Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 29
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 27 Rapportið Dr. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi hjúkrunarforstjóri Landspítala, tók við heiðursdoktorsnafnbót við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á síðasta ári. Anna fer yfir víðan völl og segir meðal annars frá í náms- árunum í Skotlandi, hvernig hjúkrun varð að ævistarfi og hvernig hjúkrun hefur þróast á áranna rás. Til dæmis var í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar hópur hjúkrunarfræðinga kominn með meistarapróf í klínískri hjúkrun, en við það vaknaði spurningin um hvað þeir ættu að gera annað en aðrir hjúkrunarfræðingar. „Þegar við fórum að velta þessu fyrir okkur, þá er mjög mikilvægt fyrir þá sem hafa bætt við sig í klínískri hjúkrun að hafa tækifæri til að efla hjúkrun, bæta starfið, þannig að sjúklingurinn finni fyrir því að nálgun þeirra er önnur,“ segir hún. „Mitt meginmarkmið var að efla hjúkrun, styrkja hjúkrunarfræðinga í sínu starfi.“ Í Rapportinu ræðir hún einnig hvers vegna hún ákvað að hætta sem hjúkrunarforstjóri Landspítala eftir að eiginmaður hennar féll skyndilega frá í slysi. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, hefur gert tvær rannsóknir sem snúa að glæpavæðingu mannlegra mistaka í heilbrigðiskerfinu. Sigurbjörg ræðir um boðaðar lagabreytingar um að kerfis- bundin mistök verði á ábyrgð stofnunar en ekki einstaklings og áhrif slíkra mála í stóra samhenginu. Sigurbjörg vísar til máls sem sneri að félagsráðgjöfum í barnavernd þar sem barn lést í umsjá félagsráðgjafa. „Það leiddi til þess að það varð óskaplega erfitt að manna barnaverndarmálin,“ segir hún. „Það þurfti bókstaflega að breyta kerfinu til að það fengjust félagsráðgjafar til að vinna í svona erfiðum barnaverndarmálum.“ Hjördís Kristinsdóttir, sérfræðingur í bráðahjúkrun og sendifulltrúi Rauða krossins, hefur þrisvar farið í verkefni á vegum neyðarteymis Alþjóðaráðs Rauða krossins. Árið 2015 fór Hjördís til Nepal þar sem milljónir höfðu misst heimili sitt eftir stóran jarðskjálfta. Tveimur árum síðar fór Hjördís til Cox Bazar í Bangladess þar sem hún starfaði í flóttamannabúðum Róhingja sem höfðu flúið Mjanmar. Í fyrra fór hún til Haítí í kjölfar jarðskjálfta. Hjördís segir mikilvægt fyrir fólk að finna sér fyrirmyndir, fleiri en eina. „Hvort sem það er innan þinnar deildar eða utan, þú þarft að finna þér fyrirmynd … Ég er mjög heppin að hafa fundið mínar.“ Helga Bragadóttir, nýr deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, ræðir um ferilinn og verkefnin fram undan. „Það að veita góða hjúkrun, þjálfa nemendur og að skapa þekkingu hangir allt saman. Við viljum fá nýjustu þekkingu, vita hvað virkar og hvað ekki, kenna nemendum það og beita því í klíníkinni. Eitt verður aldrei slitið frá öðru, þetta eru allt bitar í sama púslinu,“ segir hún. Í Rapportinu veltir hún því upp hvort verið sé að viðhalda einhverri menningu sem sé fjandsamleg því að karlmenn fari í hjúkrunarfræði. Ég er að velta þessu fyrir mér, hvort það geti verið að við hugsum, tölum eða hegðum okkur á ákveðinn hátt sem að skapar menningu sem kemur í veg fyrir að karlmenn treysti sér til að koma í hjúkrun. Ég held að við þurfum eitthvað að líta í eigin barm, hugsa þetta og skoða.“ Gísli Kort Kristófersson, geðhjúkrunarfræðingur starfar á Sjúkrahúsinu á Akureyri ásamt því að vera dósent við Háskólann á Akureyri og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Gísli ræðir hvað dróg hann að geðhjúkrunarfræðinni fyrir sautján árum og rannsóknir hans. Hann hefur rannsakað núvitund og stöðu karla í hjúkrunarfræði. „Það er pínu flókið því það eru ýmsir samfélagslegir þættir sem ráða því en það eru hlutir sem við getum gert,“ segir hann. „Við erum búin að „leyfa“ konunum okkar að fara í öll þessi karlafög, með undantekningum. Samfélagið leyfir þeim að fara í læknisfræði og það er að mjakast í önnur karlafög en það er ofboðslega hægt í hina áttina.“ Hannah Rós Jónasdóttir er hjúkrunarfræðinemi við Háskóla Íslands, síðasta sumar og í fyrrasumar starfaði hún á krabbameinsdeild, þeirri sömu og hún var sjúklingur á í langan tíma. „Hjúkrunarfræðingarnir þar þekktu mig, þeim fannst rosalega gaman að sjá mig aftur, það var mjög mikið knúsað,“ segir hún. „Mér líður eins og ég sé heima hjá mér á deildinni. Sumir hafa spurt mig hvort ég fái óþægilega tilfinningu eða eitthvað við að vera þarna, þetta er meira eins og koma inn í húsið þar sem maður ólst upp. Það var nostalgía í byrjun, nú er ég orðin vön því að vinna þarna. Það er alltaf gaman að koma inn í gamla herbergið mitt að sinna sjúklingum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.