Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 62
60 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Kjararáðstefna
Kraftur og samhljómur
á kjararáðstefnu
Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Kjararáðstefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldin
dagana 3. og 4. október á Hótel Selfossi. Á ráðstefnuna mættu
rúmlega 70 trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga frá stofnunum
um allt land. Tilgangur ráðstefnunnar var fyrst og fremst að
vinna að kröfugerð Fíh í komandi kjarasamningum, ásamt
yfirferð á vanefndum bókunum úr gildandi miðlunartillögu
sem og mati á styttingu vinnuviku í dag- og vaktavinnu.
Jafnframt var tilgangurinn að fá trúnaðarmenn saman
til að efla liðsheildina og fræðast.
Trúnaðarmenn komu með margar góðar lausnamiðaðar
nálganir á þessum tveimur dögum sem munu nýtast vel
í komandi kjarabaráttu. Krafturinn og samhljómurinn í
hópunum var áþreifanlegur og mun samtalið á ráðstefnunni
skila miklu í aðdraganda kjarasamninga.
Fyrri dagurinn var nýttur í kynningu á verðmæti kvennastarfa,
umræðu og stöðu styttingu vinnuvikunnar, niðurstöðu
kjarakönnunar, umræðu um kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga
út á við og í fjölmiðlum, kyrrðarjóga og samveru yfir góðum
kvöldverði. Seinni dagurinn byrjaði á erindi um jákvæð
samskipti, sem nýttist vel inn í daginn þegar vinnuhópar
hófu sín störf. Ráðstefnunni lauk með því að tíu hópar
trúnaðarmanna tóku saman þau atriði sem skipa eigi öndvegi
í kröfugerð hjúkrunarfræðinga í komandi kjarasamningum.
Verðmætamat kvennastarfa
Ráðstefnan byrjaði á móttöku og hressingu, enda voru
trúnaðarmenn að koma víða að af landinu og því gott að
hittast yfir kaffibollanum og hita upp fyrir komandi daga.
Eftir að formaður Fíh, Guðbjörg Pálsdóttir, bauð ráðstefnugesti
velkomna og hvatti þá til dáða og góðra verka, tók Heiður
Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB, við keflinu. Hún
fór yfir verðmætamat, viðmið og gildi kvennastarfa og kynnti
fyrir hjúkrunarfræðingum tillögur starfshóps forsætisráðherra
um endurmat á virði kvennastarfa, sem komu fram í skýrslunni
Verðmætamat kvennastarfa. Starfshópurinn vinnur að því
að koma með tillögur til að útrýma launamun sem stafar af
kynskiptum vinnumarkaði.
Í lögum segir að konum, körlum og fólki með hlutlausa
skráningu kyns skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir
sömu eða jafn verðmæt störf. Heiður segir stórum áfanga hafa
verið náð þegar farið var að líta á þetta sem tvær áskoranir
sem þarfnast tveggja ólíkra nálganna. Annars vegar hvernig
tryggt er að jöfn laun og sömu kjör séu tryggð fyrir sömu störf
(jafnlaunanálgun) og hins vegar hvernig við tryggjum jöfn laun
og sömu kjör fyrir jafnverðmæt störf (jafnvirðisnálgun).
Jafnvirðisnálgun byggir á virðismati starfa. Virðismat starfa
þarf að ná yfir virði kvenna- og karlastarfa og taka jafnframt
til hlutlægra þátta eins og tilfinningalegs og líkamlegs álags,
samskiptahæfni, auk annarra þátta. Starfsmatskerfi er
það sem kemst næst þessari nálgun og er kerfi sem metur
ýmsa þætti. Virðismat starfa þyrfti að ná yfir mat á öllum
þáttum starfs, þar skiptir ekki síður máli að taka tillit til
sálrænna þátta, sem í vissum tilfellum hafa frekar tilheyrt
kvennastéttum en karlastéttum.
Umsjón: Kjarasvið Fíh