bjarni snöggur að svara því. „Það köllum við tilviljunargæðinga en samkvæmt mínum útreikningum eru ekki nema 7% líkur, eða 1 af 18, á því að það gerist. Orri frá Þúfu, sem er án efa mesti kynbótahestur allra tíma, er dæmi um tilviljunargæðing undan ósýndri hryssu þannig að sem betur fer eru ekki allir að beita tölfræðinni eins og við.“ Langt fram úr villtustu útreikningum Á Landsmóti síðasta sumar var Sindri frá Hjarðartúni sýndur. Sindri, sem er ræktaður af Óskari en í eigu þeirra Kristínar og Bjarna, sló hæfileikamet Spuna frá Vesturkoti og Arion frá Eystra-Fróðholti og er nú hæfileikamesti íslenski hesturinn. Hesturinn var sýndur af Hans Þór Hilmarssyni en hann og kona hans Arnhildur Helgadóttir eru bústjórar í Hjarðartúni. „Við kaupum Sindra veturgamlan og þegar við tókum hann inn til frumtamningar létum við hann hlaupa í reiðhöllinni. Okkur leist strax vel á hann. Hann þróaðist vel og vorum við Hansi farnir að gera okkur vonir um að hann færi kannski einhvern tímann yfir 9,0 fyrir hæfileika. Að hann myndi slá metið ímyndaði ég mér aldrei,“ segir Bjarni og Kristín skýtur inn í að hans villtustu útreikningar hefðu aldrei komist að þessari niðurstöðu. „Það var alveg merkilegt að fá að upplifa þetta. Ég sat í brekkunni og hreifst svo af hestinum. Síðan allt í einu í miðri sýningu þá fattaði ég að þetta var hesturinn minn. Ég get alveg tárast yfir fallegu tölti en að sjá hest getur oft snert listrænar taugar hjá mér, bara eins og þegar maður hrífst af fallegri tónlist eða einhverju slíku. Þarna greip hann mig alveg,“ segir Kristín. Þau Bjarni eru ævintýralega ánægð með árangur Sindra og ræktunarbúsins síðustu ár en Hjarðartún hefur verið tilnefnt sem ræktunarbú ársins þrjú ár í röð. „Gallinn við þetta hjá okkur er kannski að þetta hefur byrjað aðeins of vel. Til að ná góðum árangri þá þarftu góða aðstöðu, góðan hestakost og gott samstarfsfólk. Við höfum verið ótrúlega heppin með allt þetta þrennt. Ef eitthvað af þessu er ekki í lagi þá er þetta aldrei að fara virka.“ Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson í verðlaunaafhendingu á Landsmóti þar sem Sindri stóð efstur í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta. Mynd / Henk Petersen Þau Bjarni og Kristín hafa átt í góðu samstarfi með þeim Óskari og Ásu, fyrrum eigendum Hjarðartúns. Hér á góðri stundu á Landsmóti, f.v. Bjarni, Kristín, Arnhildur Helgadóttir á Völu frá Hjarðartúni, Klara Sveinbjörnsdóttir á Dagmar frá Hjarðartúni, Birgitta Bjarnadóttir á Dimmu frá Hjarðartúni, Óskar og Ása Margrét Jónsdóttir. Mynd / Louisa Lilja Í kjölfar hestaferðar árið 2004 keyptu hjónin sitt fyrsta hross.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.