Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 69
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 67
Mynd 1. Þróun fjölda einstaklinga og stöðugilda hjúkrunarfræðinga á Landspítala 2005-2019
Mönnun í hjúkrun á Landspítala
Fjöldi starfa hjúkrunarfræðinga (stöðugildi)
Árið 2005 störfuðu 1.207 hjúkrunarfræðingar á Landspítala
í 938 stöðugildum og árið 2019 voru þeir 1.654 í 1.221
stöðugildum. Hér eru, bæði árin, undanskildir þeir hjúkrunar-
fræðingar sem eru í launalausu leyfi, launalausum veikindum,
barnsburðarleyfi eða foreldraorlofi. Stöðugildum (stg.)
hjúkrunarfræðinga fjölgaði að meðaltali um 2,2% á ári á
þessu 15 ára tímabili eða um 27 hjúkrunarfræðinga í 20 stg.
á ári. Á sama tíma hefur íbúum landsins fjölgað um 1,5%
á ári, 65 ára og eldri um 3,3% og gistinóttum útlendinga á
hótelum og gistiheimilum um 24% (Hagstofa Íslands 2022).
Mest fjölgaði hjúkrunarfræðingum á bráðadeild í Fossvogi,
vökudeild (nýburagjörgæslu), bráðalyflækningadeild (ný
deild), útskriftardeild aldraðra (ný deild) og á gjörgæsludeild á
Hringbraut.
Í vissum tilfellum er takmörkuðu framboði á hjúkrunar-
fræðingum mætt með því að ráða nemendur í hjúkrunarfræði
á síðustu námsárum til starfa við hjúkrun undir leiðsögn
• Er nægilegt framboð af íslenskum hjúkrunarfræðingum
til að mæta þörf fyrir nýliðun á Landspítala?
• Getur ráðning erlendra hjúkrunarfræðinga leyst
mönnunarvanda í hjúkrun á Íslandi?
• Er hjúkrunarfræðingum sem vinna við annað en beina
hjúkrun að fjölga á Landspítala?
• Eru hjúkrunarfræðingar að færa sig úr vaktavinnu yfir í
dagvinnu?
• Er aukning á veikindafjarvistum?
• Er aukning á breytilegri yfirvinnu?
hjúkrunarfræðinga. Þessi störf eru ekki hluti af þeirra námi
heldur vinna samhliða því. Fjöldi þeirra hefur meira en
tvöfaldast frá árinu 2006, eða úr 33 stöðugildum að meðaltali í
70 árið 2019. Hér eru taldir bæði heilsársstarfsmenn sem vinna
samhliða námi og sumarstarfsmenn.
Aldurssamsetning hjúkrunarfræðinga á Landspítala breyttist
mikið á árunum 2005-2019. Mesta hlutfallsleg fækkunin
var meðal hjúkrunarfræðinga á miðjum aldri (41-60 ára)
eða úr 35% í 24% sem er lækkun um rúm 30%. Ein ástæða
hlutfallslegrar fækkunar í þessum aldurshópi er að fáir
hjúkrunarfræðingar útskrifuðust hér á landi á árunum 1985-
2000 eða á bilinu 52-67 á ári en til samanburðar útskrifuðust
123 árið 2017. Mest hefur hlutfallslega fjölgun starfandi
hjúkrunarfræðinga orðið í elsta aldursflokknum (61-70 ára)
sem var 4% hjúkrunarfræðinga árið 2005 en 15% árið 2019,
eða nærri fjórföldun.
93
8
90
8 93
8 97
2 1.
00
5
99
5 1.
02
7
1.
00
2
1.
02
7
1.
08
4
1.
08
1
1.
09
2
1.
12
9
1.
19
0
1.
22
1
1.
20
7
1.
20
8
1.
24
3
1.
30
4
1.
32
5
1.
31
7
1.
35
0
1.
34
2
1.
38
8
1.
45
5
1.
44
9
1.
50
6
1.
54
1
1.
58
4
1.
65
4
0
200
400
600
800
1.000
1.200
1.400
1.600
1.800
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Stöðugildi Fjöldi
Nokkrar
spurningar
voru hafðar
að leiðarljósi
við vinnslu
þessara
greinar
Þróun mönnunar í hjúkrun á Landspítala