Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 19
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 17
Stafvæðing og ýmiss konar snjalllausnir verða mikilvægir þættir í
þjónustu og stjórnun sjúkrahúss eins og Landspítala í framtíðinni.
Nýting gagna í rauntíma mun bæta stýringu þjónustuúrræða. Sem
dæmi um slíkar lausnir sem nýtast innan heilbrigðiskerfisins má
nefna:
Skilvirkari klínísk skráning, t.d. með sjálfvirkri yfirfærslu
upplýsinga úr mælitækjum í sjúkraskrá og snjallforritum í
síma fyrir starfsfólk.
Samtímaskráning, t.d. þar sem hægt er að tala upplýsingar
beint inn í kerfin.
Aukin þátttaka fólks í eigin meðferð, m.a. með markvissri
notkun Heilsuveru þar sem notendur heilbrigðiskerfisins
hafa aðgang að sínum persónulegu sjúkragögnum og
geta átt í samskiptum við meðferðaraðila. Notendur
heilbrigðisþjónustu gera vaxandi kröfu um slíka þjónustu en
mikilvægt er að hugsa hana vel og að setja henni mörk svo að
heilbrigðisstarfsmenn anni henni.
Vöktun einstaklinga með langvinna sjúkdóma með snjall-
tækni. Þegar er unnið að þróun slíkra lausna í samvinnu við
Sidekick Health.
Horfa þarf út fyrir rammann til að finna leiðir
Verkefni forstjóra Landspítala eru víðtæk og það heyrist á
Runólfi að hann er að horfa á stóru myndina þegar kemur
að þjónustunni með allt starfsfólk Landspítala í huga. Fátt
af því sem Runólfur hefur rætt í þessu viðtali ætti að koma
hjúkrunarfræðingum á óvart. Það er þó ljóst að hann metur
framlag hjúkrunarfræðinga mikils og gerir sér grein fyrir mikilvægi
þeirra í heildarsamhenginu. Hvaða töfrum ætlar hann að beita til
að laða hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítala og til að halda í
þá sem þegar eru þar?
„Mér leikur forvitni á að vita hve margir hjúkrunarfræðingar eru
ekki við störf innan heilbrigðiskerfisins og við hvað þeir eru að
þá að fást“, segir hann kankvís. Það er skiljanleg spurning því það
skiptir máli að vita eftir hve miklu er að slægjast áður en lögð
Viðtal
eru út net. Tímarit hjúkrunarfræðinga leitaði svara við þessari
spurningu og niðurstöðuna má sjá í töflu hér fyrir neðan.
Fjöldi hjúkrunarfræðinga með gilt starfsleyfi á Íslandi
* Embætti landlæknis (2022). Heilbrigðisupplýsingar, tölvupóstur frá Hildi Björk
Sigbjörnsdóttur, verkefnisstjóra, 4.10.2022
**Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (2022). Ársskýrsla 2021 – 2022. Sótt á
vefinn 19.10.2022: https://www.hjukrun.is/library/Skrar-NeW/utgefid-efni/
Skyrslur/%c3%81rssk%c3%bdrsla%20F%c3%adh%202021-2022.pdf
***Landspítali (2022). Hagdeild Landspítala, tölvupóstur frá Helgu Bjarnadóttur,
deildarstjóra, 1.9.2022
Hjúkrunarfræðingar Fjöldi
Með gilt starfsleyfi í árslok 2021* 5847
Með gilt starfsleyfi, búsetu á Íslandi og yngri en 70
ára í árslok 2021*
4452
Sem greiða til Fíh í árslok 2021** 3656
Starfandi á Landspítala, félagar í Fíh 1.9.2022*** 1801
Starfandi á Landspítala, félagar í Fíh, annað
þjóðerni en íslenskt, 1.9.2022***
156
Starfandi á Landspítala, félagar í Fíh, 65 ára og eldri
1.9.2022***
133
Í sínu fyrsta starfi sem hjúkrunarfr. á Landspítala
2021, félagar í Fíh***
128
Viðbragðsteymið er skipað af heilbrigðisráðherra 25. ágúst 2022 og er gert að skila
tillögum um aðgerðir í bráðaþjónustu til ráðherra fyrir 15. desember nk.
Hlutverk teymisins er að setja fram tímasetta áætlun til næstu 3-5 ára um breytingar
og umbætur í bráðaþjónustu á landinu öllu með það að markmiði að bæta þjónustu,
minnka sóun og auka árangur. Megináhersla viðbragðsteymisins skal vera á móttöku
bráðatilvika innan veggja heilbrigðiskerfisins, s.s. slysamóttöku heilsugæslustöðva,
bráðamóttökur og aðra vaktþjónustu. Samstarf allra aðila sem koma beint og óbeint
að bráðaþjónustu er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga þjónustu til
framtíðar.
Teymið skal hafa til hliðsjónar aðgerðaáætlun ráðuneytisins um sjúkraflutninga og
bráðaþjónustu sem að meginefni er byggð á skýrslu starfshóps um framtíðarskipulag
sjúkraflutninga til hliðsjónar varðandi þann hluta bráðaþjónustu.
Viðbragðsteymi
bráðaþjónustu
https://www.stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/nanar-um-nefnd/?itemid=770c3ab8-2796-11ed-9bb0-005056bc4727
Runólfur telur annars upp þrennt sem hann telur mikilvægt fyrir
starfandi hjúkrunarfræðinga: Gott vinnuumhverfi, hæfilegt álag og
fjölbreyttir starfsþróunarmöguleikar.
„Laun skipta líka máli,“ segir hann. „Við verðum að vera sam-
keppnisfær við aðrar stofnanir en erum náttúrulega bundin af
fjárveitingum til spítalans sem taka m.a. mið af kjarasamningum.“
Hann segir að nýtt launaþróunarkerfi sé til skoðunar og telur að
sérstaklega sé mikilvægt að huga að launaþróun fyrstu árin í starfi
því að hún getur haft ráðandi áhrif á þróun starfsferils. Jafnframt
megi mögulega líta til ákveðinna aðstæðna sem geti verið tilefni til