Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 22
20 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Samúðarþreyta
Katrín Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heilsu-
og sálfræðiþjónustunni á Akureyri, þekkir einkenni og
afleiðingar samúðarþreytu eflaust betur en flestir en þetta
hugtak má segja að sé frekar nýlegt í umræðunni og ekki
öllum ljóst hvað nákvæmlega það merkir. Við ákváðum
að heyra í Katrínu Ösp og fræðast nánar um þetta hugtak,
samúðarþreyta.
,,Það er í eðli okkar að bregðast við þegar við sjáum aðra
manneskju í þjáningu, angist eða sorg en við eigum það til að
gleyma, eða fáum jafnvel ekki tækifæri til þess, að veita okkar
eigin viðbrögðum athygli. Samúðarþreyta (e. compassion
fatigue) lýsir því þegar starfstengd lífsgæði fagmanns
(hjúkrunarfræðings) eru ekki að mæta þörfum hans og
farin að kosta fagmanninn heilsu,“ segir Katrín aðspurð um
hvað samúðarþreyta sé. Hún segir áhættuþætti til dæmis að
verða ítrekað vitni að þjáningu, sorg og áföllum fólks. ,,Þegar
starfsmaður á erfitt með að viðhalda persónulegum mörkum,
er undir miklu álagi og það er skortur á sjálfsumhyggju svo fátt
eitt sé nefnt.“
Katrín Ösp Jónsdóttir segir áhættuþætti að verða ítrekað
vitni að þjáningu, sorg og áföllum annarra
Nafn
Katrín Ösp Jónsdóttir
Menntun
Hjúkrunarfræðingur í meistaranámi í heilbrigðisvísindum með
áherslu á geðheilbrigði við Háskólann á Akureyri.
Starf
Hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri greininga- og
meðferðarúrræða hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni á Akureyri.
Áhugamál
Ég sem ljóð þegar þannig liggur á mér og finnst gaman að hlaupa
og dansa. Er annars mjög heimakær og elska að spila hin ýmsu
borðspil með fjölskyldu og vinum.
Einkenni samúðarþreytu og samúðarsátt
Katrín segir einkenni samúðarþreytu geta verið m.a.
magnleysi, svefnvandamál, höfuðverkur, meltingartruflanir,
reiði, kvíði, pirringur, vonleysi, atgervisflótti, einbeitingarvandi
og þegar fagaðilinn er fjarlægur gagnvart skjólstæðingum
sínum, það er að segja hefur minni getu til að finna til
samkenndar. ,,Neikvæðari viðhorf og örmögnun geta líka
verið einkenni samúðarþreytu sem getur leitt af sér mistök í
starfi, lakari gæði hjúkrunar, efasemdir um gildi starfsins og
löngun til að hætta í starfi. Ef starfsmaður hættir eykur það
skort á hjúkrunarfræðingum sem aftur getur aukið líkurnar
á samúðarþreytu á meðal þeirra sem eftir eru starfandi. En
ef starfsmaður er áfram í starfi með ómeðhöndluð einkenni
samúðarþreytu þá getur það leitt til kulnunar. Það er því
mikilvægt að vera með úrræði í boði fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Með því að þekkja okkar eigin viðbrögð og einkenni
samúðarþreytu þá erum við betur í stakk búin til að þjóna
skjólstæðingum og um leið að hlúa að okkar eigin þörfum,“
segir Katrín og tekur fram að samúðarsátt (e. compassion
satisfaction) sé mótvægið við samúðarþreytu. ,,Það er þegar
Viðtal: Sigríður Elín Ásmundsdóttir / Myndir: Úr einkasafni
Samúðarþreyta