Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 8
6 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Þann 5. september síðastliðinn kvaddi Hildur Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur þetta jarðlíf og er stórt skarð hoggið í okkar
hóp við ótímabært fráfall hennar.
Hildur lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið
1983 og 1991 meistaraprófi í hjúkrun frá Madison, Wisconsin í
Bandaríkjunum. Jafnframt var hún með sérfræðileyfi í hjúkrun
langveikra frá Embættis landlæknis frá 2004, með áherslu á
hjúkrun nýrnasjúklinga.
Hildur var snemma virk í félagsstarfi hjúkrunarfræðinga, fyrst
með Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, sem síðan
sameinaðist Hjúkrunarfélagi Íslands í núverandi Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga árið 1994. Hjúkrunarfræðingar eiga Hildi
mikið að þakka en af einstakri trúmennsku sinnti hún ýmsum
störfum fyrir félagið af mikilli einurð og festu. Í áratugi vann hún
ötullega að hagsmunabaráttu hjúkrunarfræðinga, með störfum
sínum í kjaranefnd en hún sat einnig í stjórn félagsins, stjórnum
Starfsmenntunarsjóðs, Styrktarsjóðs og ekki síst Vinnudeilusjóðs.
Um hann stóð hún sterkan vörð í áratug og tryggði að þar væri til
nægt fé til að styðja hjúkrunarfræðinga fjárhagslega, ef til verkfalls
kæmi.
Minning
Hildur var ötull talsmaður framþróunar í hjúkrun og munu
hjúkrunarfræðingar njóta hennar áhrifa um ókomna tíð. Sem
dæmi um frumkvöðlahæfileika hennar stóð Hildur fyrir stofnun
fagdeildar nýrnahjúkrunarfræðinga árið 2011 og var m.a. fyrsti
formaður deildarinnar. Hún var framsýn og lét ávallt að sér
kveða á fundum félagsins með uppbyggilegum og rökstuddum
athugasemdum. Hildur var skýr í sinni afstöðu, skoðanaföst
og alltaf með hagsmuni hjúkrunarfræðinga að leiðarljósi.
Réttlætiskennd hennar var sterk.
Framlag Hildar var ekki síður mikið þegar kom að fagmálum þar
sem leiðtogahæfileikar hennar nutu sín en Hildur átti sæti í stjórn
Vísindasjóðs um tíma, tók þátt í umbótavinnu innan félagsins og
starfaði með fræðslunefnd, svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt lét hún
líka mikið að sér kveða í baráttumálum sérfræðinga í hjúkrun og
var einn helsti leiðtogi þess hóps.
Hjúkrunarfræðingar og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
eiga Hildi mikið að þakka fyrir ómetanleg störf í þágu
hjúkrunarfræðinga.
Blessuð sé minning Hildar Einarsdóttur, sérfræðings í hjúkrun.
Hildur Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Fædd 26. janúar 1958
Guðbjörg Pálsdóttir
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Með kollegum á leið í Hörpu á 100 ára afmæli Fíh