Bændablaðið - 04.04.2023, Side 61

Bændablaðið - 04.04.2023, Side 61
61Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 HAFÐU SAMBAND UMHVERFISVÆN HREINSISTÖÐ Skólphreinsibúnaður fyrir sumarbústaðinn, heimilið og fyrirtækið. 4601706 Hreint vatn, ýtrustu kröfur um hreinsun á frárennsli, frá böðum, salernum, vöskum og þvotta- og uppþvottavélum. Búnaðurinn uppfyllir ströngustu vistfræðilegar kröfur sem gerðar eru á Evrópska efnahagssvæðin. Hreinsar fosfór og köfnunarefni. ENGIN LYKT - ENGIN SITURLÖGN hagvis@hagvis.is www.hagvis.is Tafla 4. Efstu bú landsins samkvæmt einkunn fyrir holdfyllingu sláturlamba (gerð) þar sem fjöldi sláturlamba eru 100 eða fleiri. Tafla 5. Efstu bú landsins samkvæmt vaxtarhraða lamba (g/dag) þar sem fjöldi sláturlamba eru 100 eða fleiri. á heimasíðu RML yfir bú sem náð hafa mjög góðum árangri með sína hjörð að teknu tilliti til margra þátta. Þessar viðmiðanir hafa verið í mótun og tekið breytingum og þá ekki síst núna 2022 þar sem þeim var breytt umtalsvert. Hér má sjá hverjar þessar viðmiðanir eru fyrir árið 2022. Eðlilegt er að svona viðmiðanir taki nokkuð örum breytingum í takt við vonandi almennt betri árangur hjá fleirum. Bú með fleiri en 100 skýrslufærðar ær þar sem fædd lömb eftir fullorðnar ær eru fleiri en 1,90 og lömb til nytja fleiri en 1,71, fædd lömb eftir veturgamlar ær eru fleiri en 0,90 reiknað dilkakjöt eftir allar ær er landsmeðaltal (>25,0 kg), gerðarmat sláturlamba er yfir 9,5, fitumat sláturlamba er 5,4-8,0, hlutfall gerðar og fitu yfir 1,3. Eins ná inn á listann bú með góðar afurðir, þ.e. reiknað dilkakjöt eftir allar ær (>30 kg) og nytjahlutfall >90% þó frjósemi sé minni en 1,9 lömb fædd. Að öðru leyti er vísað á þennan lista á heimasíðu RML þar sem hann er að finna meðal annara niðurstaðna skýrsluhalds í sauðfjárrækt árið 2022. Niðurstöður fyrir flokkun sláturlamba Í skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir framleiðsluárið 2022 eru upplýsingar um 431.703 sláturlömb á 1.533 búum. Meðalfallþunginn var 17,0 kg, einkunn fyrir holdfyllingu 9,39 og einkunn fyrir fitu 6,51. Árið 2021 voru sláturlömbin 453.589. Meðalfallþungi var þá 17,7 kg , einkunn fyrir holdfyllingu 9,47 og einkunn fyrir fitu 6,77. Það er því talsverður munur milli þessara ára hvað varðar framleiðslumagnið, fallþungann og fituna en munur á gerðinni er minni en ætla mætti miða við 700 grömmum minni fallþunga 2022. Um þriðjungur skýrsluhaldara hafa náð því marki sem sett hefur verið fram fyrir fjárstofninn í ræktunarmarkmiðum. Þar er miðað við að ná öllum lömbum í R eða hærri holdfyllingaflokk og þar af 60% í U og E. Það bú sem nær 40% lamba í R og 60% í U fær 9,8 í gerðareinkunn. Ef horft er til búa með upplýsingar um 100 sláturlömb eða fleiri, þá eru það 31 % sem ná þessari einkunn. Fitan er eiginleiki sem er bestur á ákveðnu bili. Til þessa hefur markmiðið verið að sem stærstur hluti framleiðslunnar fari í fituflokka 2 og 3. Bú sem fær helming framleiðslunnar í hvorn flokk fengi fitueinkunn upp á 6,5 og stendur landsmeðaltalið reyndar um það bil í þeirri tölu í ár. Þyngstu lömbin voru í Norður-Ísafjarðarsýslu 18,2 kg að meðaltali. Sláturlömb í Eyjafirði voru að meðaltali 17,9 kg og í Strandasýslu voru þau 17,8 kg. Best gerðu lömbin voru á Ströndum (holdfyllingareinkunn 10,35). Næst þeim komu slátur- lömb á Snæfellsnesi með 9,92 í holdfyllingareinkunn og í þriðja sæti eru sláturlömb í Vestur- Húnavatnssýslu með 9,84. Bú með besta holdfyllingu lamba Miðað við 100 sláturlömb eða fleiri eru það 23 bú sem ná þeim frábæra árangri að holdfyllingareinkunn sláturlambanna sé 11,5 eða hærri. Árið 2021 voru þessi bú 17 talsins en fallþungi var meiri en áður hefur þekkst. Hæst gerðarmat var hjá Sigurfinni Bjarkarssyni í Brattholti í Árborg en 108 dilkar frá honum fengu að meðaltali 12,92 í gerð. Næst í röðinni koma lömbin hjá Elínu Önnu og Ara Guðmundi á Bergsstöðum í Miðfirði. Þau lögðu inn 1.019 sláturlömb og er meðalgerð þeirra 12,30. Þriðju í röðinni eru sveitungar þeirra, Ólafur og Dagbjört á Urriðaá. Þau lögðu inn 1.027 sláturlömb og er meðalgerð þeirra 12,29. Frábær árangur hjá þessum bændum sem standa í fylkingarbrjósti sauðfjárbænda, hvað gerð sláturlamba varðar Vaxtarhraði Líklega er það draumur flestra sauðfjárbænda að fá lömbin rígvæn úr sumarhögum, tilbúin til til slátrunar. Hér skiptir að sjálfsögðu máli að eðliseiginleikarnir séu góðir í stofninum, að ærnar sé mjólkurlagnar og lömbin búi yfir mikilli vaxtargetu. Umhverfisáhrifin vega hér einnig þungt, bæði atlætið og gæði beitilandsins. Hvergi á landinu uxu lömbin hraðar sumarið 2022 en á Búrfelli í Svarfaðardal, en þau þyngdust að meðaltali um 166 g/dag. Meðal vaxtahraði á landsvísu var um 120 g/dag. Í töflu 5 má sjá lista yfir bú þar sem lömbin náðu mestum vaxtarhraða. Líkt og þar kemur fram eru þessir lambahópar yfirleitt með lágan meðalaldur, langt undir meðalaldri sláturlamba haustið 2022 sem voru 140 dagar ef skoðuð eru bú með 100 eða fleiri sláturlömb. Gefur það til kynna að þessi lömb hafi haft það gott í sumarhögum og komið rígvæn af fjalli. Að lokum Niðurstöður skýrsluhaldsins hjálp okkur til að greina hvað má bæta. Listar yfir hæstu bú hjálpa okkur að sjá hvaða árangri er hægt að ná og eiga að virka sem hvatning. En til að ná góðum árangri þarf margt að spila saman, s.s. öflugar kynbætur, góðir búskaparhættir, haglendið og tíðarfarið. Nánari upplýsingar varðandi niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir árið 2022 má finna á heimasíðu RML. Eyþór Einarsson og Árni Bragason ráðunautar hjá RML.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.