Bændablaðið - 04.04.2023, Page 52
52 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Samúel Jónsson, bóndi á Brautar
holti í Selárdal í Arnarfirði, er einn
þekktasti alþýðulistamaður sem
Ísland hefur alið. Félag um listasafn
Samúels var stofnað fyrir 25 árum í
þeim tilgangi að vernda verk hans.
Á þessum tímamótum kemur út
bókin Steyptir draumar um líf og list
þessa sérstæða listamanns.
Samúel Jónsson, 1884 til 1969,
var bóndi í Selárdal í Arnarfirði og í
Krossadal í Tálknafirði. Hann ólst upp
við kröpp kjör, var lengi vinnumaður
í Selárdal en myndlist heillaði hann
alla tíð.
Sjálflærður í listinni
Samúel var sjálflærður í listinni, en sem ungur maður
teiknaði hann talsvert og málaði með vatnslit og olíulit.
Listaferill hans hófst ekki fyrir alvöru fyrr en hann hafði
efni á að kaupa sement fyrir ellilífeyrinn í þeim tilgangi
að reisa listasafn og höggmyndagarð og svo bættist kirkja
við, með býsönskum turni sem hann byggði einn síns
liðs, kominn hátt á áttræðisaldur. Þá kom vel í ljós að
Samúel var mikill verkfræðingur í sér. Kirkjuna reisti
Samúel þegar sóknarnefndin vildi ekki þiggja altaristöflu
sem hann hafði málað fyrir Selárdalskirkju.
Höggmyndagarður, listasafn og kirkja
Í þessari áhugaverðu bók er fjallað um líf og list
Samúels og birtar myndir af verkum hans sem flest eru í
einkaeigu, en mörg hafa glatast. Einnig eru birtar myndir
sem sýna Samúel á síðustu árum hans á Brautarholti þar
sem hann byggði höggmyndagarð, listasafn og kirkju.
Jafnframt segir frá endurreisnarstarfinu frá því
Félag um listasafn Samúels var stofnað 1998. Ólafur
J. Engilbertsson er ritstjóri bókarinnar. Gerhard König
skrifar um sýn og aðferðir Samúels og ásamt Kára G.
Schram skrifa þeir um endurreisnarstarfið.
Bókin er 160 blaðsíður að stærð, innbundin og í
stóru broti og prýdd fjölda ljósmynda. Hún fæst í helstu
bókaverslunum og hjá útgefendum, Listasafni Samúels
og Sögumiðlun. Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur
til áframhaldandi viðgerða á verkum Samúels. Nánari
upplýsingar um Samúel og listasafnið er að finna á
vefnum samuelssafn.is. /VH
Snorri Aðalsteinsson, fyrrverandi
trillusjómaður frá Höfn í Hornafirði,
hefur sent frá sér ljóðabók sem hann
kallar Gullvör.
Að sögn Snorra veitti einveran á miðunum
honum oft gott næði til að setja saman ljóð í
bundnu máli og þrátt fyrir að hann hætti á sjó
héldu ljóðin á ram að verða til. Í bókinni er
að finna bæði ljóð og lausavísur á íslensku
og ensku
Heitið Gullvör er rakið til hjartagóðs
verndarvættis sem heldur til í Hrafnkelsdal
í Múlaþingi og gengur suður úr Jökuldal.
Vætturinn er ábúendum og ekki síst börnum
í dalnum hjálparhella þegar á þarf að halda
og þykir það góðs vottur vitjist Gullvör
einhverjum í draumi.
Í kynningu segir að Snorri sé fæddur
og uppalinn í Vaðbrekku í Hrafnkelsdal og að bókin líti dagsins ljós í
framhaldi þess að frændi hans, Ragnar Ingi, frá sama bæ hafi kvatt hann til
að gefa hana út. /VH
Moldin fæðir og klæðir íbúa
heimsins. Íslenskur jarðvegur
er einstakur á heimsvísu, frjór
en viðkvæmur – órofa hluti af
íslenskri náttúru.
Í bókinni Mold ert þú fjallar
dr. Ólafur Arnalds um jarðveg frá
mörgum ólíkum hliðum.
Ólafur segir
að bókin byggi
á reynslu og
þeirri þekkingu
sem hann
hefur aflað
sér í námi og
við rannsóknir
og kennslu
allt frá því að
hann tók þátt
í viðamiklum
beitartilraunum sem starfsmaður
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
frá árinu 1976, síðan í námi í
jarðvegsfræði í Bandaríkjunum og
í störfum allar götur síðan.
„Þau störf hafa meðal annars
miðast við að skilgreina og kortleggja
jarðvegsrof á Íslandi en einnig að
rannsaka eðli jarðvegsins á Íslandi
sem hefur getið af sér jarðvegskort
af landinu. Í bókinni er lögð áhersla
á moldina sem hluta af vistkerfum
og náttúru landsins. Fjallað er um
vatnshringrásina og af hverju moldin
gegnir lykilhlutverki við verndun
vatns og miðlun þess. Kolefni í mold
fær mikið rými, enda gegnir jarðvegur
afar mikilvægu hlutverki fyrir
hringrás gróðurhúsalofttegunda auk
þess að stuðla að frjósemi vistkerfa.
Meira er af kolefni í mold en gróðri
og andrúmslofti samanlagt.“
Mold frá mörgum hliðum
Mold ert þú er efnismikil, stór og
glæsileg bók þar sem fjallað er
um jarðveg og umhverfismál frá
mörgum hliðum. Bókin skiptist
í þrjá meginhluta, grunnþætti
jarðvegsfræðinnar, íslenska mold og
umhverfið. Veitt er innsýn í eiginleika
jarðvegs, jarðveg á Íslandi og varpað
er ljósi á tengsl moldarinnar við
náttúru landsins og stöðu vistkerfa.
Sagt er
frá afgerandi
á h r i f u m
frosts á
n á t t ú r u
l a n d s i n s
og mótun
landslags.
Sandur og uppfok fær einnig
rými, enda telst landið vera með
mikilvirkustu uppsprettum ryks á
jörðinni, sem mótar vistkerfi um
land allt, veðurfar og jafnvel frjósemi
hafsvæðanna umhverfis landið.
Fjallað er um landhnignun út frá
hnattrænum sjónarmiðum sem og
rætur hennar. Síðan er fjallað um
áhrif landnýtingar á vistkerfi hér á
landi sem annars staðar í heiminum
og hruni íslenskra vistkerfa er
gefinn sérstakur gaumur. Síðast en
ekki síst er fjallað um nauðsyn þess
að endurheimta vistkerfi, enda er
þessi áratugur helgaður vistheimt á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Fróðleg bók
Bókin er prýdd miklum fjölda ljós-
og skýringamynda sem unnar voru
af Fjólu Jónsdóttur og sem auka enn
á innsýn lesenda á efninu.
Mold ert þú er fróðleg bók fyrir alla
sem áhuga hafa á náttúrufræði auk
þess sem hún ætti að nýtast við kennslu
í náttúru- og umhverfisfræðum auk
jarðvegsfræði.
/VH
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
MENNING
Jarðvegur og íslensk náttúra:
Mold ert þú
Altaristafla sem sýnir upprisu Krists. Máluð
af Samúel Jónssyni bónda í Selárdal og
varðveitt á Listasafni ASÍ.
Listasafn Samúels Jónssonar í Selárdal:
Steyptir draumar
Gullvör
– Hjartgóður vættur í Hrafnkelsdal
Bændablaðið kemur næst:
27. apríl
Kirkjan sem Samúel Jónsson bóndi reisti á Brautarholti í Selárdal eftir að að sóknarnefndin vildi ekki hafa altaristöfluna
sem hann hafði málað í Selárdalskirkju. Myndir / Félag um listasafn Samúels