Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 70
68 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Mynd 2. Þróun hlutfallslegrar aldurssamsetningar hjúkrunarfræðinga 2005-2019
Mynd 3. Þróun fjölda hjúkrunarfræðinga sem eru komnir á lífeyrisaldur eða komast á hann innan 10 ára 2005-2019
Starfslok hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Fjöldi hjúkrunarfræðinga sem hætti störfum að eigin
frumkvæði (fór út af launaskrá) jókst úr 105 í 152 eða um
44% á árunum 2010 til 2019. Að meðaltali hættu 146 (5%)
hjúkrunarfræðingar á ári á tímabilinu. Hlutfallslega var
mesta aukningin hjá 36-40 ára en einnig var nokkur aukning í
aldurshópnum 51 árs og eldri. Starfsmannavelta var 9%-13%
2010-2019. Milli áranna 2005 og 2019 hér um bil tvöfaldaðist
fjöldi hjúkrunarfræðinga sem hættu störfum á spítalanum af
öðrum ástæðum en þeim að vera kominn á lífeyrisaldur úr 40
í 70. Ástæður voru margvíslegar s.s. vegna heilsubrests eða að
þeim var sagt upp störfum.
Fjölmennir árgangar hjúkrunarfræðinga komast á lífeyrisaldur
á yfirstandandi áratug (2020-2030), en þá munu 24%
hjúkrunarfræðinga (stöðugildi) láta af störfum á Landspítala
vegna réttar til lífeyristöku ef miðað er við stöðuna í dag.
Það eru alls um 414 einstaklingar í um 293 stöðugildum (41
hjúkrunarfræðingar á ári). Þessi sami hópur var 9% eða 13
á ári árið 2005. Þessi þróun verður mögulega hraðari þar
sem margir hafa rétt til töku lífeyris fyrr vegna 95 ára reglu. Á
árunum 2020-2025 verður staðan sérstaklega erfið þar sem
um 15% hjúkrunarfræðinga á Landspítala ná lífeyrisaldri.
Ráðningar hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Hjúkrunarfræðingum sem ráða sig til starfa á Landspítala má
gróflega skipta í þrjá hópa. Í fyrsta lagi eru það nýútskrifaðir
hjúkrunarfræðingar, í öðru lagi eru það hjúkrunarfræðingar
með erlent ríkisfang og í þriðja lagi eru það hjúkrunar-
fræðingar sem hafa starfað utan heilbrigðisþjónustu eða á
öðrum heilbrigðisstofnunum.
Á árunum 2005 til 2019 voru að meðaltali 132 hjúkrunar-
fræðingar ráðnir í fyrsta sinn á Landspítala (nýráðning). Þegar
horft er til skemmri tíma eða frá árinu 2010 lækkar þessi tala
niður í 65 að meðaltali á ári, en eftir fjármálahrunið 2008 var
tímabundið minna framboð á öðrum störfum. Á því fimmtán
ára tímabili sem skoðað var, hafa nýráðningar íslenskra
hjúkrunarfræðinga á Landspítala aldrei verið færri en árið
2019 (n=118), ef undanskilin eru árin eftir fjármálahrunið
haustið 2008 (2009-2012) og 2017 en þá var fjöldinn á bilinu 65
til 114.
Árið 2019 voru 43% (n=51) nýrra hjúkrunarfræðinga með
erlent ríkisfang. Á sama tíma voru að meðaltali 140 ný
hjúkrunarleyfi gefin út í landinu, en þeim fjölgað að meðaltali
um sjö á ári.
#%*12% 11% 12% 13% 12% 12% 11% 11% 12% 13% 13% 13% 15% 15% 15%
24% 23% 23% 22% 24% 24% 23% 23% 22% 22% 21% 20% 19% 20% 21%
35%
33% 31% 30% 28% 27% 27% 25% 24% 24% 24% 24% 24% 25% 24%
24% 27% 28% 29% 31% 31% 32% 33% 33% 31% 30% 30% 29% 28% 25%
4% 6% 6% 6% 6% 6% 7% 8% 9% 11% 12% 13% 13% 13% 15%
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
100%
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
132
6
160
10
173
13
189
15
196
14
222
13
251
8
270
15
291
16
323
18
364
20
389
25
382
34
409
43
414
43
0
50
100
150
200
250
300
350
400
450
21-30 ára
2005 2007 20122009 20142006 20112008 20132010 2015 2016 2017 2018 2019
10 ár eða styttra til lífeyrisréttinda Komin(n) á lífeyristökuréttaraldur
31-40 ára 41-50 ára 51-60 ára 61 árs og eldri
Þróun mönnunar í hjúkrun á Landspítala