Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 62

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 62
60 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022 Kjararáðstefna Kraftur og samhljómur á kjararáðstefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Kjararáðstefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldin dagana 3. og 4. október á Hótel Selfossi. Á ráðstefnuna mættu rúmlega 70 trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga frá stofnunum um allt land. Tilgangur ráðstefnunnar var fyrst og fremst að vinna að kröfugerð Fíh í komandi kjarasamningum, ásamt yfirferð á vanefndum bókunum úr gildandi miðlunartillögu sem og mati á styttingu vinnuviku í dag- og vaktavinnu. Jafnframt var tilgangurinn að fá trúnaðarmenn saman til að efla liðsheildina og fræðast. Trúnaðarmenn komu með margar góðar lausnamiðaðar nálganir á þessum tveimur dögum sem munu nýtast vel í komandi kjarabaráttu. Krafturinn og samhljómurinn í hópunum var áþreifanlegur og mun samtalið á ráðstefnunni skila miklu í aðdraganda kjarasamninga. Fyrri dagurinn var nýttur í kynningu á verðmæti kvennastarfa, umræðu og stöðu styttingu vinnuvikunnar, niðurstöðu kjarakönnunar, umræðu um kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga út á við og í fjölmiðlum, kyrrðarjóga og samveru yfir góðum kvöldverði. Seinni dagurinn byrjaði á erindi um jákvæð samskipti, sem nýttist vel inn í daginn þegar vinnuhópar hófu sín störf. Ráðstefnunni lauk með því að tíu hópar trúnaðarmanna tóku saman þau atriði sem skipa eigi öndvegi í kröfugerð hjúkrunarfræðinga í komandi kjarasamningum. Verðmætamat kvennastarfa Ráðstefnan byrjaði á móttöku og hressingu, enda voru trúnaðarmenn að koma víða að af landinu og því gott að hittast yfir kaffibollanum og hita upp fyrir komandi daga. Eftir að formaður Fíh, Guðbjörg Pálsdóttir, bauð ráðstefnugesti velkomna og hvatti þá til dáða og góðra verka, tók Heiður Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB, við keflinu. Hún fór yfir verðmætamat, viðmið og gildi kvennastarfa og kynnti fyrir hjúkrunarfræðingum tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa, sem komu fram í skýrslunni Verðmætamat kvennastarfa. Starfshópurinn vinnur að því að koma með tillögur til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði. Í lögum segir að konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Heiður segir stórum áfanga hafa verið náð þegar farið var að líta á þetta sem tvær áskoranir sem þarfnast tveggja ólíkra nálganna. Annars vegar hvernig tryggt er að jöfn laun og sömu kjör séu tryggð fyrir sömu störf (jafnlaunanálgun) og hins vegar hvernig við tryggjum jöfn laun og sömu kjör fyrir jafnverðmæt störf (jafnvirðisnálgun). Jafnvirðisnálgun byggir á virðismati starfa. Virðismat starfa þarf að ná yfir virði kvenna- og karlastarfa og taka jafnframt til hlutlægra þátta eins og tilfinningalegs og líkamlegs álags, samskiptahæfni, auk annarra þátta. Starfsmatskerfi er það sem kemst næst þessari nálgun og er kerfi sem metur ýmsa þætti. Virðismat starfa þyrfti að ná yfir mat á öllum þáttum starfs, þar skiptir ekki síður máli að taka tillit til sálrænna þátta, sem í vissum tilfellum hafa frekar tilheyrt kvennastéttum en karlastéttum. Umsjón: Kjarasvið Fíh

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.