Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 49
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 47 Viðtal Fyrsta brautskráning kandídata á nýrri námsleið Hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf ,,Hjúkrunarfræðideild HÍ ræðst aldrei á garðinn þar sem hann er lægstur. Frumkvöðlarnir Herdís Sveinsdóttir prófessor og fyrrverandi deildarforseti og Ásta Thoroddsen prófessor lögðu grunninn að fyrstu útgáfu hjúkrunarnáms fyrir fólk með aðra háskólagráðu. Með hvatningu frá Landspítala í farteskinu, þar sem skortur á hjúkrunarfræðingum var og er mestur, höfðu þær hugrekki til að synda á móti straumnum. Hjúkrunarsamfélagið var neikvætt og hélt því fram að verið væri að veita afslátt og gjaldfella hjúkrunarnámið. Það sem var jákvætt við neikvæðu raddirnar var að hjúkrunarfræðingar vildu standa vörð um menntun hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðideild HÍ hefur skipulagt nám fyrir fólk með aðra háskólagráðu án afsláttarkjara. Í fyrsta lagi, tekur hjúkrunarnámið tillit til evrópskra reglugerða þar sem Íslendingar hafa skuldbundið sig að uppfylla skilyrði tilskipana um bæði lágmarks bóklegar og klínískar stundir. Nemendur í hjúkrunarnámi þurfa að uppfylla 480 klínískar stundir undir leiðsögn hjúkrunarfræðings fyrir utan skipulagt klínískt nám. Í öðru lagi, er námið 240 einingar eins og annað hjúkrunarnám á Íslandi. Forkröfur í námið eru 60 einingar en námið sjálft er 180 einingar eða samtals 240 einingar. Í þriðja lagi, er námið skipulagt með það að leiðarljósi að gæði námsins séu sambærileg hefðbundinni fjögurra ára námsleið til BS prófs,“ sagði Eydís í ræðu sinni. Hún sagði líka að hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskóla- gráðu hefði fyrst verið í boði við Bandarískan háskóla árið 1971 og að í Bandaríkjunum væri slík námsleið í boði í 49 ríkjum. ,,Í samstarfsháskóla HÍ til 40 ára hafa kennarar Hjúkrunarfræðideildar kynnst jákvæðum hliðum þessa náms. Í Bandaríkjunum er námið mjög vinsælt og helmingi fleiri sækja um það en fá inngöngu og hjúkrunarstjórnendum finnst þessir hjúkrunarfræðingar standa sig einstaklega vel í starfi. Rannsóknir sýna að þeir standa sig jafnvel og þeir sem koma Umsjón: Sigríður Elín Ásmundsdóttir úr hefðbundnu hjúkrunarnámi. Önnur lönd eru einnig að bjóða upp á þessa námsleið m.a. Bretland, Ástralía, Kanada og Japan. Vegna skipulags hjúkrunarnáms á Norðurlöndum og í Evrópu hefur verið minni áhugi að bjóða upp á svona námsleið þar.“ Í ræðu hennar kom fram að af 23 einstaklingum sem innrituðust í námið hafi tveir hætt og sjö seinkað námi en flestir þeirra nemenda stefni á brautskráningu í febrúar. Hún sagði námið vera í sífelldri endurskoðun og þá sérstaklega með tilliti til fyrirkomulags þar sem reyni töluvert á stjórnsýslu háskólans. Við látum lokaorð Eydísar fylgja og eflaust hvetja þessi orð hennar fleiri til að sækja um. ,,Kæru kandidatar, hvernig er hægt að lýsa nemendum í Hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskólagráðu? Það sem er sammerkt er mikill áhugi ykkar á hjúkrunarfræði, þið eruð aðeins eldri (meðalaldur 37.2) og dreifing aldurs er alveg frá því að vera 23 - 61 árs. Þið eruð lífsreyndari nemendur en um leið kröfuharðari. Kennurum hjúkrunarfræðideildar finnst stundum erfitt að kenna ykkur vegna allra spurning- anna og vangaveltnanna, þeir komast ekkert áfram með námsefnið sitt! Þið komið með reynslu og menntun frá mismunandi fræðigreinum. Þið eruð líffræðingar, kennarar, íþróttafræðingar, þroskaþjálfar, heimspekingar, félagsfræðingar, sálfræðingar og úr listinni, fjölbreytnin er mikil. Það eina sem ég sakna eru fleiri karlmenn í hjúkrun. Þið fáið góða dóma hjúkrunarstjórnenda sem eru hlynntir meiri fjölbreytni hjúkrunarstéttarinnar. Sumum þeirra finnst þetta besta viðbót í hjúkrunarmenntun sem hefur átt sér stað lengi en það á kannski tíminn eftir að leiða í ljós og þið að sanna. Kæru kandídatar, mig langar að óska ykkur til hamingju með þennan áfanga – BS í hjúkrunarfræði. Megi framtíðin vera ykkar.“ Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir dósent er umsjónarmaður nýrrar námsleiðar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands sem heitir hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf. Þann 21. október 2022 brautskráðist fyrsti hópur nemenda af þeirri námsleið og við það tilefni hélt Eydís Kristín hátíðlega ræðu þar sem hún sagði að brautskráning hjúkrunarfræðinga væri alltaf gleðiefni. Hjúkrunarfræði væri eftirsótt háskólamenntun og að atvinnutilboðum rigni yfir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga, innan jafnt sem utan, heilbrigðisstofnana. Eydís sagði þetta vera frumkvöðla á þessari námsleið og að núna lægi gata þeirra greið í hjúkrun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.