Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 4
Pistill ritstjóra Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Ritnefnd: Þórunn Sigurðardóttir, Sölvi Sveinsson, Þorgerður Ragnarsdóttir Ritstjóri ritrýndra greina: Sigrún Sunna Skúladóttir Ritnefnd ritrýndra greina: Kristín Linda H Hjartardóttir, Páll Biering, Þóra Jenný Gunnarsdóttir Yfirlestur: Ragnheiður Linnet Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir - sími 821 2755 Hönnun og umbrot: Þorbjörg Helga Ólafsdóttir Prentun: PrentmetOddi Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík s. 540 6400 hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Hormón sem geta komið til bjargar Alþjóðlegur dagur breytingaskeiðsins var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi þann 18. október. Í ár var yfirskrift dagsins á heimsvísu heilaþoka og minnisleysi. Ég hafði aldrei heyrt á það minnst að konur færu á ákveðið skeið milli fertugs og fimmtugs þegar ég var unglingur og móðir mín tók á það ráð að opna allt húsið upp á gátt í tíma og ótíma. Henni varð skyndilega svo heitt! Pabbi svaf með húfu og ullarteppi ofan á sænginni á meðan eiginkonan var að kafna úr hita á Evuklæðunum. Heitt og sveitt, ekkert annað situr í minningunni en fáklædd móðir sem skrúfaði niður í öllum ofnum á meðan aðrir á heimilinu voru kappklæddir undir teppi. Hormónalyf komu til bjargar og þá hlýnaði öllum og mamma varð alsæl. Var breytingaskeiðið tabú þar til nýlega? Nú er ég hálfnuð með æviskeiðið, ef ég næ því að verða níræð, og hlýt að fara að fá einkenni. Sumar konur verða ekki varar við neitt á meðan aðrar kveljast, ef til vill bæði andlega og líkamlega árum saman, ganga jafnvel á milli lækna sem finna ekkert að þeim. Þessi óvelkomnu einkenni breytingaskeiðsins er hægt að meðhöndla en þá þurfa konur líka að þekkja einkenni breytingaskeiðsins, ekki bara að því fylgi hita- og svitakóf sem líði hjá á endanum. Það er óhætt að segja að það sé vitundarvakning hér á landi um breytingaskeiðið og konur í mínum vinahópi eru að uppgötva að hjartsláttartruflanir, minnisleysi og skyndileg depurð sem þær upplifa er líklega ekki alvarlegur sjúkdómur heldur einkenni breytingaskeiðsins. Þvílíkur léttir! Og svo er hægt að fá hormóna við þessu skeiði og lífið verður gott aftur. Í þessu tölublaði er viðtal við þær Hörpu Lind og Hönnu Lilju hjá Gynamedica sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur sem býður upp á heildræna fræðslu, ráðgjöf og meðferð fyrir konur á breytingaskeiði. Þær segja að andleg einkenni séu lítið viðurkennd sem einkenni breytingaskeiðsins og að það dugi ekki að gefa þunglyndislyf við depurð af völdum hormónaskorts því koma þurfi jafnvægi á hormónin. Estrógenhormón koma til bjargar en Hanna Lilja segir í viðtalinu að þegar estrógenið lækki þá hækki kólesterólið hjá konum, æðaveggirnir stífni og konur geti fengið hjartaáfall sem sé ein algengasta dánarorsök kvenna. Þetta er því ekkert grínskeið og ber að taka alvarlega. Og það sem mér þótti sérstaklega athyglisvert er að samkvæmt þeim stöllum hjá Gynamedica er öruggara að byrja á hormónauppbótarmeðferð áður en maður hættir á blæðingum. Fögnum þessari vitundar- vakningu og höldum áfram að tala um einkenni skeiðsins sem allar konur, sem lifa nógu lengi, ganga í gegnum á lífsleiðinni. Við fjöllum líka um samúðarþreytu sem er hugtak sem nýlega skaut upp kollinum má segja. Katrín Ösp hjúkrunarfræðingur segir í viðtali í blaðinu að það séu áhættuþættir þegar fólk verður ítrekað vitni að þjáningu, sorg og áföllum annarra. Mjög áhugaverð lesning eins og viðtalið við Runólf Pálsson sem stýrir nú Landspítalaskútunni og grein um mönnunarvandann á spítalanum. Kjarabarátta hjúkrunarfræðinga er fram undan og ég hvet alla hjúkrunarfræðinga til að lesa niðurstöður kjarakönnunar Fíh sem koma eflaust fáum á óvart og grein um kjararáðstefnu sem félagið hélt á Selfossi á dögunum. Áfram hjúkrunarfræðingar, þið eruð hjartað í heilbrigðiskerfinu og eigið allt það allra besta skilið! 2 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.