Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 48
46 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Hvaða bakgrunn í námi ert þú með og
hvenær útskrifaðist þú úr því námi?
Ég útskrifaðist úr viðskiptafræði árið 2005 frá
Tækniháskóla Íslands.
Hvar starfaðir þú áður en þú ákvaðst að
skipta um starfsferil?
Ég vann á hjúkrunarheimili á sumrin þegar ég
var í framhaldsskóla og fann að það átti vel
við mig. Seinna meir starfaði ég við ýmis störf
í fjármálageiranum meðal annars í bönkum og
greiðslumiðlun.
Hvers vegna varð það nám fyrir valinu
á sínum tíma og hvað varð til þess að þú
ákvaðst svo að venda kvæði þínu í kross
og sækja um nám í hjúkrunarfræði fyrir
fólk með aðra háskólagráðu?
Það var gamall draumur sem blundaði alltaf
í mér að verða hjúkrunarfræðingur, alveg frá
því að ég mjög ung. Ég reyndi einu sinni að
komast inn og ætlaði alltaf aftur en lét ekki
verða af því og svo liðu 20 ár. Ég hef svo á
undanförnum árum skráð mig fjórum sinnum
í hjúkrunarfræði en alltaf hætt við vegna þess
að mér finnst fjögur ár of langur tími. Þegar
ég sá svo þessa námsleið auglýsta ákvað ég
að láta á það reyna og var að útskrifast núna
í haust.
Hvernig var umsóknarferlið, er einhver
hámarksfjöldi á þessari námsleið?
Til að geta sótt um inngöngu í námið þarf
að taka áður í forkröfum 40 einingar í
hjúkrunarfögum. Það er mismikið hvað hver
fær metið en ég þurfti að klára fimm fög sem
voru lífeðlisfræði 1 og 2, frumulífeðlisfræði,
líffærafræði, sál- og félagsfræði. Það eru teknir
að hámark 20 nemendur inn í námið í hvert
sinn.
Var námið meira krefjandi en þú áttir von
á?
Þetta er mjög krefjandi nám enda verið að
taka námsefni sem er kennt á fjórum árum
á tveimur og hálfu ári (með forkröfum). Við
erum í skóla og verknámi 11 mánuði á ári.
Þessi hópur tekur öll fög og verknám
eins og fjögurra ára leiðin, það eina sem
er undanskilið hjá okkur er lokaritgerð
enda er ég búin að skrifa lokaritgerð í
öðru háskólanámi. Nemendur sem taka
hjúkrunarfræði á fjórum árum en hafa áður
lokið öðru háskólanámi geta líka fengið
lokaritgerð metna og þurfa því heldur ekki að
skrifa aðra. Nemendur á leiðinni fyrir fólk með
annað háskólapróf fá engan afslátt varðandi
kröfur sem gerðar eru til hjúkrunarnáms í
Háskóla Íslands.
Kostir og gallar sem fylgja því að skipta
um starfsferil?
Það sem skiptir máli er að fólk geri það sem
það langar til í lífinu og nýti þau tækifæri sem
eru í boði. Mér finnst ég mjög heppin að fá
að prófa nýja hluti, kynnast nýju fólki og láta
gamlan draum rætast.
Hvaða fag fannst þér skemmtilegast í
náminu?
Hjúkrunarfögin, heilbrigðismat og verklegu
tímarnir í færnisetrinu.
Er eitthvert fag sem þér finnst vanta í
námið?
Já það mætti vera meira af verklegum tímum í
skólanum að mínu mati.
Gætir þú hugsað þér að starfa
sem hjúkrunarfræðingur erlendis í
framtíðinni?
Já, það kæmi alveg til greina, þetta nám býður
upp á fjölbreytta möguleika við ýmis störf
bæði á Íslandi og erlendis.
Ætlar þú að fara í framhaldsnám?
Ekkert ákveðið, enn sem komið er, mig langar
að öðlast meiri starfsreynslu áður en ég tek
ákvörðun um framhaldsnám.
Eftirminnilegasta kennslustundin?
Þegar við vorum að læra að taka blóðprufur
og setja upp æðaleggi.
Flottasta fyrirmyndin í faginu?
Ég hef kynnst mörgum flottum hjúkrunar-
fræðingum í þessu námi sem hafa miðlað af
reynslu sinni, leiðbeint og hvatt mig áfram og
ég verð þeim ævinlega þakklát fyrir.
Hvernig nærir þú andann?
Með því að dansa og kenna zumba, vera með
vinum og fjölskyldu og fara út í náttúruna.
Hjúkrunarfræðineminn
Carolin Karlsen Guðbjartsdóttir
Lét drauminn rætast þegar boðið var upp á nýja
námsleið í hjúkrunarfræði
„Ég hef svo á
undanförnum árum skráð
mig fjórum sinnum í
hjúkrunarfræði en alltaf
hætt við vegna þess að
mér finnst fjögur ár of
langur tími.“
Aldur
46 ára
Fjölskylduhagir
Gift og á fjögur börn
HJÚKRU
N
AR
FR
Æ
ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM
?