Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 49
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 47
Viðtal
Fyrsta brautskráning
kandídata á nýrri námsleið
Hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf
,,Hjúkrunarfræðideild HÍ ræðst aldrei á garðinn þar sem hann
er lægstur. Frumkvöðlarnir Herdís Sveinsdóttir prófessor
og fyrrverandi deildarforseti og Ásta Thoroddsen prófessor
lögðu grunninn að fyrstu útgáfu hjúkrunarnáms fyrir fólk
með aðra háskólagráðu. Með hvatningu frá Landspítala í
farteskinu, þar sem skortur á hjúkrunarfræðingum var og er
mestur, höfðu þær hugrekki til að synda á móti straumnum.
Hjúkrunarsamfélagið var neikvætt og hélt því fram að verið
væri að veita afslátt og gjaldfella hjúkrunarnámið. Það sem
var jákvætt við neikvæðu raddirnar var að hjúkrunarfræðingar
vildu standa vörð um menntun hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðideild HÍ hefur skipulagt nám fyrir fólk með
aðra háskólagráðu án afsláttarkjara. Í fyrsta lagi, tekur
hjúkrunarnámið tillit til evrópskra reglugerða þar sem
Íslendingar hafa skuldbundið sig að uppfylla skilyrði tilskipana
um bæði lágmarks bóklegar og klínískar stundir. Nemendur
í hjúkrunarnámi þurfa að uppfylla 480 klínískar stundir undir
leiðsögn hjúkrunarfræðings fyrir utan skipulagt klínískt nám.
Í öðru lagi, er námið 240 einingar eins og annað hjúkrunarnám
á Íslandi. Forkröfur í námið eru 60 einingar en námið sjálft
er 180 einingar eða samtals 240 einingar. Í þriðja lagi, er
námið skipulagt með það að leiðarljósi að gæði námsins séu
sambærileg hefðbundinni fjögurra ára námsleið til BS prófs,“
sagði Eydís í ræðu sinni.
Hún sagði líka að hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskóla-
gráðu hefði fyrst verið í boði við Bandarískan háskóla árið
1971 og að í Bandaríkjunum væri slík námsleið í boði í 49
ríkjum. ,,Í samstarfsháskóla HÍ til 40 ára hafa kennarar
Hjúkrunarfræðideildar kynnst jákvæðum hliðum þessa náms.
Í Bandaríkjunum er námið mjög vinsælt og helmingi fleiri
sækja um það en fá inngöngu og hjúkrunarstjórnendum finnst
þessir hjúkrunarfræðingar standa sig einstaklega vel í starfi.
Rannsóknir sýna að þeir standa sig jafnvel og þeir sem koma
Umsjón: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
úr hefðbundnu hjúkrunarnámi. Önnur lönd eru einnig að
bjóða upp á þessa námsleið m.a. Bretland, Ástralía, Kanada
og Japan. Vegna skipulags hjúkrunarnáms á Norðurlöndum
og í Evrópu hefur verið minni áhugi að bjóða upp á svona
námsleið þar.“
Í ræðu hennar kom fram að af 23 einstaklingum sem
innrituðust í námið hafi tveir hætt og sjö seinkað námi en
flestir þeirra nemenda stefni á brautskráningu í febrúar. Hún
sagði námið vera í sífelldri endurskoðun og þá sérstaklega
með tilliti til fyrirkomulags þar sem reyni töluvert á stjórnsýslu
háskólans. Við látum lokaorð Eydísar fylgja og eflaust hvetja
þessi orð hennar fleiri til að sækja um.
,,Kæru kandidatar, hvernig er hægt að lýsa nemendum í
Hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskólagráðu? Það sem
er sammerkt er mikill áhugi ykkar á hjúkrunarfræði, þið eruð
aðeins eldri (meðalaldur 37.2) og dreifing aldurs er alveg
frá því að vera 23 - 61 árs. Þið eruð lífsreyndari nemendur
en um leið kröfuharðari. Kennurum hjúkrunarfræðideildar
finnst stundum erfitt að kenna ykkur vegna allra spurning-
anna og vangaveltnanna, þeir komast ekkert áfram með
námsefnið sitt! Þið komið með reynslu og menntun
frá mismunandi fræðigreinum. Þið eruð líffræðingar,
kennarar, íþróttafræðingar, þroskaþjálfar, heimspekingar,
félagsfræðingar, sálfræðingar og úr listinni, fjölbreytnin er
mikil. Það eina sem ég sakna eru fleiri karlmenn í hjúkrun. Þið
fáið góða dóma hjúkrunarstjórnenda sem eru hlynntir meiri
fjölbreytni hjúkrunarstéttarinnar. Sumum þeirra finnst þetta
besta viðbót í hjúkrunarmenntun sem hefur átt sér stað lengi
en það á kannski tíminn eftir að leiða í ljós og þið að sanna.
Kæru kandídatar, mig langar að óska ykkur til hamingju með
þennan áfanga – BS í hjúkrunarfræði. Megi framtíðin vera
ykkar.“
Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir dósent er umsjónarmaður nýrrar
námsleiðar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands sem heitir
hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf. Þann 21. október 2022
brautskráðist fyrsti hópur nemenda af þeirri námsleið og við það tilefni
hélt Eydís Kristín hátíðlega ræðu þar sem hún sagði að brautskráning
hjúkrunarfræðinga væri alltaf gleðiefni. Hjúkrunarfræði væri eftirsótt
háskólamenntun og að atvinnutilboðum rigni yfir nýútskrifaða
hjúkrunarfræðinga, innan jafnt sem utan, heilbrigðisstofnana. Eydís
sagði þetta vera frumkvöðla á þessari námsleið og að núna lægi gata
þeirra greið í hjúkrun.