Bændablaðið - 04.04.2023, Page 56
56 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Í tengslum við stefnumótun fyrir
skýrsluhaldskerfi Bændasam-
takanna var, í byrjun febrúar, send
út könnun fyrir notendur Fjárvís.
Könnunin var unnin í samvinnu
við fagráð í sauðfjárrækt og miðaði
að því að kanna afstöðu notenda til
kerfisins og þróun þess til framtíðar.
Uppsetning á könnuninni
og þátttaka
Könnunin var sett upp þannig að
fyrst voru nokkrar grunnspurningar
s.s. bústærð, staðsetning, aldur, kyn
og tegund bús. Þar á eftir komu
spurningar varðandi notkun og
áherslur varðandi þróun á Fjárvís.
Sérstaklega var spurt út út í notkun á
Lamb Snjallforriti. Könnunin var sett
þannig upp að fjöldi spurninga var
mismunandi eftir því hvernig menn
svöruðu ákveðnum lykilspurningum.
Ekki var gerð krafa um svör við
öllum spurningum þannig að hægt
var að hoppa yfir spurningar, þó
langflestir hafi valið að svara öllum
spurningum.
Könnunin var auglýst á heimasíðu
RML, á samfélagsmiðlum auk þess
sem sendur var fjölpóstur í gegnum
Bændatorg á skráða notendur
Fjárvís. Alls svöruðu 418 notendur
könnuninni. Ef það er sett í samhengi
við fjölda skráðra notenda eru það
rúmlega 25%. Það ber þó að taka
fram að ekki er hægt að meta þetta
nákvæmlega þar sem eflaust hafa
einhverjir nýtt sér það að fleiri en einn
aðili gat tekið könnunina í gegnum
sama Fjárvís aðgang.
Niðurstöður: Notkun á Fjárvís
Þátttakendur dreifðust nokkuð jafnt
yfir landið ef horft er til dreifingu
sauðfjárbænda á landinu. Flest búin
voru á bilinu 101-300 kindur en heilt
yfir var rétt rúmlega helmingur
þátttakenda með bústærð stærri en
300 kindur. Flestir þátttakendur voru
á aldrinum 51-67 ára en næstflestir
á bilinu 31-50 ára. Rúmlega 9%
þátttakenda voru yngri en 30 ára
og tæplega 10% voru eldri en 67
ára. Fleiri karlar en konur tóku
þátt og rétt rúmlega helmingur
búanna hafði ekki tekjur af annarri
atvinnustarfsemi á búinu.
Almennt voru þátttakendur á því að
Fjárvís væri einfalt í notkun, eða 88%
af þeim sem svöruðu þeirri spurningu.
Þeir sem töldu Fjárvís flókið og
óno tendavænt
nefndu helstu
ástæður fyrir því að
kerfið væri þungt í
notkun og/eða að
uppsetningin á því
væri flókin.
Hvað varðar
notkun á ein-
stökum hlutum
Fjárvís þá var mest notkun í kringum
haustupplýsingar og úrvinnslu úr
þeim, s.s. að lesa inn sláturupplýsingar,
skrá lífþunga lamba og dóma á haustin
og vinna úr þeim strax með því að
nýta sér kjötmatsskýrslur og önnur
sambærileg yfirlit þar sem bornir eru
saman hrútarnir á búinu, en mikill
meirihluti þátttakenda merkti við
þessa þætti. Minni áhersla virðist
vera á að skoða skýrslur þar sem
verið er að bera saman t.d. hrúta innan
fjárræktarfélags eða afurðir innan
fjárræktarfélags, eða á landsvísu. Þess
ber þó að geta að almennt virðist sá
hópur sem tók þátt í könnuninni vera
nokkuð virkur notendahópur Fjárvís
því einungis 30% af þátttakendunum
sögðust eingöngu nota Fjárvís til að
skila vor- og haustbók en að jafnaði
virtist a.m.k helmingur þátttakenda
vera að nota meirihluta skráningar- og
skýrslumöguleika, þó í mismiklum
mæli. Langflestir töldu Fjárvís
vera mjög mikilvægt, bæði sem
bústjórnartæki og sem hjálpartæki í
ræktunarstarfinu.
Áherslur í þróun
Þegar kom að spurningum er sneru
að áherslum í þróun þá höfðu
þátttakendur nokkuð skýra sýn á hvert
stefna ætti. Meirihluti þátttakenda taldi
mikilvægast að leggja áherslu á að
hægt væri að vinna í Fjárvís í gegnum
snjalltæki. Almennt töldu menn einnig
mikilvægt að Fjárvís gæti unnið með
jaðartækjum (s.s. örmerkjalesurum),
væri einfaldað í notkun og að lögð
væri áhersla á frekari gagnasöfnun.
Fæstir völdu þann möguleika að
auka ætti framboð af skýrslum og
úttektum. Margir völdu að skila inn
frjálsu svari er kom að áherslum í
þróun og studdu þau svör við
niðurstöður úr fyrri spurningum
hvað varðar notkun á snjalltækjum
og tengingu við örmerkjalesara
þannig að Fjárvís væri skilvirkara
vinnutæki í fjárhúsunum bæði til
skráningar og úrvinnslu. Mjög
margir nefndu líka einföldun á
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Raðnúmer: 521097
MERCEDES-BENZ
SPRINTER 519
Árgerð: 2019
Akstur: 251 þ. km.
Skipting: Sjálfskipting
Orkugjafi: Dísel
Drif: Fjórhjóladrif
Nýskráning: 10/2019
Verð
5.590.000 kr.
án vsk.
Krókhálsi 7, 110 Reykjavík | Sími 590 2160 | www.notadir.is
Það styttist óðfluga í sauðburð.
Líklega er spenna víða ívið meiri
en oft áður að sjá lömbin þar sem
nú munu fæðast fyrstu lömbin úr
sæðingum sem gætu verið með
verndandi arfgerðir m.t.t. riðuveiki.
Hér verða teknir saman nokkrir
punktar varðandi næstu skref í
arfgerðargreiningarmálum.
DNA sýnataka í vor
Áætlað er að um 5.500 lömb fæðist
í vor sem mögulega geta borið ARR
genasamsætuna eða breytileikann
T137. Reyndar mun aðeins um
helmingur þessara lamba bera ARR
eða T137 þar sem foreldrarnir eru
allir arfblendnir nema ein ær. Það er
hins vegar lykilatriði í því að fylgja
eftir innleiðingu verndandi arfgerða
að réttu lömbin verið sett á og því
er nauðsynlegt að arfgerðargreina
þessi lömb. Þó vel hafi gengið að
greina sýni sl. haust þá ætti það að
vera mun skilvirkara að greina strax
í sumar öll lömb sem fyrir liggur að
þurfi að greina hvort sem er. Í raun
má segja að sá hluti afkvæmanna sem
ekki bera hinar eftirsóttu arfgerðir ætti
ekki að horfa til sem ásetnings nema í
undantekningartilfellum. Það er vegna
þess að hlutdeild þessara upphafshrúta
í ræktun fyrir þoli gegn riðu mun verða
mjög fyrirferðarmikil í stofninum á
næstu árum og næg áskorun að sporna
við aukningu skyldleikaræktar þó
aðeins sé ræktað út frá þeim hluta sem
bera arfgerðirnar góðu.
Þá munu einnig fæðast mörg lömb
sem getur verið spennandi að greina
sem bera aðrar arfgerðir. Áfram er lögð
áhersla á að fjölga öllum arfgerðum
sem hugsanlega geta veitt einhverja
vernd. Á áhættusvæðum gagnvart
riðuveiki þarf í raun að stefna á að
engin kind sé með hlutlausa arfgerð
(ARQ/ARQ) og að sjálfsögðu að
útrýma áhættuarfgerðinni (VRQ/-
). Því eru menn einnig hvattir til að
vera vakandi yfir þeim lömbum sem
geta fæðst með C151 og þá eru sumir
komnir það langt í ræktun á lítið næmu
arfgerðinni AHQ (H154) að von getur
verið á arfhreinum einstaklingum sem
er þá um að gera að greina strax í vor.
Helst að panta fyrir 10. apríl
Opnað hefur verið fyrir pantanir á
sýnatökubúnaði á heimasíðu RML.
Best er ef bændur verða búnir að
panta sýnatökubúnað fyrir 10. apríl,
en þá verður hafist handa við að
afgreiða búnaðinn. Hægt er að biðja
um að fá hann sendan í póstkröfu
eða sækja á næstu starfsstöð RML.
Bændur skila síðan inn sýnum sem
fyrst eftir að sauðburði lýkur, þannig
að náist að greina öll sýni í tæka tíð
fyrir haustið. Hægt verður að velja um
að fá sýnapinna frá Matís til að taka
stroksýni eða hylki fyrir vefjasýni til
að senda til Agrobiogen í Þýskalandi.
Matís sýnin skal senda rakleitt til Matís
til greiningar en hylkin þarf að senda á
starfsstöð RML á Hvanneyri. Verð á 6
sæta greiningu hjá Matís verður 4.300
kr. án vsk.
Einkeyrslugreiningar
– nýjung í boði
Agrobiogen býður nú upp á hagstæðari
greiningar sem hentar vel þegar
áhuginn er aðallega fyrir því að skoða
ákveðið sæti. Þetta eru svokallaðar
einkeyrslugreiningar en þær geta þó
gefið upplýsingar um 1 til 3 sæti eftir
því hvaða breytileika á að greina. Þetta
ætti að vera vænlegur kostur þar sem
verið er að fylgja eftir notkun hrúta
með ákveðnar arfgerðir þar sem fyrsta
mál er að vita hvort sú arfgerð hafi
skilað sér eða ekki. Hægt verður að fá
viðbótargreiningu á sama sýnið í haust
ef þörf krefur. Ef bændur ætla að nýta
sér einkeyrslugreiningar þarf að velja
einn möguleika af eftirfarandi:
• Nr. 1 – sæti 136, 137 og 138 (gefur
upplýsingar um breytileikana V136
(veldur áhættuarfgerð), T137 og
N138)
• Nr. 2 – sæti 151 og 154 (gefur
upplýsingar hvort C151 eða/og H154
(AHQ) sé að finna)
• Nr. 3 – sæti 171 (gefur upplýsingar
um R171 (ARR))
Einkeyrslugreiningin mun kosta
2.160 kr. án vsk en 6 sæta greining
2.910 kr. án vsk (verð birt með fyrirvara
um verulegar gengisbreytingar). Stærri
greiningin hentar betur ef báðir foreldrar
gætu búið yfir áhugaverðum breytileika
en í ólíkum sætum. Til dæmis ef kind
með lítið næmu arfgerðina AHQ hefur
verið sædd með ARR hrút. Mikilvægt
er þegar sýnum verður skilað inn
að sýnin séu flokkuð og í merktum
umbúðum eftir því hvaða greiningu þau
eiga að fá. Þetta verður útskýrt nánar í
leiðbeiningum sem fylgja hylkjunum.
Hvatastyrkir – ARR og T137
Sérstaklega er mikilvægt að fylgja eftir
innleiðingu verndandi og mögulega
verndandi arfgerða þar sem tíðni
þeirra er afskaplega lág í stofninum.
Þess vegna verða veittir hvatastyrkir
út á greiningar á afkvæmum foreldra
sem bera ARR eða T137. Styrkurinn,
sem kemur úr Þróunarsjóði sauðfjár-
ræktarinnar, verður 1.800 kr. pr
greiningu, óháð því hvort greint
hafi verið eitt sæti eða fleiri og óháð
greiningaraðila.
Bændur geta sótt um styrkinn
þegar sýnatökuefni er pantað á
heimasíðu RML. Styrkurinn verður
síðan miðaður við fjölda lamba á
hverju búi sem eru undan ARR eða
T137 gripum og hafa skráðar DNA
niðurstöður í Fjárvís.
Hvað er að frétta af
riðurannsóknum?
Rannsóknir á næmi mismunandi
arfgerða standa enn yfir í Frakklandi.
Þar hefur verið unnið að rannsóknum
frá því í haust. Verið er að prófa næmi
heilbrigðra heilavefja úr kindum sem
bera mismunandi arfgerðir með því að
reyna að smita þessi sýni með smitefni
úr íslenskum kindum. Niðurstöðurnar
munu gefa mikilvægar vísbendingar
um hversu næmar mismunandi
arfgerðir eru gagnvart riðusmiti.
Á fagfundi sauðfjárræktarinnar,
sem fagráð í sauðfjárrækt stendur
fyrir á Hvanneyri fimmtudaginn
13. apríl, mun vísindamaðurinn
Vincent Beringue kynna stöðuna
á þessum rannsóknum. Stefnt er
að því að streyma frá fundinum en
hann verður kynntur betur þegar nær
dregur.
Eyþór Einarsson.
Fjárvís.is
Helstu niðurstöður notenda-
könnunar og næstu skref
Arfgerðargreiningar, hvatastyrkir
og næmisrannsóknir
Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir.
Fjárvís er gagnlegt bústjórnartæki og hjálpartæki í ræktunarstarfi.
Mynd / Myndasafn Bbl